Fréttablaðið - 01.05.2008, Page 27

Fréttablaðið - 01.05.2008, Page 27
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Eyþór Ingi Gunnlaugsson, sem bar sigur úr býtum í sjónvarpsþáttaröðinni Bandinu hans Bubba, hefur sínar hugmyndir um tískuna þótt hann liggi ekki vakinn og sofinn yfir henni. Eyþór Ingi sem vann sannfærandi sigur í Bandinu hans Bubba, þótti hafa einstaklega þroskaða söng- rödd og framkomu. Hann hefur ekki síður þroskaðan fatasmekk þótt hann segist ekki endilega á kafi í tískupælingum. „Ég hleyp ekki á eftir ákveðnum merkjum en gríp það sem mér finnst flott. Ég reyni að velja föt sem eru pínulítið sérstök en þó ekki einum of,“ segir hinn átján ára gamli Dalvíkingur. Þessa dagana heldur hann mikið upp á frakka sem hann fékk í jólagjöf frá foreldrum sínum. Meðan á sjónvarpsþáttunum stóð hélt Eyþór að mestu í eigin stíl en þáði þó góðar ráðleggingar. Það mátti til dæmis sjá honum bregða fyrir í rauðum gallabuxum og segir hann þær dæmigerðar fyrir sinn stíl. „Ég á það líka til að fá æði fyrir hlutum og upp á síðkastið hef ég keypt mér mikið af furðuleg- um skóm.“ Eyþór er að mestu leyti sjálfmenntaður í tónlist. Hann lærði á harmonikku þegar hann var yngri en komst upp með að spila eftir eyranu. Hann ætlar sér á næstunni að leggja stund á tónfræðinám enda telur hann sig hafa gott af því. „Annars er markmiðið að sanna mig sem tónlistarmann.“ vera@frettabladid.is Frakkaklæddur rokkari Eyþór Ingi fékk frakkann að gjöf frá foreldrum sínum og rauðu gallabuxurnar segir hann dæmigerðar fyrir sinn stíl. FRÉTTABLAÐIÐ/ÖRLYGUR HNEFILL SUMAR Í LOFTI Stjörnurnar eru margar farn- ar að skarta léttum kjólum í líflegum litum enda styttist í sumarið. TÍSKA 2 ALLS KONAR PÚÐAR Þórdís Jónsdóttir saumar ýmis mynstur út í púða en áhugann á hannyrðum segist hún hafa fengið frá ömmum sínum. HEIMILI 3 Krókhálsi 16, Reykjavík - Gleráreyrar 2, Akureyri - Sími 588 2600 Áreiðanlegir og endingargóðir VÖKVAHAMRAR - Skilvirk og sterkleg hönnun - Lágur viðhaldskostnaður - Framúrskarandi afköst - Aflmiklir - Utanáliggjandi ventlakerfi - Umskiptanlegar fóðringar - Stillanlegur hraði - Stillanlegt olíuflæði Stærðir frá 100 kg. - 4500 kg. Stauraborar Kraftmiklir - Þurfa lítið olíuflæði - Sterkbyggðir - Endingargóðir - Lág viðhaldstíðni Henta á allar gerðir vinnuvéla, dráttarvéla, bílkrana ofl... MIKIÐ ÚRVAL Í BOÐI HAFÐU SAMBAND OG KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.