Fréttablaðið - 04.05.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 50004. maí 2008 — 121. tölublað — 8. árgangur
ALLA SUNNUDAGA
SÍÐUR
12
NEYTENDAMÁL Íbúðalánasjóður og
Lánastofnun íslenskra námsmanna
voru einu stofnanirnar sem gátu
vísað til fullnægjandi lagaheimilda
fyrir innheimtu seðilgjalds í könn-
un Neytendastofu. Fjörutíu og tvær
opinberar stofnanir og fyrirtæki
sem innheimt hafa slíkt gjald gátu
það ekki. Nítján þeirra hugðust
ekki hætta henni og sex höfðu ekki
tekið ákvörðun þegar fyrirspurn
frá Neytendastofu var svarað.
Þórunn Anna Árnadóttir, sviðs-
stjóri neytendaréttarsviðs Neyt-
endastofu, segir að þrátt fyrir að
heimild til að leggja á stjórnvalds-
sektir gagnvart lögaðilum sé skýr,
þá efist hún um að stofnunin muni
þurfa að grípa til slíkrar heimildar.
„Ég sé ekki að til þess komi að opin-
berar stofnanir og fyrirtæki haldi
áfram innheimtu seðilgjalds án
lagaheimildar.“ Þórunn segir að
ekki hafi verið tekin ákvörðun um
hvað stjórnvaldssektirnar yrðu
háar ef til kæmi. „Sektarhámarkið
samkvæmt lögum er tíu milljónir
króna en við höfum aldrei nýtt þá
heimild. Ég get því ekki sagt til um
hversu háar sektir yrðu í þessu til-
viki.“
Þórunn segir að Neytendastofu
hafi borist mikill fjöldi kvartana
vegna innheimtu seðilgjalda en
þær séu ekki síður vegna einka-
fyrirtækja en opinberra stofnana.
„Opinberu fyrirtækin þurfa laga-
heimild en aðrir geta lagt á slíkt
gjald samkvæmt samningi.“ Við-
skiptaráðuneytið hefur falið Neyt-
endastofu að gera úttekt á inn-
heimtu seðilgjalda og sambærilegra
fylgikrafna á einkamarkaði, en
viðskiptaráðherra hefur mælst til
þess að af slíkri innheimtu einka-
fyrirtækja verði látið.
Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra segir ljóst að
óheimilt sé að bæta aukakröfu við
aðalkröfu án sérstakrar heimildar.
„Ef ekki verður látið af þessari
gjaldheimtu mun Neytendastofa
stíga næsta skref sem er að beita
sektum. Þetta er óheimilt og við
ætlum að stoppa þetta.“ Björgvin
segir ekki viðunandi að nokkur
fjöldi stofnana og fyrirtækja ætli
ekki að láta af gjaldheimtunni.
„Það verður ekki liðið. En kjarni
málsins er sá að það sé skýrt gagn-
vart neytendum og fyrirtækjum
hvaða gjaldtökuheimildir eru til
staðar.“ - shá / sjá síðu 11
Tvær stofnanir gátu
rökstutt innheimtu
Aðeins tvær stofnanir, af 44 opinberum stofnunum og fyrirtækjum, gátu rök-
stutt innheimtu seðilgjalda á fullnægjandi hátt. Neytendastofu er heimilt að
beita stjórnvaldssektum að upphæð tíu milljónum króna vegna innheimtunnar.
SUNNUDAGUR
Í BLÍÐU OG STRÍÐU
Gunnar Helgason og Felix Bergsson
ræða 15 ára vináttu, æsku og útlönd 14
VESTMANNAEYJAR „Ég held með
Arsenal og er heiðursfélagi í
Arsenal-klúbbnum,“ segir Haukur
Guðjónsson, eigandi hrútsins
Wengers, sem heitir eftir Arséne
Wenger, þjálfara Arsenal.
Hrúturinn kom í heiminn í ágúst
í fyrra, einmitt þegar Haukur var
á leið út til Englands á fótbolta-
leik. „Ég hef átt hrúta með
skemmtilegum nöfnum eins og
Clinton sem var sonur Móniku,“
segir Haukur. Á föstudag þurfti
Wenger í rúningu og þá fengu þeir
Haukur sér göngutúr um bæinn.
„Hann hefur komið með mér í
sjoppu og fengið ís, þetta er eins
og hundur og er mikið gæfur.“ - ovd
Heitir eftir þjálfara Arsenal:
Wenger í Vest-
mannaeyjum
HAUKUR OG WENGER Hrúturinn Wenger
fær stundum að fara í göngutúr með
Hauki Guðjónssyni, eiganda sínum, um
Vestmannaeyjabæ. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
VÆTUSAMT Í dag verður yfirleitt
austlæg átt, víðast 8-13 m/s en þó
hvassari með suðurströndinni og
sumstaðar norðvestan til. Rigning
eða skúrir um mestallt land þegar
líður á daginn. Hiti 6-14 stig.
VEÐUR 4
6 11
8
1212
VEÐRIÐ Í DAG
STJARNAN SIGRAÐI
Stelpurnar í
Stjörnunni vörðu
Íslandsmeistaratitil-
inn í Mýrinni í gær.
ÞREFALT HÚRRA Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, tók í gær á móti Packard-forsetabifreið Sveins Björnssonar sem nýlega
var endurgerð. Bifreiðin er í eigu Þjóðminjasafnsins en verður geymd á Bessastöðum og notuð við sérstök tækifæri. Landsmenn
mega búast við að sjá bifreiðina á þjóðhátíðardaginn 17. júní í sumar þegar forsetinn hyggst ferðast á hinni nýuppgerðu glæsibif-
reið. Sjá síðu 4. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SÁDI-ARABÍA, AP Þýskur kvartett
flutti tónlist eftir Mozart á
tónleikum í Riyadh, höfuðborg
Sádi-Arabíu, á föstudagskvöld.
Þetta var í fyrsta skipti sem
vestræn klassísk tónlist er flutt
þar opinberlega. Tónleikarnir
voru ekki síður merkilegir fyrir
þær sakir að kynin voru ekki
aðskilin á áhorfendasvæðinu eins
og tíðkast í Sádi-Arabíu, heldur
fengu áhorfendur að sitja þar sem
þeim sýndist. - vþ
Óvenjulegir tónleikar í Riyadh:
Kynin hlusta á
Mozart saman
ÍÞRÓTTIR 24
LÖGREGLUMÁL Séra Gunnar Björnsson,
sóknarprestur á Selfossi, óskaði í síðustu
viku eftir tímabundinni lausn frá störfum
eftir að hafa verið kærður fyrir kynferðis-
brot gegn tveimur unglingsstúlkum. Stúlk-
urnar sem um ræðir eru sextán og sautján
ára. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
ná meint brot Gunnars nokkur ár aftur í
tímann og sömu heimildir herma að fleiri
stúlkur íhugi nú að kæra.
Málið kom upp í byrjun síðustu viku. Þá
barst lögreglunni á Selfossi erindi frá
barnaverndaryfirvöldum og kærurnar
tvær bárust næstu daga þar á eftir.
Lögreglan staðfestir að kærurnar hafi
borist en vill lítið tjá sig um málið að
öðru leyti. Rannsókn málsins er á
frumstigi. Búið er að frumyfirheyra séra
Gunnar og teknar verða ítarlegri
skýrslur af stúlkunum tveimur eftir
helgi.
Gunnar óskaði eftir hálfs árs leyfi frá
störfum í fyrradag. Honum var veitt það
og lét hann samstundis af störfum.
Sóknarpresturinn á Eyrarbakka mun taka
við verkefnum hans fyrst um sinn. - sh
Tvær unglingsstúlkur hafa kært séra Gunnar Björnsson, sóknarprest á Selfossi:
Prestur grunaður um kynferðisbrot
GUNNAR
BJÖRNSSON