Fréttablaðið - 04.05.2008, Side 14
14 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
Hvað vitið þið um æsku hvor ann-
ars?
Felix: Gunni er Þróttari, ólst upp
í því hverfi og spilaði fótbolta.
Hann á ættir að rekja austur á
land. Foreldrar hans heita Helgi
og Margrét – mikið eðalfólk – en
móðir hans er frömuður í leik-
skóla- og kennslumálum þannig
að þaðan kemur mikið inpútt í
það sem við höfum verið að gera
í okkar barnaefni. Faðir hans er
hins vegar fyrrverandi vega-
málastjóri og það varð þess vald-
andi að Gunni þekkir alla vegi á
Íslandi. Ég held að enginn nema
hann fari um landið og sýni fólki
fallega vegi. „Þessi hér sem við
sjáum fram undan er sérstaklega
vel uppbyggður.“ Hver var sá fal-
legasti aftur?
Gunni: Nú, það er vegurinn í
Langadalnum. Hann var sléttasti
vegur landsins í nokkur ár eftir
að við lögðum hann.
Felix: Svo þekki ég systkini hans
ágætlega, Nínu, Hallgrím og tví-
burabróður hans Ásmund. Kom
eitthvað dramatískt fyrir hann,
spyrðu? Ehehehehe...
Gunni: Þú mátt alveg nefna ster-
ana.
Felix: Nei, er það? Ég fer ekkert
að ræða það í einhverju viðtali
við Fréttablaðið að þú hafir farið
á stækkunarstera.
Gunni: Það hafði allavega áhrif á
æskuna.
Felix: Það hafði mikil áhrif á
hann að vera tvíburi og alls ekki
á neikvæðan máta. Og Ási er
mjög skemmtilegur.
Gunni: Ef það er verið að fiska
eftir því hvort eitthvað gerðist á
mínum uppvaxtarárum, þá gerð-
ist bara nákvæmlega ekki neitt.
Það var bara heiður himinn og
sól. Og það stendur mér fyrir
þrifum sem listamanni.
Felix: Já, þú varst ekki í svona
austurrískri fjölskyldu?
Gunni: Karlinn í kjallaranum var
kannski skrítinn en það var ekk-
ert meira en það. En að Felixi.
Hann kemur úr stórum systkina-
hópi eins og ég og á líka frábæra
foreldra. Hann er elstur sinna
systkina og það mótar hann: Er
með mikla ábyrgðartilfinningu.
Manna hans er hjúkrunarfræð-
ingur og pabbi hans var leik-
skólaforinginn í Reykjavík í 20-
30 ár og þar af leiðandi þekkti
hann mömmu mína þannig að
þegar við Felix byrjuðum saman
voru foreldrar okkar mjög
ánægðir.
Felix: Hahahaha!
Gunni: Allt þeirra tal um börn og
hvað er gott fyrir þau síaðist inn
og ég efast ekki um að það hefur
haft áhrif á okkur Felix. Felix
eyddi fyrstu árunum sínum á
Blönduósi og ég var mjög hissa
þegar hann sagði mér það því
hann er eins mikill 101-gæi og
hægt er að vera. Það er reyndar
svolítið þannig með fólk úti á
landi sem flytur í bæinn – það
gengst upp í því að búa í miðbæn-
um. Felix er kominn í einhver
borgarráð og svona – ennþá að
reyna að sanna sig í bænum þegar
hann er í rauninni bara utan af
landi. Felix er harður KR-ingur,
ólst upp í Vesturbænum og býr í
dag í húsinu sem hann ólst upp í,
ég man nú aldrei hvað gatan heit-
ir, þetta er rétt hjá Ægisíðunni.
Felix: Starhagi. Mesta ríkisbubb-
a gata Reykjavíkur núorðið.
Gunni: Þarna heyrirðu snobbið í
honum. Þetta finnst honum
gaman. Við hin sem ólumst hins
vegar upp í Reykjavík – okkur
finnst bara allt í lagi að búa í
Hafnarfirði í dag. Við þurfum
ekkert að vera að stressa okkur á
þessu. Ekki má gleyma því að
Felix varð svo poppstarna á
Íslandi með Greifunum. Í þrjú,
fjögur ár var hann aðalstjarnan.
Felix: Nei, nei, það var nú bara
eitt ár. Það halda allir að það sé
lengri tími.
Gunni: En það var sjokk fyrir
þjóðina þegar Felix ákvað að
hætta í Greifunum og fara í leik-
listarskólann.
Felix: Og þá var æskunni lokið.
Eflaust útskrifast úr bréfaskóla
Hvernig leist ykkur á hinn við
fyrstu kynni:
Gunni: Ég var nú með smáfor-
dóma gagnvart Felix þegar ég
hitti hann fyrst. „Þarna er þessi
poppstjarna sem fór í – puh – ein-
hvern leiklistarskóla í útlöndum.
Örugglega einhvern bréfaskóla.“
Þarna var maður nýútskrifaður
úr þessum, að því er manni
fannst, stórkostlega Leiklistar-
skóla Íslands og maður var svo
rosaleg stjarna. En var auðvitað
bara með minnimáttarkennd
gagnvart raunverulegu stjörn-
unni. Fordómarnir skoluðust svo
af eftir mínútukynni.
Felix: Ég var einmitt ekki með
neina fordóma og var rosalega
spenntur að fá að vinna með
Gunna. Við útskrifuðumst á sama
árinu og höfðum verið samtíma í
leiklistarnáminu, hann hér heima
og ég úti, og ég fylgdist því vel
með hans bekk og átti góða vini
þar. Ég hafði því séð þeirra sýn-
ingar og var bara rosa spenntur
fyrir þessum strák: Gunna
Helga.
Gunni: Er það?
Felix: Já, Gunni – bara sem leik-
ara.
Gunni: Já, ég veit það! Ég er bara
að heyra þetta í fyrsta sinn,
gaman að heyra þetta.
Betra tveir en einn
Hvert var ykkar fyrsta verkefni
saman?
Felix: Það var þessi talsetning á
barnaefni fyrir Stöð 2. Þættirnir
hétu: Sesam opnist þú. Við lékum
þá félaga Bert og Árna og hitt-
umst tvisvar til þrisvar í viku og
þá byrjuðu miklar samræður á
milli okkar, meðal annars um
barnaefni.
Gunni: Því þegar maður er að
lesa inn á barnaefni verður maður
svo pirraður á lélega barnaefn-
inu og aftur á móti svo glaður
yfir því góða en þessir þættir
voru frábærir.
Felix: Þennan vetur var ég svo að
vinna fyrir sjónvarpið, var með
skemmtiþátt sem hét Slett úr
klaufunum, og í kjölfarið var mér
boðið að taka við Stundinni okkar
haustið 1994. Ég sá mig einhvern
veginn ekki fyrir mér gera það
Á RÖKSTÓLUM
Aldrei vesen en stundum tuð
Gunnar Helgason var með poppstjörnu-fordóma gagnvart Felix Bergssyni þegar hann kynntist honum fyrir um 15 árum. Felix
hlakkaði hins vegar til að vinna með Gunna og í dag hafa þeir gert eina fimmtíu sjónvarpsþætti saman og eru enn að skemmta
börnum þessa lands og ekki síður foreldrum. Júlía Margrét Alexandersdóttir ræddi við félagana um útlönd, æsku og leiklist.
Felix: Ég hafði því séð þeirra sýningar og var bara rosa
spenntur fyrir þessum strák: Gunna Helga.
Gunni: Er það?
Felix: Já, Gunni - bara sem leikara.
Gunni: Já, ég veit það! Ég er bara að heyra þetta í fyrsta sinn - gaman að
heyra þetta.
AUKAVERKEFNI Á LISTANN Ef Gunn-
ar Helgason fengi að ráða myndi
hann láta Felix Bergsson stjórna
Listahátíð. Felix myndi hins vegar
vilja að Gunnar skrifaði meira.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R