Fréttablaðið - 04.05.2008, Qupperneq 15
SUNNUDAGUR 4. maí 2008 15
en fór svo að tala um þetta þegar
ég hitti Gunna næst í talsetning-
unni og hann rétti upp hönd og
sagði: Ég skal gera þetta með þér!
Og þá meikaði hugmyndin ein-
hvern veginn algjörlega sens. Og
í kjölfarið hófust þessi tvö ævin-
týraár okkar þar sem við gerðum
um fimmtíu þætti.
Jin og jang
Hvað er það sem hvor um sig
kemur með inn í „Gunna og Felix-
tvíeykið“? Hvernig bætið þið hvor
annan upp?
Gunni: Felix hefur ábyrgðartil-
finninguna og er eldri bróðirinn í
sambandinu. Þegar við erum að
skemmta sér hann um að græj-
urnar séu í lagi, er búinn að raða
lögunum upp og það er allt saman
mjög þægilegt. Ef það á hins
vegar að semja um peninga þá er
betra að ég sjái um það. Hann
skipuleggur og skipuleggur, full-
komlega, en svo þegar einhver
spyr: „Og hvað viljið þið fá borg-
að?“ „Æi, eigum við ekki bara að
gera þetta ókeypis?“
Felix: Jú, akkúrat, það er svolítið
þannig. Heitir að vera aumingi.
En ég verð nú samt að segja, að
það er svolítið augljóst að Gunni
er loftkenndari og er með brjál-
uðu hugmyndirnar á meðan ég á
það til að kippa honum svo niður.
Gunni: En það fallega við það er
að svo snýst dæmið alveg við og
Felix fær brjálaða hugmynd og
ég toppa það ekki. Það er bara
eitthvað jin og jang í gangi þarna
á milli okkar. Og aldrei vesen.
Nema einu sinni. Þegar Felix
missti sig, í eina mínútu. Og svo
búið.
Felix: Nei, við rífumst aldrei.
Tuðum kannski eins og gömul
hjón, pirrumst aðeins og svona.
En fyrr má nú vera í samstarfi
sem hefur náð yfir fimmtán ár.
Fullorðinshúmor
Þegar þið byrjuðuð að gera barna-
efni - hvernig barnaefni vissuð þið
að þið vilduð gera og hvernig
barnaefni vissuð þið að þið vilduð
alls ekki gera?
Felix: Við tókum meðvitaða
ákvörðun um það að gera efni
fyrir börn en vera hins vegar ekki
með börn í þáttunum. Annað sem
við ákváðum var að blanda saman
skemmtun og fræðslu og þriðja
atriðið sem kom inn var að við
bærum virðingu fyrir viðfangs-
efninu.
Gunni: Já, að tala ekki niður til
barnanna. Og við vildum alls ekki
innihaldslaust grín og glens held-
ur geta kennt eitthvað í leiðinni.
Án þess þó að krakkarnir hugsi:
„Já, núna er verið að kenna manni
eitthvað,“ því það setur þau í
varnarstöðu. Við gerðum það líka
meðvitað að setja inn fullorðins-
húmor enda gátum við ekki hugs-
að okkur að gera eitthvað sem
okkur sjálfum þætti ekki fyndið.
Felix: Enda nenna foreldrarnir þá
frekar að setjast niður og eyða
tíma með börnunum meðan horft
er. Við lögðum líka óneitanlega
minni áherslu á myndræna hlut-
ann og meiri á það hvað væri
skrifað og fengum rithöfunda til
að skrifa fyrir okkur. Þorsteinn
Guðmundsson skrifaði fyrir
okkur fyrsta árið og Þorvaldur
Þorsteinsson allan tíman. Hall-
grímur Helga skrifaði og Davíð
Þór Jónsson. Við vorum svo með
alveg frábæran upptökustjóra
allan tíman, hana Ragnheiði Thor-
steinsson.
Gunni: Og þættirnir hefðu ekki
orðið neitt ef hennar hefði ekki
notið við. Við vorum þríeyki,
nema að við tveir vorum þeir einu
sem sáust í mynd. Og hún var
ekkert að skafa utan af hlutunum,
hún sagði hiklaust við okkur:
„Strákar, þetta er leiðinlegt.“ Og
við urðum þá að gera eitthvað
nýtt.
Felix: Og svo er hitt þríeykið sem
við eigum með Jóni Ólafssyni tón-
listarmanni og með honum höfum
við gert ógrynnin öll af geisla-
diskum.
Útlönd
Hvað vitið þið um hvað hinn er að
gera í dag?
Felix: Gunni er á fullu að leik-
stýra.
Gunni: Tekurðu eftir því að Felix
byrjar alltaf að tala? Mér finnst
það reyndar mjög þægilegt.
Felix: Gunni er fyrst og fremst
leikstjóri og er búinn að vera að
gera það rosalega gott erlendis, í
Finnlandi, Póllandi og Rússlandi.
Og er nú í þriðja skiptið í Þjóðleik-
húsinu með leikrit: Ástin er diskó,
lífið er pönk, sem mun eflaust slá í
gegn. Síðan er hann á leiðinni til
Stokkhólms að leikstýra Hellisbú-
anum og ætlar eftir það í frí, lang-
þráð, með fjölskyldunni. Í allt
sumar verður hann svo að
skemmta börnum um allt land.
Hvert ætlar hann í frí? Kýpur, var
það ekki?
Gunni: Það byrjar á K.
Felix: Bíddu... Kó ... Kósóvó?
Gunni: Nei!
Felix: Nei, þarna hitt landið, meina
ég!
Gunni: Já, Afganistan kannski?
Felix: Nei, æ, ég veit það, ég veit
það... ekki Bosnía heldur − Króat-
ía! Því þar var Gunni nefnilega
skiptinemi.
Gunni: Jamm. En ég hef ekki hug-
mynd um hvað Felix er að gera!
Hann er bara í útlöndum! Bara
núna í vetur er hann búinn að fara
til Argentínu, Perú, Bólivíu, Venes-
úela og Kostaríku. Og Bandaríkj-
anna, Kína og Frakklands. Næst á
dagskrá er Írland. Þú veist, hvað
ertu eiginlega að gera Felix?
Felix: Ja, þegar stórt er spurt. Ég
vinn auðvitað á Rás 2 og geri efni
frá öllum þessum stöðum. En svo
hef ég verið að fylgja eiginmanni
mínum eftir sem er í rannsóknar-
leyfi frá Háskóla Íslands og hann
hefur verið á fyrirlestrarferðum.
Gunni: Ég hef fengið ímeil frá
öllum þessum stöðum.
Felix: Já. Svona „ógeðslega gaman
hjá mér en ekki þér-tölvupóst“:
„Sit úti á svölum í geðveiku
veðri.“
Stjórna og skrifa
Ef þið ættuð að lokum að bæta
inn einu verkefni á verkefnalista
hins: Hverju mynduð þið skella
þar inn?
Felix: Nú mátt þú byrja, Gunnar
Helgason.
Gunni: Gunni og Felix – the
Movie.
Felix: Mér finnst að Gunni ætti að
skrifa meira.
Gunni: Já, ég segi það sama um
Felix.
Felix: Hann er miklu betri en
Hallgrímur. Og ætti að skrifa
fyrir miðlana sjónvarp og bíó.
Gunni: Ég er nú alveg sammála
með Felix, hann hefur skrifað
barnabók og nokkur leikrit. En
eitt sem ég vil að Felix verði í líf-
inu umfram annað: Hann á að
verða stjórnandi Listahátíðar í
Reykjavík. Hann veit allt um allt,
allar listgreinar og hefur þessi
mannlegu samskipti. En þá getur
hann því miður ekkert unnið með
mér. Sem er verra.
www.hyundai.is
He
fu
r g
æ
ði
n
…Gunni og Felix fá grænar yfir laginu
sínu um Markó Póló.
…fyrsta verkefni Felix á opinberum
vettvangi var þegar hann var
fenginn til að afhenda blómvönd
á Sinfóníutónleikum á Blönduósi.
Hann var sex ára.
…fyrsta verkefni Gunna var þegar
hann var kynnir á skólaskemmtun
í Álftamýrarskóla.Gestir veltu því
fyrir sér hvernig hann komst upp
og niður af sviðinu því þangað
gekk hann með lokuð augun og
talaði allan tímann með lokuð
augun. Hann var sjö ára.
…Felix á afmæli á fyrsta degi ársins.
Gunni á hinsvegar afmæli seint,
24. október.
➜ VISSIR ÞÚ AÐ ...