Fréttablaðið - 04.05.2008, Side 29

Fréttablaðið - 04.05.2008, Side 29
Hugbúnaðarþróun Spennandi tækifæri Starfssvið Um er að ræða tvö störf: 1. Hugbúnaðarþróun með áherslu á .NET lausnir. Víðtæk þekking og reynsla af .NET og client-server lausnum nauðsynleg. Þekking á WCF samskiptalaginu og CSLA framework er mikill kostur. 2. Hugbúnaðarþróun með áherslu á Java lausnir. Viðtæk Java reynsla nauðsynleg. Aðrar hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun. • Haldgóð starfsreynsla af þróun hugbúnaðarlausna. • Samstarfshæfni, sveigjanleiki í starfi, sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Við leitum að einstaklingum sem eru búnir að sanna sig í faginu og vilja takast á við ný og ögrandi verkefni í öflugu og framsæknu teymi. Í boði er frábært tækifæri og fjölbreytt störf hjá traustu fyrirtæki við þróun fyrsta flokks lausna. Hjá TM Software er: • Frábær starfsandi og liðsheild. • Góð starfsaðstaða. • Sveigjanlegur og fjölskylduvænn vinnutími. • Virk endurmenntun í starfi. • Margvísleg tækifæri til starfsþróunar. • Gott mötuneyti, barnaherbergi, líkamsræktaraðstaða o.fl. Allar nánari upplýsingar veita Torfi Markússon, starfsmannastjóri, torfi@t.is eða Hákon Sigurhansson, framkvæmdastjóri, hakon@t.is. Umsóknir óskast sendar til starfsmannastjóra, torfi@t.is fyrir 18. maí nk. TM Software - heilbrigðislausnir sameina þekkingu á hugbúnaðargerð, klínísku vinnulagi og kröfur um öryggi sjúklinga. Við þróum Sögu, Heklu, Medicor, Pharmacy, rafræna lyfseðla og margar aðrar lausnir fyrir viðskiptavini okkar sem eru flestir spítalar, heilsugæslur og apótek landsins. TM Software er framúrskarandi alhliða upplýsinga- tæknifyrirtæki sem nýtir þekkingu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina. www.tmsoftware.isUrðarhvarf 6 | 203 Kópavogur | Sími 545 3000 | Fax 545 3001 | info@tm-software.is P IP A R • S ÍA • 8 08 76

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.