Fréttablaðið - 04.05.2008, Síða 56
ATVINNA
SUNNUDAGUR 4. maí 2008 280
Leiðbeinendur og aðstoðarleiðbeinendur hjá Vinnuskólanum
Umhverfi s- og samgöngusvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is.
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar 411 1111 fást allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi
borgarinnar.
Umhverfi s- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar er eitt af sjö fagsviðum Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni Umhverfi s- og samgöngusviðs eru: heilbrigðis- og mengunarvarnareftirlit,
náttúruvernd og garðyrkja, sorphirða frá heimilum, dýraeftirlit, Vinnuskóli Reykjavíkur,
Staðardagskrá 21 og stefnumótunar og þróunarverkefni á sviði umhverfi s- og samgöngumála.
Sjá nánar www.umhverfi ssvid.is
Vinnuskóli Reykjavíkur á Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkur
óskar eftir að ráða leiðbeinendur og aðstoðarleiðbeinendur til
starfa sumarið 2008. Vinnuskóli Reykjavíkur er útiskóli þar sem
starfið gefur einstaka möguleika á að njóta útivistar og eiga þátt í
að prýða borgina, Útmörkina og Heiðmörkina. Áhersla er lögð á
skapandi starf og fræðslu á vettvangi.
Starf leiðbeinanda felst meðal annars í: Að stjórna starfi
vinnuskólahóps, kenna nemendum rétt vinnubrögð og verkþætti í
starfi, vinna með liðsheild og vera uppbyggilegur í samskiptum við
nemendur.
Menntunar- og hæfniskröfur leiðbeinanda eru meðal annars
þær að umsækjendur verða að vera 22 ára eða eldri og hafa
framhaldsskólamenntun. Hafa áhuga til að vinna með ungu fólki
ásamt færni í samskiptum. Sjálfstæði, verkvit, og skipulagning eru
nauðsynlegir styrkleikar í fari umsækjenda.
Starf aðstoðarleiðbeinanda felst meðal annars í: Að aðstoða
leiðbeinanda við daglegt starf viðkomandi hóps. Aðstoðar-
leiðbeinandi er liðtækur í þau verk sem þarf að vinna að mati
leiðbeinanda og hann tekur virkan þátt í starfi hópsins.
Hæfniskröfur aðstoðarleiðbeinanda eru meðal annars þær að
umsækjendur verða að vera 17 ára og eldri, hafa samstarfsvilja,
áhuga á að vinna með ungu fólki og vilja til að ávinna sér nýja
þekkingu.
Launakjör fara að kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og
Reykjavíkurborgar. Umsækjendur sækja um rafrænt á sameiginleg-
um umsóknarvef borgarinnar: www.vuf.is.
Upplýsingar um störfin veitir:
Ragna Sigursteinsdóttir, ragna.sigursteinsdottir@reykjavik.is
Sími: 4118500.
Umsóknarfrestur rennur út 25. maí 2008
VANTAR ÞIG
Helgarvinnu?
Húsasmiðjan hf. er stærsti
söluaðili byggingarvara á
Íslandi og í hópi stærstu
fyrirtækja landsins.
Húsasmiðjuverslanir
eru 21 á landsvísu. Í
verslunum okkar höfum við
á boðstólnum yfir 100.000
vörutegundir.
Hjá Húsasmiðjunni starfa
að jafnaði um 1000
manns á öllum aldri. Við
leggjum mikla áherslu á að
starfsmenn eigi þess kost
að eflast og þróast í starfi.
www.husa.is
um Húsasmiðjuna
Húsasmiðjan hvetur alla,
á hvaða aldri sem er sem
vilja starfa hjá traustu
og góðu fyrirtæki til að
sækja um.
Fyrir alla
Viltu vinna þér inn aukapening
og vinna hjá góðu fyrirtæki?
Um er að ræða þjónustu og verslunarstörf.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Sendið umsóknir til Guðrúnar Kristinsdóttur, gudrunk@husa.is
Einnig er hægt að sækja um störfin á
heimasíðu Húsasmiðjunnar - www.husa.is
Unnið er á laugardögum 9-18 eða
sunnudögum 10-18.
STYRKIR
Auglýsingasími
– Mest lesið