Fréttablaðið - 04.05.2008, Síða 76
20 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ættir þú ekki að
fara að slaka á í
fótboltanum?
Neiii... Ég vil
halda mér í
formi.
Palli, hefurðu séð sólgler-
augun mín?
Ég var með
þau rétt
áðan...
Ó! Ég held á þeim!
Stundum er
ég ótrúlega
vitlaus.
Einmitt!
Fyrirgefðu. Þetta átti
ekki að
hljóma eins
og ég meinti
það.
Gervitennur
fyrir alla
Þetta er óvenjuleg beiðni,
en við skulum athuga
hvað við getum gert.
Íííískr!
Og nú, stuttur einsöngur...
Frábært.
Ég vona að
hann verði
svo stuttur að
ég missi af
honum.
Krakkarnir hafa
gefið í skyn að
þau langi í hund.
Hvernig
hafa þau
gert það?
Klór Klór
Klór
Klór
Klór
Á frekar áberandi hátt.
Klór
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
13
41
0
4
/0
8
HLUNNINDI SEM FYRIR-
TÆKJASAMNINGUR VEITIR:
• Sérstakur ferðaráðgjafi hefur
umsjón með hverju fyrirtæki
• Neyðarnúmer sem er
opið allan sólarhringinn
- alla daga ársins
• Afsláttur sem býðst
af fargjöldum til áfanga-
staða Icelandair
• Nákvæmt viðskiptayfirlit
á vefnum
+ Skráðu fyrirtækið þitt
núna á www.icelandair.is
ÞJÓNUSTA
SEM SPARAR
FYRIRTÆKJUM
TÍMA OG
PENINGA
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?
Á hverju einasta ári er
það jafnskemmtilegt
þegar daginn fer að
lengja og sólin lætur sjá
sig. Gott ef það er ekki
bara enn skemmtilegra í
ár en síðustu ár, enda vet-
urinn með eindæmum leiðinlegur.
Undanfarna daga hefur veðrið í
höfuðborginni verið alveg hreint
yndislegt. Ekta veður til þess að
vera úti, fara í göngutúr eða sund
eða bara rölta um miðbæinn og
njóta lífsins. Miðbærinn vaknar
nefnilega úr dvala þegar sólin fer
að skína, allt í einu er hann fullur af
fólki og verður fallegur á nýjan
leik. Meira að segja niðurnídd hús
við Hverfisgötu líta mun betur út
þegar sólin skín.
Sannir Íslendingar vita líka að
þeim er hollast að nýta hvern ein-
asta sumardag til hins ýtrasta, því
það er aldrei að vita hvenær annar
slíkur dagur kemur. Þess vegna er
fátt meira pirrandi fyrir sóldýrk-
andi Íslending en að geta ekki notið
þessara daga. Sú er einmitt raunin
hjá fjölmörgum Íslendingum núna
– það eru nefnilega próf í flestum
menntastofnunum landsins. Ég er
þar engin undantekning. Nú hefnist
manni fyrir það að hafa látið sjálft
háskólanámið sitja á hakanum í
allan vetur, hafa unnið of mikið og í
raun gert of mikið af öllu öðru en
því að sitja yfir bókunum. Ástandið
er þannig að það er eins gott að
sitja við á Þjóðarbókhlöðunni eða
öðrum álíka stöðum myrkranna á
milli til þess að bjarga því sem
bjargað verður. Og þá er ekki í boði
að skreppa út í góða veðrið, alla-
vega ekki í meira en hálftíma á
dag.
Háskólanemar eru nú tiltölulega
heppnir miðað við aðra. En mikið
ósköp vorkenni ég þeim sem eru í
framhaldsskólum og börnunum í
grunnskólunum sem þurfa að húka
yfir bókunum inni við í fleiri vikur
til viðbótar.
Við ættum nú að sjá sóma okkar í
því að leyfa öllum að njóta góða
veðursins þegar það loksins kemur.
Skólum er stundum lokað á veturna
vegna slæms veðurs, af hverju ekki
bara að loka þeim líka þegar veðrið
er einfaldlega of gott til þess að
hægt sé að einbeita sér?
STUÐ MILLI STRÍÐA Bönnum próf á vordögum
ÞÓRUNN ELÍSABET BOGADÓTTIR KEMST EKKI ÚT Í GÓÐA VEÐRIÐ