Fréttablaðið - 04.05.2008, Page 82
26 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
Mallorca
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Enska úrvalsdeildin
Man. Utd.-West Ham 4-1
1-0 Cristiano Ronaldo (3.), 2-0 Cristiano Ronaldo
(24.), 3-0 Carlos Tevez (26.), 3-1 Dean Ashton
(28.), 4-1 Michael Carrick (59.).
Aston Villa-Wigan 0-2
0-1 Antonio Valencia (52.), 0-2 Antonio Valencia
(63.).
Blackburn-Derby 3-1
0-1 Kenny Miller (19.), 1-1 Roque Santa Cruz
(45.), Jason Roberts (47.), 3-1 Roque Santa Cruz
(77.).
Fulham-Birmingham 2-0
1-0 Brian McBride (52.), 2-0 Erik Nevland (87.).
Middlesbrough-Portsmouth 2-0
1-0 Chris Riggott (40.), 2-0 Sanli Tuncay (53.).
Reading-Tottenham 0-1
0-1 Robbie Keane (16.).
Bolton-Sunderland 2-0
1-0 El-Hadji Diouf (42.), 2-0 sjálfsmark (83.).
STAÐAN Í DEILDINNI
Man. Utd 37 26 6 5 78-22 84
Chelsea 36 24 9 3 62-25 81
Arsenal 36 22 11 3 72-31 77
Liverpool 36 19 13 4 64-28 70
Everton 36 18 8 10 52-31 62
Aston Villa 37 16 11 10 69-49 59
Blackburn 37 15 13 9 49-44 58
Portsmouth 37 16 9 12 48-39 57
Man. City 36 15 10 11 44-44 55
West Ham 37 13 9 15 40-48 48
Tottenham 37 11 13 13 66-59 46
Newcastle 36 11 10 15 44-60 43
Wigan 37 10 10 17 34-49 40
M‘brough 37 9 12 16 35-52 39
Sunderland 37 11 6 20 36-58 39
Bolton 37 9 9 19 35-53 36
Fulham 37 7 12 18 37-60 33
Reading 37 9 6 22 37-66 33
Birmingham 37 7 11 19 42-61 32
Derby 37 1 8 28 20-85 11
Sænska úrvalsdeildin
Elfsborg-Helsingborg 1-0
Helgi Valur Daníelsson lék allan leikinn fyrir
Elfsborg en Ólafur Ingi Skúlason er meiddur.
Norska úrvalsdeildin
Tromsø-Brann 0-0
Kristján Örn Sigurðsson var í byrjunarliði Brann
en var skipt út af í hálfleik fyrir Ólaf Örn Bjarna-
son og Gylfi Einarsson lék síðustu tíu mínúturnar.
Danska úrvalsdeildin
AGF-OB 0-2
Kári Árnason lék allan leikinn fyrir AGF.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Manchester United komst
skrefi nær því að verja titilinn í
gær eftir auðveldan 4-1 sigur gegn
West Ham. Botnbarátta deildar-
innar stendur nú sem hæst og þar
er Reading í kröppum dansi ásamt
Birmingham en hagur Bolton og
Fulham vænkaðist til mikilla
muna.
Það var sannkallaður meistara-
bragur á United á Old Trafford í
gær og Cristiano Ronaldo skoraði
fyrsta mark leiksins strax á 3.
mínútu. Ronaldo fékk þá boltann
úti á hægri kantinum, náði óáreitt-
ur að koma sér í skotstöðu á hægra
vítateigshorninu og Portúgalinn
snjalli þakkaði fyrir sig með góðu
skoti á nærstöng sem Robert
Green átti ekki möguleika á að
verja. Ronaldo var aftur á ferðinni
á 24. mínútu og skoraði þá sitt 40.
mark á tímabilinu og í þetta skipt-
ið afgreiddi hann boltann í netið
með hnénu eftir fyrirgjöf Owens
Hargreaves. Stórskotahríð United
hélt áfram tveimur mínútum síðar
þegar Carlos Tevez skoraði fallegt
mark með þrumuskoti langt fyrir
utan teig.
West Ham náði þó að svara fyrir
sig stuttu síðar þegar Dean Ashton
minnkaði muninn með glæsilegri
hjólhestaspyrnu og hagur gest-
anna vænkaðist enn frekar í lok
fyrri hálfleiks þegar Luis Nani
fékk að líta rauða spjaldið. Nani
skallaði þá Lucas Neill og var
réttilega vísað af velli en ástralski
varnarmaðurinn var þó ekki alveg
saklaus í atvikinu en slapp með
skrekkinn.
Seinni hálfleikur bauð hins
vegar aldrei upp á neina spennu
því United sýndi gríðarlegan styrk
sinn og stjórnaði leiknum fullkom-
lega og engu líkara en West Ham
væri leikmanni færra heldur en
hitt. Michael Carrick skoraði svo
fjórða mark United þegar hálftími
lifði leiks en það reyndist síðasta
mark leiksins og þægilegur sigur
United því í höfn.
Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri United, var að vonum sáttur
í leikslok.
„Þetta var stórkostlegur dagur
fyrir Manchester United og þessi
leikur undirstrikar bara frábæra
spilamennsku okkar í vetur. Við
höfum þó ekki unnið neitt enn,“
sagði Ferguson varkár í leikslok.
Fallbaráttan harðnar
Fulham vann Birmingham 2-0 í
sannkölluðum fallbaráttuslag þar
sem Brian McBride og Erik Nev-
land skoruðu mörkin. Sigur Ful-
ham þýddi að félagið komst loks-
ins upp úr fallsæti á kostnað
Íslendingaliðsins Reading sem
tapaði 0-1 gegn Tottenham. Ívar
Ingimarsson var í byrjunarliði
Reading í leiknum en Brynjar
Björn Gunnarsson var ekki í leik-
mannahópnum að þessu sinni.
Grétar Rafn Steinsson var í
byrjunarliði Bolton sem náði í þrjú
mikilvæg stig með 2-0 sigri gegn
Sunderland en Heiðar Helguson
var ekki í leikmannahópnum. El-
Hadji Diouf skoraði á 42. mínútu
og Daryl Murphy skoraði sjálfs-
mark í lokin og þar við sat.
Evrópudraumur Villa úr sögunni?
Aston Villa náði ekki að setja
pressu á Everton í baráttunni um
fimmta sætið og tapaði 0-2 fyrir
Wigan sem gulltryggði þar með
sæti sitt í deildinni. Luis Antonio
Valencia skoraði bæði mörkin.
Everton þarf nú aðeins eitt stig úr
tveimur leikjum til að tryggja sér
fimmta sætið.
Hermann Hreiðarsson og félag-
ar í Portsmouth töpuðu 2-0 fyrir
Middlesbrough sem náðu þar með
að tryggja áframhaldandi veru í
úrvalsdeildinni. omar@frettabladid.is
United með aðra hönd á titlinum
Manchester United vann sannfærandi sigur á West Ham í gær og hefur nú sett pressu á Chelsea sem heim-
sækir Newcastle á morgun. Íslendingaliðið Reading er komið í slæma stöðu í botnbaráttunni eftir tap gegn
Tottenham en Bolton er í talsvert betri málum eftir sigur liðsins gegn Sunderland.
SNILLINGUR Cristiano Ronaldo sýndi enn og aftur snilli sína á Old Trafford í gær og
skoraði tvö mörk fyrir United. Ronaldo, sem var kosinn leikmaður tímabilsins af bæði
leikmönnum og blaðamönnum, er kominn með 40 mörk í vetur. NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Það var mikið um að
vera í úrslitakeppni NBA-deild-
arinnar í körfubolta í fyrrinótt
þar sem Cleveland Cavaliers og
Utah Jazz tryggðu sér farseðil-
inn í aðra umferð en meistara-
efnin í Boston Celtics töpuðu
gegn Atlanta Hawks og því þarf
oddaleik til að skera úr um hvort
liðið kemst áfram.
Cleveland sigraði Washington
Wizards 105-88 og einvígið því
samanlagt 4-2 þar sem enginn
annar en LeBron James fór á
kostum. James var með þrefalda
tvennu, 27 stig, 13 fráköst og 13
stoðsendingar en næstir komu
Wally Szczerbiak með 26 stig og
Daniel Gibson með 22 stig. Þetta
var þriðja árið í röð sem Cleve-
land slær Washington út úr
fyrstu umferð úrslitakeppninn-
ar.
Utah sigraði Houston Rockets
113-91 og einvígið því samanlagt
4-2 og munaði þar mest um þriðja
leikhlutann í leiknum þar sem
heimamenn í Utah skoruðu 27
stig á móti 11 stigum gestanna.
Utah fékk skell 95-69 í fimmta
leiknum í Houston og ætlaði
greinilega ekki að láta það koma
fyrir aftur.
„Þeir jörðuðu okkur á sínum
heimavelli í síðasta leik og við
mættum því ákveðnir til leiks og
kláruðum dæmið,“ sagði Jerry
Sloan, þjálfari Utah, í leikslok í
fyrrinótt en Utah mætir LA
Lakers í annarri umferð.
Það er óhætt að fullyrða að
engum hafi dottið í hug að ein-
vígi Boston og Atlanta myndi
fara í oddaleik eftir að Boston
vann tvo fyrstu leikina auðveld-
lega en það varð engu að síður
staðreynd eftir 103-100 sigur
Atlanta í fyrrinótt. Joe Johnson
var drjúgur fyrir Atlanta á loka-
mínútu leiksins og setti niður
þriggja stiga skot og tvö víta-
skot. Rajon Rondo reyndi þriggja
stiga skot fyrir Boston á lokasek-
úndunum sem geigaði og lokatöl-
ur eins og segir 103-100 fyrir
Atlanta. Sigurvegarinn í odda-
leiknum mætir Cleveland í ann-
arri umferð. - óþ
Ótrúlegir hlutir að gerast í úrslitakeppni NBA:
Atlanta kemur enn
og aftur á óvart
ÓVÆNT Fáir áttu von á því að Atlanta myndi koma til baka gegn Boston eftir að
hafa lent 2-0 undir í einvíginu en fram undan er oddaleikur. NORDIC PHOTOS/GETTY