Fréttablaðið - 04.05.2008, Qupperneq 86
30 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Hann er búinn að vera syngj-
andi og leikandi síðan hann gat
talað og labbað. Hann kunni
öll ævintýrin utanbókar og fór
í karakter. Hann er ofsalega
ljúfur þessi elska og má ekkert
aumt sjá. Hefur alltaf verið
þannig.“
Guðbjörg Stefánsdíttir er móðir Eyþórs
Inga Gunnlaugssonar, sigurvegara í Band-
inu hans Bubba.
Hvað er að frétta? Allt glimrandi gott. Ég frumsýndi Auga fyrir auga
á fimmtudaginn, troðfyllti sal 1 í Háskólabíói tvisvar sinnum og fékk
rífandi góðar undirtektir.
Augnlitur: Annað er blátt og hitt er grænt.
Starf: Öll möguleg, ég hef prófað ýmislegt. Og er í skóla.
Fjölskylduhagir: Ég á ekki kærustu í augnablikinu, en á frábæra
mömmu og góða fjölskyldu.
Hvaðan ertu? Ég er borgarbarn, fæddur og uppalinn í Reykjavík.
Ertu hjátrúarfullur? Já, ég myndi segja það. Ef það er eitthvað merki-
legt að gerast er ég hjátrúarfullur, en ekki hversdagslega. Ef svartur
köttur hlypi fyrir mig á frumsýningardegi myndi ég bilast.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Klárlega Næturvaktin, eigum við að
ræða það eitthvað?
Uppáhaldsmatur: Grjónagrauturinn hans pabba.
Fallegasti staðurinn: Ég á mér engan uppáhaldsstað.
iPod eða geislaspilari: Ég er geislaspilaramaður. Ég hlusta bara á eina
plötu í einu, á hverjum degi, stanslaust, þangað til ég kann hana utan
að. Þá er geislaspilarinn betri.
Hvað er skemmtilegast? Að gera aðra glaða.
Hvað er leiðinlegast? Að valda öðrum vonbrigðum.
Helsti veikleiki: Hvað ég á erfitt með að segja nei við
fólk.
Helsti kostur: Ég læt aðra dæma um það.
Helsta afrek: Þessa dagana er það líklega frum-
sýningin.
Mestu vonbrigðin: Þegar ég fattaði hvað tíminn
líður hratt.
Hver er draumurinn? Að lifa lífinu hamingju-
samur, sama hvað ég tek mér fyrir hendur.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Úff, Pétur
Jóhann og Sveppi eru fyndnustu menn sem ég
hef hitt.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar fólk
heldur einhverju fram, en ég veit betur.
Hvað er mikilvægast? Að vera góð manneskja.
HIN HLIÐIN ÁRNI BEINTEINN ÁRNASON, LEIKSTJÓRI MEÐ MEIRU
Auga fyrir auga fékk rífandi undirtektir
Nýtt myndband tenórsins Garðars Thors Cortes
við lagið When You Say You Love Me er komið á
netið og er hægt að nálgast það bæði á Myspace-
síðu hans og á Youtube.com. Lagið verður að finna
á væntanlegri plötu Garðars Thors sem heitir
einmitt When You Say You Love Me og kemur út
23. júní.
Myndbandið er tekið upp að öllu leyti á Eng-
landi og sýnir Garðar við upptökur á laginu ásamt
sinfóníuhljómsveit, auk þess sem skyggnst er á
bak við tjöldin á tónleikaferðalagi hans.
Garðar hefur verið duglegur að undanförnu við
að kynna plötuna og fram undan hjá honum eru
viðtöl við hin ýmsu dagblöð, þar á meðal Sunday
Times og Surrey Live Magazine. Einnig mun hann
flytja nýja lagið sitt í þættinum This Morning á
sjónvarpsstöðinni ITV1 22. maí næstkomandi.
Nýtt myndband frá Garðari
GARÐAR THOR CORTES Garðar Thor
sendir frá sér sína aðra sólóplötu í
næsta mánuði.
12.12.1994
Síma- og netfyrirtækin Hive og Sko
hafa sameinast og samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins verður
tilkynnt um nýtt nafn á fyrirtækinu
um helgina. Nýja fyrirtækið mun
bera hið gamalkunna nafn Tal.
Sigmar Vilhjálmsson, sem margir
þekkja betur sem Simma í Idol, er
markaðsstjóri hins nýja fyrirtækis
og hann segir aðspurður Tal vera
hið besta nafn en neitar að stað-
festa þetta. Til standi að halda fund
með starfsmönnum, garðveislu hjá
forstjóra fyrirtækisins, Hermanni
Jónassyni, seinna í dag og þar verði
tilkynnt um fyrirhugaðar breyting-
ar. Sigmar segir hins vegar ekkert
launungarmál að hið nýja síma-
fyrirtæki ætli að bjóða notendum
þrjátíu prósentum lægra verð en
nú tíðkast á heimasímum, gsm-
símum og adsl-tengingu.
„Við getum það því við erum með
minni yfirbyggingu, við skilgrein-
um okkur ekki sem tæknifyrirtæki
heldur markaðs- og þjónustufyrir-
tæki. Kostnaður við framþróun á
tæknilegum lausnum er mikill hjá
þeim fyrirtækjum sem við stefnum
nú ótrauð í samkeppni við: Símann
og Vodafone, en við ætlum að
sleppa slíku og leggja áherslu á
lægri símreikninga,“ segir Sigmar
sem var staddur í Flórída þegar
Fréttablaðið náði af honum tali.
Hann bendir á að Hive/Sko sé sam-
kvæmt reikisamningum að keyra á
sama dreifikerfi og Síminn og Vod-
afone þannig að um sömu gæði
sambands verði að ræða.
Teymi á 51 prósenta hlut í Hive/
Sko og Sigmar segir rétt að fyrir-
tækið sé að vissu leyti í samkeppni
við sjálft sig á markaði en Teymi á
einnig ráðandi hlut í Vodafone. „Við
lítum þannig á að ekkert sé að því
að vera í harðri samkeppni við Voda-
fone, ekki frekar en að 24 stundir
séu í samkeppni við Moggann eða
Bónus við Hagkaup.“
Erfitt hefur reynst nýjum fyrir-
tækjum að hasla sér völl á þessum
markaði en þar nýtur Síminn ráð-
andi stöðu sinnar. Erfitt virðist
vera að fá fólk til að færa sig milli
fyrirtækja þrátt fyrir ýmis boð um
lægri reikninga. Sigmar segir þetta
rétt. „En við erum að tala um raun-
verulega lækkun símreikninga. Og
þegar sími og net eru orðin eitthvað
sem menn komast vart af án og orð-
inn hlutfallslega hár útgjaldaliður
hverrar fjölskyldu hljóta menn að
fara að skoða betur reikningana.
Og komast að raun um að ekki er
svo mikið mál að færa sig á milli ef
svo ber undir.“
jakob@frettabladid.is
SIGMAR VILHJÁLMSSON: ÆTLAR AÐ LÆKKA SÍMREIKNINGANA
Hive og Sko verða Tal
SIGMAR VILHJÁLMSSON Markaðsstjóri hins nýja símafyrirtækis segir það raunverulega ætla að lækka símreikningana.
Ástin er diskó, lífið er pönk, söng-
leikur Hallgríms Helgasonar, var
frumsýndur í Þjóðleikhúsinu á
fimmtudaginn. Þar er unglinga-
heimur Reykjavíkur í kringum
1980 sýndur í skoplegu ljósi með
söng og dans og diskó- og pönklög-
um. Í salnum mátti sjá gamla
pönkara og „diskara“. Hvernig
leist þeim á?
„Við hjónin skemmtum okkur
bæði mjög vel,“ segir Unnur
Steinsson. „Ég var mikið í Holly-
wood, tók þátt í fegurðarsam-
keppnum og sýndi tískuföt og því
endurupplifði ég ákveðið tímabil í
lífi mínu í gegnum verkið. Ég held
að fólk á mínu reki og yngra muni
flykkjast á sýninguna, enda er tón-
listin flott og krakkarnir sem leika
flottir. Maður á að fara á þessa
sýningu með það í huga að maður
sé að fara að skemmta sér.“
Unnur er enn á diskólínunni í
lífinu: „Pönkið kom og fór
en diskóið lifið,“ segir
hún. „Það má alltaf hafa
gaman af diskóinu og
þetta er ennþá aðal-
danstónlistin. Pönk
hlustaði ég hins
vegar ekkert á fyrr
en Bubbi startaði
Egóinu.“
Skáldkonan Didda
var í pönkbandinu
Englaryk og
samdi texta fyrir
Vonbrigði,
meðal annars
hið sígilda „Ó Reykjavík“. Hún
deilir ekki skoðunum Unnar á
söngleiknum. „Mér fannst þetta
bara lélegt,“ segir hún. „Ég hefði
valið öðruvísi í hlutverkin, til
dæmis fengið Friðrik Ómar í stað-
inn fyrir Sveppa sem diskókóng.
Sveppi er álíka sexí og búálfur. Ég
hefði skemmt mér betur ef leikar-
arnir hefðu verið frá þessu tíma-
bili og verið að leika niður fyrir
sig í aldri. Mér fannst vanta mikið
upp á skilning á attitjúdi pönkar-
anna. Það vantaði allt innsæi og
virðingu fyrir þessari tónlist, enda
sýningin unnin af mönnum sem
fengu inngöngu í hvorugan hóp-
inn. Þetta var allt voðalega ein-
faldað og bara hangið í klisjun-
um.“
Didda segist aldrei hafa verið
almennilega á móti diskóinu.
„Knock on Wood með Amy Stew-
art er til dæmis alveg frábært. En
pönkið gaf manni brú inn í það að
skoða fleira en bara það sem var
spilað í útvarpinu.“
- glh
Skiptar skoðanir á
diskó- og pönksöngleik
FLOTT TÓN-
LIST, FLOTTIR
KRAKKAR
Unnur Steinson
skemmti sér vel.
HANGIÐ Í
KLISJUNUM
Didda var ekki
yfir sig hrifin.