Fréttablaðið - 05.06.2008, Síða 4
4 5. júní 2008 FIMMTUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Tvö fíkniefnamál
komu upp á Patreksfirði um
síðustu helgi. Í öðru þeirra var
hald lagt á meint hass en í hinu
lagði lögreglan hald á amfetamín
auk vopna og þeirra á meðal
rafbyssu.
Fundust efnin og vopnin við
húsleit en lögreglan á Vestfjörð-
um naut liðstyrks frá fíkniefna-
deild lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu auk manna með
fíkniefnaleitarhunda frá Bolung-
arvík og Blönduósi. Lögreglan
rannsakar nú hvernig mennirnir
sem handteknir voru í tengslum
við málið komust yfir rafbyss-
una. - ovd
Vopn á Patreksfirði:
Lögðu hald
á rafbyssur
BAUGSMÁL Vefsíða Jóns Geralds
Sullenbergers um Baugsmálið
hefur verið mikið sótt frá því hún
var sett upp fyrir síðustu helgi.
Samkvæmt
sjálfvirkum
teljara á síðunni
voru flettingar á
henni að nálgast
50 þúsund í gær.
Jón Gerald er
einn sakborn-
inga í Baugsmál-
inu, en lengst
framan af var
hann vitni í
málinu. Á síðunni baugsmalid.is
birtir hann gögn úr málinu og
leggur út af þeim í pistlum.
Málflutningur í því sem væntan-
lega verður lokakaflinn í málinu fór
fram í Hæstarétti 14. og 15. maí.
Dóms er að vænta á næstunni. - bj
Síða Jóns Geralds mikið sótt:
Tæplega 50 þús-
und flettingar
JÓN GERALD
SULLENBERGER
ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Grill og
ostur
– ljúffengur
kostur!
Í Fréttablaðinu í gær var ranglega sagt
að Annþór Kristján Karlsson hefði
strokið úr Hegningarhúsinu við Skóla-
vörðustíg. Hið rétta er að hann strauk
af lögreglustöðinni við Hverfisgötu.
LEIÐRÉTTING
Á hægum batavegi
Drengurinn sem brenndist í spreng-
ingu í húsbíl í Grindavík á föstudags-
kvöldið er kominn úr öndunarvél og
er að sögn lækni, á hægum batavegi á
gjörgæsludeild Landspítalans. Dreng-
urinn er á þriðja ári og var með afa
sínum í húsbílnum þegar slysið varð.
Hann brenndist illa á höfði og hönd-
um. Afi hans, maður á sjötugsaldri,
slasaðist einnig en ekki alvarlega.
SLYS
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhofen
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
13
16
16
14
15
12
12
12
13
8
6
5
6
6
5
5
6
12
6
6
6
12
12
20°
22°
27°
25°
23°
25°
23°
20°
21°
27°
22°
19°
18°
18°
23°
26°
24°
20°
12
13
16
Á MORGUN
3-8 m/s
LAUGARDAGUR
Vaxandi SA-átt 8-13
m/s sunnan til
15
13 16
15
1112
BEST NYRÐRA
Í dag og næstu
daga eru veð-
ur-horfurnar
einna bestar fyrir
norðanvert landið.
Bjart með köfl um,
yfi rleitt hægur
vindur og hlýindi
einkenna veður-
lagið þar fram á
laugardag. Aðfarar-
nótt sunnudagsins
gengur úrkomuloft
norður yfi r land og
þá kann að dropa
nyrðra fyrir hádegi.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
RIGA, AP Leiðtogar hinna ellefu
aðildarríkja Eystrasaltsráðsins,
þar á meðal Geir H. Haarde
forsætisráðherra, samþykktu á
fundi sínum í Riga í Lettlandi í
gær ályktun þar sem þeir strengja
þess heit að efla samstarfið milli
ríkja sinna með það að markmiði
að gera þennan norðlæga heims-
hluta að framsæknasta efnahags-
svæði heims.
Ráðherrarnir sögðu að umhverf-
isöryggi og hagþróun yrðu áfram
þau mál sem nytu mests forgangs
í samstarfi landanna.
Eystrasaltsráðið var stofnað
árið 1992 en aðild að því eiga
Norðurlöndin fimm, Eystrasalts-
ríkin þrjú auk Rússlands, Póllands
og Þýskalands. - aa
Leiðtogafundur Eystrasaltsráðs:
Framsæknasta
efnahagssvæðið
RÁÐGAST Í RIGA Geir Haarde og hinn
danski kollegi hans, Anders Fogh Rasm-
ussen, stinga saman nefjum í Riga í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVEITARSTJÓRNIR „Góður rómur var
gerður að fundinum,“ segir í
fréttatilkynningu Reykjavíkur-
borgar um
samráðsfund
um málefni
miðborgarinnar
sem haldinn var
í gær.
Á fundinum
var rætt um að
auka öryggi og
friðsæld í
miðbænum með
skipulögðu
samstarfi
lykilaðila í sumar.
Ólafur F. Magnússon borgar-
stjóri og Jakob Frímann Magnús-
son, framkvæmdastjóri miðborgar-
mála, stóðu fyrir fundinum sem
hátt í 30 manns sátu. Meðal fundar-
manna var Stefán Eiríksson lög-
reglustjóri og hagsmunaaðilar. - gar
Samráðsfundur um miðborg:
Meira öryggi og
aukin friðsæld
JAKOB F.
MAGNÚSSON
SJÁVARÚTVEGUR „Svo virðist sem þetta sé tilraun til
að smygla hvalkjöti til Japans. Fyrirtækið sem
skráð er á skjölum varðandi innflutninginn hætti
störfum árið 2004 en var endurvakið fyrir aðeins
tveimur vikum sem greiða við Kristján. Það höfum
við staðfest með samtölum við forstjóra fyrirtæk-
isins,“ segir Frode Pleym, talsmaður Grænfrið-
unga, um sölu hvalaafurða frá Íslandi til Japans.
Pleym fullyrðir að Kristján notfæri sér vinskap
við Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra til
að flytja kjötið út. Grænfriðungar fullyrða að
ekkert innflutningsleyfi sé til staðar og hvetja
japönsk stjórnvöld til að banna dreifingu á kjötinu.
„Ef innflytjandi hefur ekki rétta pappíra kemur
hann vöru sinni ekki inn í landið,“ segir Kristján
Loftsson, forstjóri Hvals hf. „Halda menn virki-
lega að þegar komið er með vöru til Japans og hún
sett þar í frystigeymslu sé það mögulegt án þess
að fara rétta boðleið, til dæmis án vitundar
tollyfirvalda? Gott dæmi er innflutningur á býflug-
um á Austfjörðum í vikunni. Þetta er nákvæmlega
það sama.“
Í fréttatilkynningum Grænfriðunga í gær kemur
fram að fyrirtækið, Asian Trading Co., hafi verið
endurvakið sérstaklega til innflutnings á hvalaaf-
urðunum. Það hafi verið gert í greiðaskyni við
Kristján Loftsson en í raun sitji vörurnar í
frystigeymslum þar í landi án kaupanda.
„Þetta er alveg rétt að fyrirtækið var endurvak-
ið vegna þessa innflutnings,“ segir Kristján. „Það
er ekkert óeðlilegt við það. Að sjálfsögðu þarf að
vera viðtakandi í Japan og ég nýti mér þau
viðskiptasambönd sem ég hef átt í landinu um
langt skeið; menn sem þekkja verslun með fisk- og
hvalafurðir.“
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra er
nefndur á nafn í skeytum Grænfriðunga þar sem
sagt er að um smygl sé að ræða. Spurður um þetta
atriði segir Frode Pleym að í ljósi vinskapar
Kristjáns og Einars dragi hann þá ályktun að
ráðherrann sé að gera útflytjanda greiða án þess
að taka með í reikninginn þann skaða sem slíkt
muni hafa fyrir Íslendinga.
„Fullyrðingar Grænfriðunga um mína hlutdeild
eru lygi,“ segir Einar. „Er það glæpur þegar
einhver flytur vöru á markað þar sem eftirspurn
er eftir henni? Þetta mál er þannig til komið að
veiðar voru heimilaðar 2006 og alltaf var gert ráð
fyrir að afurðirnar yrðu seldar. Auðvitað hlaut
framleiðandinn að markaðssetja vöruna og þurfti
ekki leyfi frá mér til þess.“
svavar@frettabladid.is
Grænfriðungar segja
kjötið smyglvarning
Fullyrt er af Grænfriðungum að hvalaafurðum hafi verið komið til Japans án
þess að kaupandi sé fyrir hendi. Margt sem samtökin segja grunsamlegt útskýr-
ir Kristján Loftsson sem nauðsynlegt ferli í viðskiptum og blæs á „áróðurinn“.
Í HVALFIRÐI Veiðarnar haustið 2006 vöktu heimsathygli og
margir Íslendingar fóru til að sjá hvalskurð.
KRISTJÁN
LOFTSSON
EINAR K.
GUÐFINNSSON
FRODE
PLEYM
RÓM, AP Ban Ki-Moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, segir allt að 20 milljarða
bandaríkjadala, andvirði um 1.500
milljarða króna, kunni að vera
þörf árlega til að auka matvæla-
framleiðslu í heiminum nægilega
til að fyrirbyggja hungursneyð í
þeim löndum sem hækkandi mat-
væla- og eldsneytisverð snertir
verst.
Þessi orð lét Ban falla á öðrum
degi ráðstefnu Matvælastofnunar
SÞ í Róm um aðgerðir til að bregð-
ast við hækkun matvælaverðs.
Umræður um það að hve miklu
leyti framleiðsla lífræns eldsneyt-
is væri orsakavaldur að hinu
hækkandi heimsmarkaðsverði á
ýmsum lífsnauðsynjum voru mjög
áberandi á ráðstefnunni í gær.
Ed Schaefer, landbúnaðarráð-
herra Bandaríkjanna, sagði þó í
það stefna að málamiðlunarsam-
komulag næðist um þátt lífræns
eldsneytis. Schaefer hafði áður
sagt að hann teldi aðeins um 2-3
prósent verðhækkananna að rekja
til þessa þáttar. Aðrir aðilar, svo
sem Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn,
segja vísbendingar um að á bilinu
15-30 prósent hækkananna sé að
rekja til framleiðslu lífræns elds-
neytis.
Ráðstefnunni lýkur í dag,
fimmtudag. - aa
Ráðstefna Matvælastofnunar SÞ um viðbrögð við matvælaverðshækkunum:
Stórfé þarf til að auka framboð
RÁÐFÆRST Í RÓM Ban Ki-moon talar á
ráðstefnunni í gær. Jacques Diouf, fram-
kvæmdastjóri FAO, fylgist með.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GENGIÐ 04.06.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
154,2188
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
77,15 77,51
150,86 151,6
119,3 119,96
15,987 16,081
14,942 15,03
12,77 12,844
0,7366 0,741
124,8 125,54
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR