Fréttablaðið - 05.06.2008, Page 50
8 ● tíska&lífsstíll
Við vinnslu lokaverkefnisins fékk Tinna frjáls-
ar hendur og byrjaði að safna að sér myndum í
leit að innblæstri. Hún hann-
aði svo línuna sína
fyrir sterka sjálfstæða
konu.
„Ég tók eftir því að
allar myndirnar sem
ég hafði safnað að
mér voru sterkar og
grófar, af mótor-
hjólafólki og vöðv-
um og allar svolít-
ið kynferðislegar,“
útskýrir Tinna. „Ég
bjó því til karakt-
er sem er sterk og
ákveðin kona sem
passar hvergi inn.
Hún er það sterk að
maður horfir á eftir
henni á götu. Hún
er adrenalínfíkill,
stundar fallhlífar-
stökk og vill fá vind-
inn í hárið.“
Tinna segir ein-
kennandi fyrir lín-
una sína að efrip-
artarnir eru
stórir og fyrir-
ferðarmiklir við
þröngar buxur. Efnisvalið ber síðan keim af und-
irbúningsvinnunni. „Ég nota mikið af leðri, la-
texi og gúmmíi og svo fékk ég líka feld sendan
að utan. Ég gerði til dæmis latexbuxur sem eru
formaðar eftir vöðvum líkamans. þær eru vatt-
eraðar þannig að það koma bungur sem líta
út eins og vöðvarnir. Einnig notaði ég sterka
liti eins og skær-læmgrænan og gulan og svo
túrkislit og svart.“
Tinna sá sjálf um að sníða fötin en segir
saumaskap ekki
vera sína sterk-
ustu hlið. Á döf-
inni hjá henni nú
eftir útskrift er
að vinna og safna
peningum til að
komast til útlanda.
Draumurinn er að
vinna í stóru tísku-
húsi. „Eftir áramót
er stefnan tekin á
útlönd. Mig lang-
ar helst til Lond-
on eða New
York en ég er
búin að prófa
París. Ég er
ekki með
vinnustofu
heima eins
og er en það gæti
orðið í sumar þegar
innistæðan á bankareikn-
ingnum lagast,“ segir hún og
hlær. - rat
Föt fyrir sjálfstæðar konur
● Tinna Hallbergsdóttir er nýútskrifaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands. Í loka-
verkefninu hannaði hún á sterka og sjálfstæða konu.
Tinna Hallbergsdóttir fatahönnuður er hrifin af kraftinum í íslenskri hönnun í dag.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/RÓ
SA
Tinna sá sjálf um að
sníða fötinog notar
mikið af leðri, latexi og
gúmmíi.
5. JÚNÍ 2008 FIMMTUDAGUR