Fréttablaðið - 05.06.2008, Síða 63

Fréttablaðið - 05.06.2008, Síða 63
FIMMTUDAGUR 5. júní 2008 39 UMRÆÐAN Emil Als skrifar um þróunarhjálp Dögum oftar erum við minnt á geigvænlega neyð fólks og þjáningar víða um heim, hungur og hörmungar í slíkum mæli að öll erum við vakin til umhugsunar og hjá okkur lifir vilji til að rétta fram hjálparhönd en einnig til að öðlast skilning á aðstæðum og orsökum hinna viðvarandi vandræða á mörgum svæðum. Sárast er að milljónir barna skuli líða skort og myndir af stóreygum sveltandi og vanræktum börnum valda okkur hjartakvöl. Gríðarlegum fúlgum er veitt til aðstoðar illa stöddum þjóðum og á vanþróuðum svæðum en of oft með takmörkuðum varanlegum árangri. Hannes H. Gissurarson hefur í Fréttablaðinu kynnt þá skoðun sína að fjáraustur til hinna frumstæðu þjóða sé til lítils og bendir máli sínu til stuðnings á, að hjálpar Íslendinga í hendur íbúum á Grænhöfðaeyjum sjái ekki stað. Hannes, sem oft heggur á hnút- inn með beittum og eftirminnileg- um athugasemdum, hefur mikið til síns máls. Gríðarlegur peninga- austur á vegum Sam. Þj. og ann- arra hjálparstofnana hefur orðið að engu líkt og þegar steypiregn hverfur í þurra sandauðn. Þessu veldur þjófnaður á mörgum við- komustöðum og vankunnátta. Leið hinna fákænu og fátæku þjóða til bættra kjara og nýrrar verkkunn- áttu liggur um snertileiðir sam- skipta og verslunar við betur sett- ar þjóðir. Á þetta bendir Hannes en því er við að bæta, að þjóðir á framabraut þurfa að komast að lánsfé með skikkanlegum kjörum. Í bland við sögur um afdrifarík mistök hinna góðviljuðu tilhlaups- manna frá ýmsum hjálparstofnun- um segir frá vel heppnuðu starfi hinnar íslensku þróunarsamvinnu- stofnunar í Afríku. Þar virðast stjórn- endur hafa í huga kjörorð félags sem hefur unnið að end- urhæfingu fólks eftir langvinn veik- indi: „Styðjum sjúka til sjálfsbjargar“; andi þessum skyld- ur hefur mótað fleiri íslensk félög sem fylkja liðsmönnum til hjálpar þar sem stuðnings er þörf. Haukur Már Haraldsson segir, einnig hann í Fréttablaðinu, frá aðferðunum sem Íslendingar beita í sínu hjálparstarfi og miða að því að skila málum í hendur heima- mönnum þegar upp rennur sá dagur að þeir finna sig færa um að taka við taumunum. Lærdómurinn í hinu stóra dæmi er þessi: Aðstoðar er víða þörf. Annars vegar neyðarhjálp þar sem stórvandræði koma upp og ráðleysi allt um kring. Hins vegar hin yfirgripsmikla og skipulega aðstoð veitt með þeim hætti, að hinir þurfandi eru leiddir götuna til sjálfsbjargar og að fjöldinn verði gagntekinn af framfaravilja. Greiðar leiðir á hina stóru mark- aði hinna betur stæðu festa nýfengið sjálfstraust í sessi. Sé einlægur vilji fyrir hendi til að afhenda brot af lífskjörum efn- aðra þjóða ættum við að sjá fram á nýjar áherslur í tollamálum. Með öðrum orðum: aukin samskipti og verslun við eftirlegusvæðin ásamt þeirri aðstoð sem leiðir til vaxandi kunnáttu fólks og þess sjálfstæðis- anda sem vill brjótast undan deyf- andi áhrifum hinnar hripleku ölmusuleiðar. Ekki verður svo fjallað um örbirgð mannkyns að ekki sé horft á hina hamslausu fólksfjölgun sem heldur mörgum ættbálkum og þjóðum á mörkum hungurs og hverskyns þrauta. Meðal brýnna verkefna er flutningur þekkingar á getnaðarvörnum til fjölda staða; Eigi hinir efnaminnstu að komast til bjargálna þurfa menn að ráða sem mestu um fjölda þungana og fjölskyldustærð. Þær raddir heyr- ast að stórir barnaskarar séu víða efnahagsleg nauðsyn og trygging foreldrum sem sjái í þeim fyrir- vinnu þegar kemur að efri árum þeirra sjálfra; sömu raddir segja að við batnandi kringumstæður muni fæðingum fækka. Það má ljóst vera að öllum til- tækum ráðum þarf að beita ef vænta á framfara á þeim svæðum þar sem neyð og vonleysi ríkir, markviss fræðsla um getnaðar- varnir og aðstoð við útvegum hjálpar gagna er meðal þeirra aðgerða sem hjálparstofnanir geta beitt sér fyrir; í slíkum aðkomum er þungvæg leið til að tefja fyrir dreifingu sjúkdóma. En hér er um að ræða viðkvæmt svið og nauð- synlegt að unnið sé með samþykki ráðsmanna á hverjum stað; Vestur- landamenn mega gæta þess að þeir sem aðstoðar njóta horfi ekki fram- an í særandi yfirlætistilburði. Höfundur er læknir. SEND IÐ OKK UR LÍNU Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn- orð. Ein göngu er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein- ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt- inga og til að stytta efni. EMIL ALS Stuðningur til sjálfsbjargar ...ég sá það á visir.is „...fyrst á visir.is“ NASA FLAUTAR TIL LEIKS LAUGARD.KVÖLD 7. JÚNÍ HÚSIÐ OPNAR KL. 23 MIÐAVERÐ KR. 2200 ALDURSTAKMARK 20 ÁRA FORSALA MIÐA Á NASA FÖSTUDAG MILLI KL. 13 OG 17 SÁLIN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.