Fréttablaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 70
46 5. júní 2008 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is Hátíðahöldin í tilefni af 100 ára kaupstað- arafmæli Hafnarfjarðar halda áfram í kvöld með glæsilegum söngtónleikum í Hafnar- borg, lista- og menningarmiðstöð bæjarins, í kvöld kl. 20. Á tónleikunum koma fram ungir og efnilegir söngvarar sem eiga það sameig- inlegt að hafa stundað söngnám á Ítalíu hjá Kristjáni Jóhannssyni tenór. Söngvararnir eru þau Hlöðver Sigurðsson tenór og Þórunn Marínósdóttir sópran og undirleikari á píanó er Antonía Hevesi. Á efnisskránni eru ítalskar óperuaríur og dúettar eftir Donizetti, Puccini og Verdi. Hlöðver hóf söngnám hjá Antoníu Hevesi við Tónlistarskóla Siglufjarðar, stundaði síðan nám við Guildhall Scool of Music and Drama í London og síðar við Mozarteum Tónlistar- háskólann í Salzburg. Þórunn hóf söngnám sitt við Söngskólann í Reykjavík undir handleiðslu Dóru Reyndal og lauk þaðan burtfararprófi árið 2002. Þaðan lá leið hennar í framhaldsnám í söng hjá Martha Sharp, kennara við Mozarteum Tónlistarháskólann í Salzburg. Síðastliðið eitt og hálft ár hafa Hlöðver og Þórunn bæði stundað söngnám hjá Kristjáni Jóhannssyni á Ítalíu. Antonía Hevesi er fædd í Ungverjalandi. Frá því í ágúst 2002 hefur hún verið listrænn stjórnandi og píanóleikari hádegistón- leikaraðar Hafnarborgar, sem hefur boðið Hafnfirðingum upp á klassíska tóna einu sinni í mánuði við mikinn fögnuð bæjarbúa. Antonía starfar nú sem orgel- og píanó með- leikari á Íslandi og æfingarpíanisti við Íslensku Óperuna. Aðgangur að tónleikunum í kvöld er ókeypis og öllum opinn og því er gráupp- lagt fyrir tónlistarunnendur að bregða sér í Hafnarborg og upplifa ítalska stemningu á íslensku júníkvöldi. - vþ Ítölsk kvöldstund í Hafnarborg HLÖÐVER SIGURÐSSON, ÞÓRUNN MARINÓSDÓTTIR OG ANTONÍA HEVESI Skapa ítalska stemningu í Hafnarborg í kvöld. Kl. 22 Tríó Matta Sax leikur á kaffihúsinu Cafe Cultura, Hverfisgötu 18, í kvöld kl.22. Auk Matta eru í bandinu þeir Stefán H. Henrýsson á orgel og Rafn Emilsson á gítar. Sérstakur gestur hljómsveitarinnar á tónleikunum í kvöld er söngkonan Áslaug Helga Hálfdánardóttir. Velheppnuðu starfsári lýkur senn hjá Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Í kvöld fara fram næstsíðustu tónleikar hljómsveitar- innar að sinni, en þeir eru með heldur óvenjulegu sniði. Franska söngkonan Keren Ann Zeidel og Barði Jóhannsson, heilinn á bak við hljómsveitina vinsælu Bang Gang, koma fram með Sinfóníunni og leika bæði eigin lög og tónlist sem þau hafa samið saman undir formerkjum hljómsveitar- innar Lady and Bird. Söngkonan Keren Ann sendi frá sér sína fyrstu hljóðversplötu árið 2000 og hlaut sú frábærar viðtök- ur bæði gagnrýnenda og almenn- ings. Síðan þá hefur hún sent frá sér fjórar plötur til viðbótar og leikið á tónleikum víða um heim. Tónlist hennar hefur að auki verið notuð talsvert í sjónvarpsþáttum og auglýsingum. Hljómsveitin Lady and Bird gaf út samnefnda plötu fyrir nokkrum árum og hefur að auki samið kvikmynda- tónlist og sent frá sér bók. Dúett- inn hefur aðeins komið fram á þrennum tónleikum fram að þessu og hefur verið uppselt á þá alla. Keren Ann og Barði hafa eytt miklum tíma í æfingar ásamt Sin- fóníunni síðustu daga, enda stór- tónleikar í aðsigi. Lady and Bird komu síðast fram á tónleikum á Íslandi árið 2005 þar sem þau léku mestmegnis tónlist af hljómplötu sinni, en Keren segir tónleikana í kvöld verða með allt öðru sniði. „Fyrir þremur árum lékum við eingöngu tónlist með Lady and Bird, en tónleikarnir í kvöld byggj- ast mestmegnis upp á tónlistinni sem við höfum gefið út undir eigin nöfnum. Við tökum þó nokkur Lady and Bird lög, en þetta eru í raun frekar tónleikar með tveim- ur sólólistamönnum.“ Það er einnig nokkur nýjung fyrir Keren og Barða að leika tón- list sína með heilli sinfóníuhljóm- sveit. „Þetta er stórkostlegt ævin- týri fyrir okkur,“ segir Keren með bros á vör. „Mér þykir árangurinn alltaf áhugaverður þegar blandað er saman heimum popptónlistar annars vegar og klassískrar tón- listar hins vegar. Það er magnað að heyra laglínur sem maður samdi á gítar eða píanó öðlast líf í stórum hljómsveitarútsetningum; jafnframt er gaman að vinna að tónlist með svona mörgu fólki, hljómsveitinni, hljómsveitarstjór- anum og útsetjaranum. Það er mjög gefandi.“ Keren segist reyndar ekki gera mikið af því að vinna með öðrum, utan hljómsveitarinnar Lady and Bird. „Ég hef unnið örfá verkefni með öðru fólki, en samstarf mitt við Barða er það sem hefur enst lengst. Við höfum brallað margt saman í gegnum árin og eigum enn eftir að hrinda mörgum hug- myndum í framkvæmd. Samstarf okkar byggist á því að við náum vel saman sem tónlistarmenn; við berum fullt traust hvort til annars og erum góðir vinir. Að mínu mati er Barði framúrskarandi tónlist- armaður og lagahöfundur og mér finnst ég læra afskaplega mikið af því að vinna með honum.“ Sem gefur að skilja er þó ekki alltaf hlaupið að því fyrir tvo tón- listarmenn sem eiga talsverðri velgengni að fagna í eigin rétti að finna tíma til þess að vinna saman. Keren segir þó lítið mál að finna tíma til samstarfs þegar viljinn er fyrir hendi. „Ég er nýkomin úr árslöngu tónleikaferðalagi um allan heim og fer beint í þetta verkefni. Fólk furðar sig gjarnan á því að við nennum að starfrækja Lady and Bird þar sem það er meira en nóg að gera hjá okkur þess utan. En við viljum halda áfram að vinna saman og því finn- um við okkur tíma til þess, svo einfalt er það.“ Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar- innar, Keren Ann og Barða eru hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og hefjast kl. 19.30 í Háskólabíói. vigdis@frettabladid.is Sinfó mætir poppurum KEREN ANN ZEIDEL Kemur fram ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og Barða Jóhanns- syni á tónleikum í Háskólabíói í kvöld. Sýningaröðin Sjónheyrn opnar með pompi og pragt næstkom- andi laugardag á Vesturveggn- um í Skaftfelli, miðstöð mynd- listar á Austurlandi. Sýningarstjórar eru þau Ingólf- ur Örn Arnarson og Elísabet Indra Ragnarsdóttir og sáu þau um að velja saman listamenn- ina sem sýna verk sín á veggn- um í sumar. Líkt og titillinn gefur til kynna leggur sýningin nokkra áherslu á að sameina hljóð- og myndlist og því sýna flestir listamannanna tveir saman, annar sem myndlistar- maður og hinn sem hljóðlistar- maður. Þó eru hlutverkin sjaldnast svo skýr og kemur margt forvitnilegt út úr sam- starfinu. Á fyrstu sýningu Sjónheyrnar má sjá verk eftir þau Gunnhildi Unu Jónsdóttur og Hilmar Bjarnason. Þau hafa dvalist undanfarin ár í Pittsburgh í Penns- ylvaníu þar sem Gunnhildur var í mastersnámi í myndlist í háskólanum Carnegie Mellon og eru verk- in sem þau sýna á Seyðisfirði tengd þeirri dvöl. Sýningin stendur yfir til 24. júní og er öllum opin. Aðgangur er ókeyp- is. Jafnframt er vert að minna á að nú stendur yfir í Skaftfelli sýning SkyrLeeBob í aðalsýn- ingarsalnum, en hún er fram- lag Skaftfells til Ferðalags, verkefnis sem var unnið fyrir Listahátíð í Reykjavík 2008. SkyrLeeBob er fjöllistahópur þeirra Guðna Gunnarssonar myndlistarmanns, Ernu Ómars- dóttur dansara og Lieven Dousselaere tónlistarmanns. Á sýningunni eru ljósmyndir af SkyrLeeBob við ýmsar athafn- ir; 6 videó með SkyrLeeBob frá Seyðisfirði, munir úr gjörning- um SkyrLeeBob og í undraherberginu er einnig vid- eóupptaka frá gjörningi SkyrLeeBob á opnun sýning- arinnar. Síðasti sýningardagur er 15. júní. Skaftfell er til húsa að Austurvegi 42 á Seyðisfirði. - vþ Myndlist blómleg fyrir austan SJÓNRÆNA HLIÐIN Mynd eftir Gunnhildi Unu Jónsdóttur. Allra síðustu sætin! Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 6. og 13. júní. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg sem er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.