Fréttablaðið - 05.06.2008, Qupperneq 78
54 5. júní 2008 FIMMTUDAGUR
Dýrleif Ýr Örlygsdóttir býður lesendum
blaðsins upp á sumarlegan forrétt. Hún vill
fá góðan mat í það minnsta einu sinni á dag.
„Þessi réttur er rosalega góður. Ég fékk upp-
skriftina fyrir nokkrum árum hjá honum Ragnari,
sem varð síðan yfirkokkurinn á Domo,“ útskýrir
Dýrleif, en maður hennar, Kormákur Geirharðs-
son, er einmitt einn eigenda veitingastaðarins.
„Ég er búin að nota þessa uppskrift alveg rosa-
lega oft, einmitt af því að hún er svo auðveld og
góð. Maður er ekki nema fimm mínútur að þessu,
sem er mjög þægilegt ef maður er að fá fólk í
mat,“ segir Dýrleif, sem jafnvel hefur notað hana
sem aðalrétt. „Þá skipti ég rækjunum út fyrir
humar og eyk bara magnið af öllu,“ útskýrir hún.
Réttinn má bæði grilla eða steikja á pönnu. „Hann
er kannski enn betri af grillinu, sérstaklega svona
á sumrin, en það virkar líka mjög vel að steikja
hann. Ég hef oft gert það, ég er ekki einu sinni
með grill hérna heima,“ segir hún.
Dýrleif kveðst vera mikill sælkeri og hafa
gaman af því að elda. „Ég reyni samt að hafa allar
uppskriftir í fljótlegra lagi. Ég er ekki alveg
komin á þann stað í lífinu að ég hafi marga
klukkutíma til að verja í eldhúsinu,“ segir hún og
hlær við. „Ég er hrifin af dálítið bragðmiklum
mat. Ég er mjög hrifin af kryddum eins og
engiferi, kóríander og chilli, sem eru einmitt öll í
þessari uppskrift.“
Eins og flestum sælkerum finnst Dýrleifu ekki
leiðinlegt að halda matarboð. „Mér finnst mjög
skemmtilegt að bæði bjóða í og fara í matarboð,
en í rauninni finnst mér mikilvægt að borða
góðan mat einu sinni á dag. Ég og maðurinn minn
eldum oft saman og eigum góða stund í eldhús-
inu,“ segir hún brosandi.
Dýrleif hefur starfað mikið sem stílisti og
búningahönnuður í gegnum tíðina, en hefur nú
tekið sér pásu frá frílanslífinu, eins og hún kallar
það. „Ég var að byrja að vinna hjá Habitat, þar
sem ég sé um útstillingar og þvíumlíkt. Þetta er á
sama sviði, en mér finnst fínt að breyta aðeins til.
Það er góð tilbreyting að vera á launaskrá
einhvers staðar,“ segir hún og hlær.
sunna@frettabladid.is
Vill bragðmikinn mat
> Sumardrykkirnir …
… verða enn líflegri ef brugðið er á
leik með klaka. Blandaðu saman
jarðarberjum, vatni, sykri og
smá sítrónusafa í
blandara og frystu,
eða búðu til klaka
úr djúsblöndum.
Jarðarberjaklaki er
skemmtilegur bæði í
gosdrykki og
kampavínsglas.
Ekki gleyma grænmetinu þó að
grillið sé vaknað úr dvala. Það er
um að gera að grilla meðlætið um
leið og kóteletturnar, eða hvað það
er sem hefur orðið fyrir valinu í
það og það skiptið. Sætar kartöfl-
ur henta vel með ýmsum mat og
eru sérlega ljúffengar af grillinu.
Þessa uppskrift að sætum kart-
öfluflögum er að finna á vefnum
epicurious.com.
1 kg sætar kartöflur
¼ bolli ólífuolía
1 tsk. salt
1 tsk. kúmen
1 vorlaukur
2 tsk. nýkreistur lime safi
límónusneiðar
¼ bolli ferskur kóríander
Sjóðið kartöflur í söltuðu vatni
undir loki þar til þær eru rétt
orðnar meyrar, í um 15-30 mínútur
eftir stærð þeirra. Hellið vatni af
og skolið kartöflur með köldu
vatni. Skrælið og skerið í um 1 cm
þykkar skífur.
Hrærið saman olíu, salti og
kúmeni í skál og penslið báðar
hliðar kartöfluskífanna með blönd-
unni. Skiljið þó aðeins eftir af
blöndunni.
Grillið þar til þær eru gullin-
brúnar, í um mínútu á hvorri hlið.
Notið tangir til að færa kartöfl-
urnar yfir á bakka. Skerið vor-
laukinn skáhallt í þunnar sneiðar,
sáldrið yfir kartöflurnar. Pískið
límónusafann saman við olíu-
blönduna, saltið og piprið eftir
smekk og dreypið yfir kartöflurn-
ar. Stráið kóríander yfir og berið
fram með límónusneiðum.
Kartöflur á grillið
Matreiðslumaðurinn Ragnar
Ómarsson hefur bæst í eigenda-
hóp Domo, en hann hefur verið
yfirkokkur þar frá opnun staðar-
ins í desember 2006. Aðrir eigend-
ur Domo eru Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir, Kormákur Geir-
harðsson og Skjöldur Sigurjóns-
son. Ragnar er sem stendur fyrir-
liði og þjálfari íslenska
kokkalandsliðsins og hefur unnið
til fjölda verðlauna. Hann hefur til
að mynda keppt fyrir Íslands hönd
í Bocuse D’Or, virtustu matreiðslu-
keppni í heimi.
Ragnar kveðst ekki ætla að gera
miklar breytingar á starfsemi
Domo, en segir að afrískra áhrifa
verði að gæta í matreiðslu. „Það
sem er efst á blaði hjá okkur er að
göfga enn frekar bragðlauka land-
ans með því að færa inn á matseð-
ilinn okkar rétti og krydd sem
koma frá framandi stöðum í Afr-
íku,“ segir Ragnar.
Domo er til húsa að Þingholts-
stræti 5.
Kaupir hlut í Domo
Í EIGENDAHÓP DOMO Ragnar Ómarsson
hefur eignast hlut í veitingastaðnum
Domo, en hann hefur verið yfirkokkur
þar á bæ síðan staðurinn var opnaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SÆTT MEÐ GRILLINU Sætar kartöflur henta vel á grillið, en úr þeim má til dæmis búa
til einfalt og ljúffengt salat. NORDICPHOTOS/GETTY
Hvaða matar gætiru síst verið án? Spínats. Eftir að
ég byrjaði að borða spínat hætti ég að fá flensu einu
sinni í mánuði.
Besta máltíð sem þú hefur fengið? Íranskur kavíar
heima hjá afa unnusta míns.
Er einhver matur sem þér finnst vondur? Gellur og
kinnar. Ég get bara ekki sett þær upp í mig.
Leyndarmál úr eldhússkápnum: Hunt‘s
Honey Mustard BBQ sósa. Hún er einfaldlega
góð með öllu! Kjúlla, kjöti, meira að segja
spínati. Maður skellir henni bara á
pönnuna með hverju sem er.
Hvað borðar þú til að láta þér
líða betur? Ég hef verið að æfa mig að gera gazpacho, eftir
uppskrift sem ég fékk hjá ömmu minni, því ég er hálfur
Spánverji og það er algjör heilsubomba. Tómatarnir kæla
líkamann mjög vel.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Sojamjólk.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvað tækirðu með þér?
Einhverja góða sósu til að hafa með humrinum sem ég
myndi veiða mér.
Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað?
Snákasúpa sem ég fékk í Kína. Það er skrítið að
borða snák, eins og allt sem maður er ekki vanur.
Ég var viss um að eitthvað væri að kjötinu, en
það var alls ekki vont.
MATGÆÐINGURINN SARA MARTI GUÐMUNDSDÓTTIR LEIKKONA
Snákakjöt í Kína undarlegt undir tönn
Smurbrauðsstaðurinn Jómfrúin
á Lækjargötu hefur notið mikilla
vinsælda síðastliðin tólf ár fyrir
klassískt smurbrauð upp á
danska mátann. Síðastliðin
sumur hefur verið boðið upp á
djasstónlist á laugardögum við
góðar undirtektir matargesta.
„Sumardjassinn á vegum Sigurð-
ar Flosasonar byrjar hjá okkur
14. júní og verður sex laugar-
daga í sumar. Þá er sett upp lítið
svið í portinu á bak við staðinn
og það fyllist af fólki. Þetta bygg-
ist á því að það sé gott veður, en
fólk á öllum aldri mætir með
góðum fyrirvara til að tryggja
sér pláss.“ segir Guðrún Pálína
Sveinsdóttir, yfirkokkur á Jóm-
frúnni.
„Það er nóg að gera á staðnum,
en svo sendum við líka smurbrauð
í veislur og fyrirtæki út í bæ. Það
er alltaf mikið að gera í hádeginu
en svo eru hápunktar eins og
sumrin og svo desembermánuður.
Margir panta borð í janúar fyrir
desember,“ útskýrir Guðrún Pál-
ína.
„Smurbrauðið er mjög sígilt svo
það eru litlar breytingar á mat-
seðlinum eftir árstíðum. Við erum
með fasta rétti, en veljum svo
hvað við höfum á matseðlinum
eftir því hvað er vinsælast,“ segir
Guðrún Pálína og bætir við að
rauðsprettan og rifjasteikin séu
án efa tveir vinsælustu réttirnir á
Jómfrúnni, „svo er eiginlega
skylda að fá sér einn öl og snafs
með smurbrauðinu,“ segir Guðrún
Pálína sem gaf okkur girnilega
uppskrift að sumarlegu salati.
Smurbrauð og sumardjass
FLJÓTLEGT EN BRAGÐGOTT Dýrleif Ýr Örlygsdóttir vill hafa mat-
inn sinn bragðmikinn en fljótlegan. Uppskriftin að tígrisrækjun-
um sameinar þetta tvennt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RAUÐSPRETTAN VINSÆLA AÐ HÆTTI
JÓMFRÚARINNAR Nýjum rauðsprettu-
flökum er velt upp úr hveiti, eggi
og raspi og djúpsteikt. Borin fram á
rúgbrauði með remolaði, rækjum, aspas
og sítrónu.
GRILLUÐ ENGIFERMAR-
INERUÐ TÍGRISRÆKJA
MEÐ APRIKÓSU-LIME-
DÝFU
Forréttur
Ca 3 tígrisrækjur á mann.
1 tsk. ferskt engifer
1 stk. hvítlauksrif
1 dl ólífuolía
salt og pipar
Ídýfa
2 msk. apríkósumarm-
elaði
safi úr 2 stk. lime
½ rauður chilli
2 msk. hvítvínsedik
2 msk. sojasósa
2 msk. fiskisósa
hnefafyllir kóríander
Marínering: Rífið bæði
engifer og hvítlauk með
fínu rifjárni. Blandið olíu,
engiferi og hvítlauk vel
saman og leggið rækjurn-
ar í löginn í u.þ.b. klst.
Rækjurnar grillaðar eða
steiktar á pönnu í 1½
mínútu á hvorri hlið.
Kryddið með salti og
pipar og berið rækjurnar
fram heitar eða kaldar.
Ídýfan: Saxið chilli-
pipar og kóríander fínt.
Öllu blandað saman og
smakkað til með salti og
pipar
DANSKT „HØNSESALAT“ Guðrún Pál-
ína gaf okkur uppskrift að sumarlegu
salati.
DANSKT „HØNSESALAT“
150 g majones eða sýrður rjómi,
eða til helminga
HP sósa
salt og pipar
Fylling:
250 g soðið kjúklingakjöt í bitum
125 g aspas
125 g steiktir sveppir í sneiðum
Majonesið bragðbætt með
kryddinu.
Kjúklingakjöti, aspas og sveppum
hrært í majonesið.
Sett í skál og puntað með beikoni,
steiktum sveppum og tómatbát-
um.
Borið fram með ristuðu brauði.
maturogvin@frettabladid.is