Fréttablaðið - 05.06.2008, Side 82
58 5. júní 2008 FIMMTUDAGUR
Geiri á Goldfinger vann
í gær meiðyrðamál gegn
tímaritinu Ísafold en ekki
þykir sannað, líkt og segir
í grein þar, að Goldfinger
tengist mansali á nokkurn
hátt. Jón Trausti Reynis-
son ritstjóri segir dómara
óhrædda að vega að mál-
frelsinu sem aldrei nýtur
vafans.
„Við munum áfrýja. Það er engin
spurning. Annars verður erfitt að
vera blaðamaður á Íslandi. Fyrri
hálfleik er lokið,“ segir Jón Trausti
Reynisson, fyrrverandi ritstjóri
tímaritsins Ísafoldar og núverandi
ritstjóri DV.
Það var þyngra í Jóni Trausta
hljóðið en Ásgeiri Þór Davíðssyni
– Geira á Goldfinger – sem í gær
hrósaði sigri í meiðyrðamáli sínu á
hendur tímaritinu Ísafold vegna
greinar sem birtist í júní árið 2007.
Honum var dæmd ein milljón
króna í bætur en með máls- og
birtingarkostnaði auk dráttar-
vaxta leggur sektin sig á um 2
milljónir sem Jón Trausti og Ingi-
björg Dögg Kjartansdóttir, þá á
Ísafold, þurfa að borga. Sigurður
H. Stefánsson héraðsdómari kvað
upp dóminn.
Meginefni greinarinnar er man-
sal og ítrekað er sagt að mansal
tengist rekstri súlustaðarins Gold-
finger sem er í eigu Geira. „Þetta
eru að mér skilst næsthæstu skaða-
bætur sem dæmdar hafa verið á
Íslandi. Bara „Maggi glæpur“ fékk
meira. Lögreglan hefur margoft
rannsakað starfsemina og ekkert
bendir til þess að á staðnum þrífist
vændi, mansal eða tengsl við
skipulagða glæpastarfsemi líkt og
segir í greininni,“ segir Geiri.
Og lögmaður hans var kátur
einnig. Fagnar niðurstöðunni.
Hann bendir á að í Ísafold hafi
Geiri verið bendlaður við refsi-
verða starfsemi sem enginn fótur
reyndist fyrir – starfsemi sem er
svívirðileg í augum alls almenn-
ings. Tjáningarfrelsi fylgi skyldur
og þegar menn nýta sér það verði
þeir að taka mið af réttindum sem
snúa að æruvernd og friðhelgi
einkalífs. Blaðamenn fóru langt út
fyrir mörk tjáningarfrelsisins að
mati Vilhjálms.
Jón Trausti mótmælir dómnum
harðlega og telur hann aðför að
fjölmiðlun á Íslandi. „Meginefni
dómsins er að mansal sé hreint og
klárt þrælahald í gamaldags skiln-
ingi þess orðs. Grein Ísafoldar
fjallar hins vegar um hvernig man-
sal virkar, hvernig það teygir anga
sína til Íslands og þessara staða.
Ef dómarinn hefði nennt að hlusta
á vitnisburð Rúnu í Stígamótum
[Guðrúnar Jónsdóttur] hefði nið-
urstaðan orðið önnur,“ segir Jón
Trausti. Hann bendir jafnframt á
að miskabæturnar sem slíkar séu
ívið hærri en fórnarlömb í nauðg-
unarmálum fá. „Ég er hissa á
þessu. Ómögulegt er að átta sig á
dómum í meiðyrðamálum á Íslandi
yfirleitt. Aðalatriðið í þessu er að
dómarar eru óhræddir við að vega
að málfrelsinu sem aldrei nýtur
vafans.“
jakob@frettabladid.is
Ómerkar meiningar um mansal
INGIBJÖRG DÖGG OG GEIRI Geiri var ánægðari en ritstjórinn með dóminn sem var
upp kveðinn í dómsal 202 í héraðsdómi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON„Hún er ansi flott í ár,“ segir
Björgúlfur Egilsson, skipuleggj-
andi menningarhátíðar Grand
Rokks sem hefst í dag klukkan 18
og stendur fram á sunnudag. Dag-
skrá hátíðarinnar er fjölbreytt.
Bæði kvenna- og karlakór Grand
Rokks munu stíga á svið. Kvenna-
kórinn ber nafnið Sólsnípurnar og
honum stjórnar Andrea Gylfa-
dóttir, en karlakórinn heitir Þúfut-
ittlingarnir. Einnig verður lifandi
list í gangi, en þá mála listmálarar
verk á staðnum sem verða boðin
upp á lokadegi hátíðarinnar og á
sama uppboði verða boðnar upp
bækur frá Braga Kristjónssyni
fornbókasala. Tónlistaratriði
verða einnig á dagskrá hátíðar-
innar sem og ýmis önnur skemmti-
atriði.
Stærsta uppákoma hátíðarinnar
er þó hin árlega leiksýning Grand
Rokks. Í ár er það söngleikurinn
Skeifa Ingibjargar eftir Benóný
Ægisson en verkið fjallar um Jón
Sigurðsson og konu hans Ingi-
björgu. Það eru Lísa Pálsdóttir og
Vilhjálmur Hjálmarsson sem leik-
stýra en með hlutverk Ingibjarg-
ar fer Kormákur Bragason og Örn
Guðnason fer með hlutverk Jóns.
„Það eru miklar væntingar bundn-
ar við Kormák í þessu hlutverki,“
segir Björgúlfur en leikfélagið er
eina barleikhús heimsins, eftir
því sem hann best veit. „Það eru
eintómir Grandarar sem skipa
leikhópinn,“ segir Björgúlfur og
aðspurður hvað einkenni hinn
dæmigerða Grandara svarar
hann: „Glaðværð og fegurð. Hún
verður í fyrirrúmi um helgina.“
- shs
Glaðværð og feg-
urð á Grand Rokki
GRAND Á ÞVÍ Þorsteinn Þórsteinsson, vert á Grand Rokki, og Björgúlfur Egilsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HAGKAUP SMÁRALIND
HAGKAUP SKEIFUNNI
HAGKAUP KRINGLUNNI
HAGKAUP SPÖNGINNI
HAGKAUP GARÐABÆ
HAGKAUP EIÐSTORGI
HAGKAUP AKUREYRI
HAGKAUP BORGARNESI
HAGKAUP NJARÐVÍK
HAGKAUP HOLTAGARÐAR
EINAR ÓLAFSS, AKRANESI
NETTÓ MJÓDD
ÚRVAL NJARÐVIK
ÚRVAL HAFNAFIRÐI
ÚRVAL EIGILSSTÖÐUM
ÚRVAL HÚSAVÍK
ÚRVAL HRÍSALUNDI
ÚRVAL ÍSAFIRÐI
ÚRVAL SIGLUFIRÐI
ÚRVAL BORGARNESI
ÚRVAL BLÖNDUÓSI
ÚRVAL SKAGASTRÖND
BJARNI EIRÍKS,BOLUNGARV.
KAUPFÉLAG V-HÚNV. HVAMMST.
SKAGFIRÐINGABÚÐ SAUÐÁRKR.
KAUPFÉLAGIÐ DRANGSNESI
NÓATÚN SELFOSSI
EFNALAUG VOPNAFJARÐAR
LYFJA, PATRÓ
ÞÍN VERSLUN SELJABRAUT
STRAX FÁSKRÚÐSFIRÐI
STRAX LAUGAVATNI
KRÓNAN REYÐARFIRÐI
KRÓNAN BÍLDSHÖFÐA
KRÓNAN MOSÓ
KRÓNAN VESTMANNAEYJUM
RANGÁ SKIPASUNDI
KJARVAL VÍK
KJARVAL HVOLSVELLI
ÚTSÖLUSTAÐIR SLOGGI TILBOÐ TAI
Vönduð nærföt á
tilboðsverði
Flottar, þægilegar og
sniðnar að þér.
tai
TAI 3 í pakka
2.490 kr/pk