Fréttablaðið - 05.06.2008, Síða 88
64 5. júní 2008 FIMMTUDAGUR
HANDBOLTI Íslenska landsliðið
stendur í ströngu þessa dagana.
Það er mikið álag og ferðalög á
strákunum sem nú eru í æfinga-
búðum í Magdeburg þar sem þeir
búa sig undir næsta stríð sem er
gegn Makedónum í Skopje um
helgina. Er það fyrri leikur lið-
anna í keppni um laust sæti á HM
í Króatíu sem fram fer í janúar.
Strákarnir glöddust því mjög
þegar Alfreð Gíslason, fyrrver-
andi landsliðsþjálfari, bauð öllum
hópnum í grillveislu á heimili sínu
er þeir sneru aftur til Magdeburg
frá Wroclaw.
Alfreð og Kara, eiginkona hans,
hafa komið sér upp glæsilegu
heimili um 60 kílómetrum fyrir
utan Magdeburg. Húsið var nán-
ast rústir einar þegar þau keyptu
það á sínum tíma. Þau lögðust í
mikið verkefni að endurbyggja
húsið í raun og veru og útkoman
er glæsileg.
Það þarf talsvert magn til þess
að metta maga landsliðsstrákana
og Alfreð hafði því komið upp
einum þremur grillum þar sem
voru eldaðar stórsteikur og brat-
wurst-pylsur. Alfreð sá sjálfur um
eldamennskuna ásamt Einari Þor-
varðarsyni, framkvæmdastjóra
HSÍ, og undirrituðum.
Strákarnir tóku hraustlega til
matar síns og spjölluðu síðan fram
á kvöld og létu fara vel um sig í
glæsilegum vistarverum Alfreðs
og konu hans.
Daginn eftir byrjaði síðan alvar-
an á ný hjá strákunum og þeir
halda á morgun til Skopje þar sem
erfitt verkefni bíður liðsins.
Heimavöllur Makedóna þykir einn
sá erfiðasti í Evrópu enda áhorf-
endur langt frá því eins kurteisir
og áhorfendur voru til að mynda í
Póllandi.
Viku síðar fer síðari leikur lið-
anna fram í Laugardalshöll og
eftir það fá strákarnir langþráð
frí áður en undirbúningurinn fyrir
Ólympíuleikana hefst en liðið fer
utan til Peking í byrjun ágúst og
fyrsti leikur liðsins er 10. ágúst.
henry@frettabladid.is
Alfreð bauð landsliðinu
í heljarinnar grillveislu
Alfreð Gíslason, fyrrum landsliðsþjálfari, tók vel á móti gömlu lærisveinunum
sínum er þeir sneru aftur til Magdeburg frá Póllandi. Alfreð sló upp grillveislu á
glæsilegu heimili sínu þar sem strákarnir tóku hraustlega til matar síns.
SVONA GERUM VIÐ ÞETTA EINAR, MINN Alfreð fer yfir grillmálin með Einari Þorvarð-
arsyni, framkvæmdastjóra HSÍ, sem hjálpaði til við að grilla ofan í mannskapinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/HBG
GLÆSILEGT HÚS Alfreð býður hér strák-
ana velkomna á heimili sitt sem sést
hér til vinstri. Til hægri á myndinni er
bílstjóri Magdeburgarliðsins í handbolta
sem keyrir liðið allar götur síðan Alfreð
tók við en landsliðið fær þess utan afnot
af glæsilegri liðsrútu Magdeburgarliðs-
ins. FRÉTTABLAÐIÐ/HBG
FLOTTUR VIÐ GRILLIÐ Alfreð tók sig vel út við grillið þar sem hann fór á kostum við
að matreiða hverja stórsteikina á fætur annarri ofan í landsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/HBG
KÖRFUBOLTI Magnús Gunnarsson,
fyrirliði Keflavíkur og íslenska
landsliðsins, hefur ákveðið að
söðla um en hann skrifaði í gær
undir eins árs samning við erki-
fjendur Keflavíkurliðsins, Njarð-
vík.
„Þetta er bara rétti tíminn hjá
mér að breyta aðeins til og prófa
eitthvað nýtt. Ég þurfti einnig
nýja áskorun og það kemur núna í
ljós hvort ég geti eitthvað í körfu-
bolta. Ég hef verið svo lánsamur
að spila með frábærum Keflavík-
urliðum en það mun reyna meira á
mig hjá Njarðvík og þá kemur í
ljós úr hverju ég er gerður,“ sagði
Magnús en hann hefur þegar leitt
hugann að því hvernig það verði
að mæta í Sláturhúsið í græna
búningnum.
„Það er strax erfitt og sérstakt
að hugsa um það. Ég fæ eflaust að
heyra það eitthvað en ég vona að
það verði líka klappað eitthvað
fyrir mér,“ sagði Magnús. - hbg
Magnús Gunnarsson er á leiðinni til Njarðvíkur:
Fannst ég þurfa á nýrri
áskorun að halda
MAGNÚS GUNNARSSON Verður í grænu
næsta vetur. MYND/VÍKURFRÉTTIR
FÓTBOLTI Bikarmeistarar FH
mæta 1. deildarliði Fjarðabyggð-
ar austur á landi í 32 liða úrslit-
um VISA-bikars karla. Verður
það örugglega strembin rimma
fyrir meistarana enda Fjarða-
byggð erfið heim að sækja og
með frambærilegt lið.
Tveir úrvalsdeildarslagir eru í
umferðinni, Þróttur mætir Fylki
og HK tekur á móti ÍA.
Áhugaverð rimma er í Vestur-
bænum þar sem úrvalsdeildarlið
KR mætir þriðju deildarliði KB
sem sló Njarðvík frekar óvænt
út síðustu umferð. Íslandsmeist-
arar Vals mæta svo Þór á Akur-
eyri. - hþh
Dregið í 32 liða úrslitum VISA-bikars karla:
Meistararnir fara austur
DRÁTTURINN
Leikið er 18. og 19. júní
Breiðablik - KA
Fjarðabyggð - FH
Fjölnir - KFS
Fram - Hvöt
Grindavík - Höttur
Hamar - Selfoss
Haukar - Berserkir
HK - ÍA
ÍBV - Leiknir R.
Keflavík - Stjarnan
KR - KB
Reynir Sandgerði - Sindri
Víðir - Þróttur Vogum
Víkingur R. - Grótta
Þór - Valur
Þróttur R. - Fylkir
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki