Fréttablaðið - 14.06.2008, Page 12

Fréttablaðið - 14.06.2008, Page 12
12 14. júní 2008 LAUGARDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 302 4.439 +0,24% Velta: 3.295 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 6,48 0,00% ... Bakkavör 30,00 -2,28% ... Eimskipafélagið 14,20 -2,70% ... Exista 8,76 -1,13% ... Glitnir 16,40 -0,91% ... Icelandair Group 15,10 +0,67% ... Kaupþing 755,00 +0,94% ... Landsbankinn 22,90 +0,44% ... Marel 89,40 +0,45% ... SPRON 3,88 +0,78% ... Straumur-Burðarás 10,05 +0,50% ... Teymi 2,10 +0,96 ... Össur 93,30 +0,43% MESTA HÆKKUN NÝHERJI +22,22% TEYMI +0,96% KAUPÞING +0,94% MESTA LÆKKUN ATLANTIC PETROL. -3,00% EIMSKIPAFÉLAGIÐ -2,70% FØROYA BANKI -2,70% Merrion Landsbanki, dóttur- félag Landsbankans, hefur fest kaup á írska eignastýringarfé- laginu Oppenheim Investment Managers Ltd. Þetta kemur fram í Moment, tímariti Lands- bankans, sem kom út í gær. Oppenheim er stórt á sínu sviði á írskan mælikvarða, með um einn milljarð evra í stýringu. Með yfirtökunni tvöfaldast sú upphæð sem Merrion hefur í sinni umsjá. Starfsmenn írska fyrirtækis- ins eru fjórtán, en í sameigin- legu félagi á Írlandi verða starfsmenn Landsbankans nokkuð á annað hundraðið. - bih Landsbankinn kaupir á ÍrlandiAf dónalegum spurningum Geir H. Haarde, forsætisráðherra, brást illa við spurningum Sindra Sindrasonar, fréttamanns Markaðarins, fyrir utan Stjórnarráðið í gærmorg- un. Sakaði Geir Sindra um dónaskap þegar hann innti ráðherra eftir aðgerðum í efnahags- málum. Svona voru samskiptin: Sindri: „Jæja, hvar eru peningarnir sem eiga að komast inn í landið?” Geir: „Á þetta að vera viðtal? Sindri: „Já, ég myndi vilja heyra aðeins um þetta...” Geir: „Þú verður að hafa samband fyrirfram.” Sindri: Geir, þjóð- in náttúrulega bíður eftir einhverjum aðgerðum frá ríkisstjórninni. Geturðu ekki gefið okkur smá komment?” Geir: „Ég vildi gjarnan gera það, Sindri, ef þú hagaðir þér ekki svona dónalega.” Var botninum þá ekki náð? Óhætt er að segja að hörð viðbrögð forsætisráð- herra veki athygli. Í hverju dónaskapur frétta- mannsins fólst er heldur ekki augljóst. Forsætisráðherra verður að una því að fjölmiðl- ar spyrji þeirra spurninga, sem fólkið í landinu spyr sig þessa dagana. Verð- bólgan hækkar, gengið sveiflast, bensín er í hæstu hæðum og fyrirtæki segja upp fólki. Hann sagði sjálfur í þinginu fyrir nokkrum vikum að botninum væri náð á mörkuðum. Óhætt er að segja, að það hafi ekki gengið eftir. Hann hefur einnig sagt að til standi að efla gjald- eyrisforðann með erlendu láni og nú er beðið eftir því. Hve löng sú bið verður, er ekki gott að segja. Kannski væri líka dónalegt að velta því fyrir sér? Peningaskápurinn ... „Þetta eru tæplega fjögur þúsund einstaklingar sem bætast við hlut- hafahópinn,“ segir Kristinn Hall- grímsson, formaður skilanefndar Eignarhaldsfélagsins Samvinnu- trygginga. Kristinn segir að ákveðið hafi verið að túlka ákvæði samþykkt- anna rúmt. „Eftirlifandi makar kvæntra tryggingataka eignast helming réttindanna,“ segir Krist- inn. Einnig hafa ákvæði sem varða fyrirtæki verið rýmkuð. Fjárfestingafélagið Gift er stofn- að upp úr eignarhaldsfélaginu. Þeir sem tryggðu hjá Samvinnutrygg- ingum árin 1987 til 8 eiga að eignast hlutabréf í Samvinnutryggingum. Alls verða hluthafar í Gift um 54 þúsund, bæði fólk og fyrirtæki. Gift á aftur stóra hluti í Kaupþingi, Existu og fleiri félögum. Skilanefndin vinnur eingöngu eftir samþykktum félagsins, en seg- ist starfa í anda hlutafélaga- og samvinnufélagalaga. Kristinn Hall- grímsson segir að það væri ekki í samræmi við samþykktirnar að eft- irlifandi makar fengju full réttindi, þar sem þær heimili ekki að rétt- indi erfist. Kristinn segir að stefnt sé að því að birta lista yfir þá sem eignast hlut í Gift á netinu. Skilanefndin hefur spurt Persónu- vernd hvort það sé í lagi. Kristinn Axelsson, lögfræðingur hjá stofn- uninni, staðfestir að þangað hafi borist erindi. Niðurstaða ætti að liggja fyrir á næstu vikum. - ikh Biðja Persónuvernd um leyfi fyrir hluthafalista Núverandi stjórnendur Eimskipafélagsins þögðu um Innovate-málið í meira en þrjá mánuði. Fjármálaeftir- litið íhugar rannsókn. Fyrr- verandi forstjóri félagsins fékk næstum milljarð króna við starfslok vegna sölu- tryggingar á kaupréttum. Eimskip verður af tugum milljarða vegna mistaka undir hans stjórn. Fjármálaeftirlitið (FME) íhugar nú að hefja rannsókn á milljarða afskriftum Eimskipafélagsins á breska félaginu Innovate. Eimskipafélagið tilkynnti í vik- unni að dótturfélagið Innovate yrði afskrifað í heilu lagi. Níu milljarð- ar króna færu út úr bókum félags- ins. Þá gerði félagið ráð fyrir um 36 milljarða tekjum af félaginu í ár. Baldur Guðnason var forstjóri félagsins þegar kaupin voru gerð. Stjórn Eimskips ætlar að fara vandlega yfir allt málið. Meðal annars verður skoðað hvort Baldur hafi haldið upplýsingum leyndum fyrir stjórninni eða hvort hann hafi verið blekktur við kaupin á Inn- ovate. Gylfi Sigfússon, forstjóri félags- ins, sagði við Markaðinn að málið hefði komið inn á borð stjórnar Eimskips í febrúar. Eftir því sem heimildir Markað- arins herma telja menn eðlilegt að greint hefði verið frá þessu til Kauphallarinnar mun fyrr en í þessari viku. Málið er hins vegar komið á borð FME, sem íhugar rannsókn á mál- inu. „Þetta er nýkomið upp og verð- ur skoðað ef ástæða þykir til,“ segir Íris Björk Hreinsdóttir, upp- lýsingafulltrúi FME. Meðal þess sem líklega yrði kannað, eftir því sem næst verður komist, er hvort viðskipti hafi verið með hlutabréf í Eimskipum á grundvelli vitneskju um yfirvof- andi afskriftir Innovate. Gengi hlutabréfa í Eimskipafé- laginu hefur hrunið úr 20 niður í 14,4 eftir að Innovate-málið kom upp á yfirborðið. Sindri Sindrason, stjórnarfor- maður Eimskips, sagði við Mark- aðinn að stjórnendur hefðu gert mistök við kaupin á breska félag- inu Innovate. Hann sat sjálfur í stjórn félagsins þegar kaupin voru gerð. Magnús Þorsteinsson, fyrr- verandi viðskiptafélagi Björgólfs- feðga, var þá stjórnarformaður. Baldur Guðnason hætti störfum sem forstjóri Eimskips í febrúar, um svipað leyti og málið kom á borð stjórnar. Í apríl síðastliðnum keypti Eim- skipafélagið hlut Baldurs. Hlutur- inn var sölutryggður á genginu 37,76, en var keyptur í lok apríl í fyrra þegar gengi félagsins var 34,4 á hlut. Baldur átti ríflega 67 milljónir hluta. Gengi hluta í félaginu var 24,7, í byrjun apríl í ár, þegar félag- ið keypti Baldur út. Hann græddi því næstum níu hundruð milljónir króna á mismuninum. ingimar@markadurinn.is FME íhugar rannsókn á Eimskipafélaginu FYRRVERANDI FORSTJÓRI EIMSKIPS Baldur Guðnason ók í burtu með næstum milljarð í farteskinu vegna sölutryggingar kaupréttar þegar hann hætti hjá Eimskipa- félaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fjárfestingarbankinn Lehman Brothers hefur ákveðið að lækka nokkra af helstu stjórnendum bankans í tign eftir slakt uppgjör á öðrum fjórðungi. Tap Lehman Brothers nam 2,8 milljörðum Bandaríkjadala á öðrum ársfjórð- ungi, jafnvirði 210 milljarða íslenskra króna. Hlutabréf í Lehman Brothers hafa lækkað um tæp 25 prósent frá því að uppgjörið var birt og fóru lægst í 22,70 á hlut. Bréfin tóku við sér í gær og stóðu í 24,48 um miðjan dag en hafa þó ekki verið lægri frá miðju ári 2000. - bþa Lehman lækk- ar fólk í tign Greiningardeild Landsbankans spáir ríflega þrettán prósenta verðbólgu á ársgrundvelli, í þess- um mánuði. Enn fremur spáir bankinn því að tólf mánaða verð- bólga verði tæplega fjórtán pró- sent í ágúst, en nái þá hámarki. Gangi þetta eftir hafa ekki sést svona háar verðbólgutölur frá því óðaverðbólga níunda áratugarins rann sitt skeið. Tólf mánaða verð- bólga í ágúst árið 1990 mældist þá 14,2 prósent. Greiningardeildin segir að áhrif af gengislækkun krónunnar séu að mestu komin fram. Hún bendir á að lækkandi fasteignaverð dragi úr verðbólgu. Greiningardeild Glitnis hefur einnig spáð vaxandi verðbógu. - ikh Óðaverðbólgutölur Það er mikilvægt fyrir bankana og íslenskt fjármálakerfi að sýna að það búi ekki við einangrun og erlendir aðilar séu að fjárfesta í og með íslensku bönkunum, sagði Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupþings í London, í hádegisvið- tali Markaðarins í gær. Ármann bendir á að umræðan sé að snúast til hins betra og erlendir greiningaraðilar séu ekki jafn neikvæðir og áður. Hann segir einnig að erlendir fjárfestar séu ekki spenntir fyrir íslenskum fyrirtækjum vegna smæðar mark- aðarins. - bþa Komast úr einangrun SAMVINNUSJÓÐURINN SAMT STÆRSTUR Þótt hluthöfum í Gift fjölgi um fjögur þúsund, þá hefur það engin áhrif á heildarmyndina. „Sjóður hinna dauðu“ verður stærsti hluthafinn. Finnur Ingólfsson er stjórnarformaður sjóðsins, en í hann hafa runnið réttindi þeirra sem fallið hafa frá. Myndin er frá aðalfundi sjóðsins á dögun- um. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.