Fréttablaðið - 14.06.2008, Blaðsíða 18
14. júní 2008 LAUGARDAGUR
E
ins og þekkt er orðið hefur Gísli Örn
Garðarsson nýlega skrifað undir
samning um hlutverk í myndinni Prince
of Persia: The Sands of Time sem Jerry
Bruckheim-
er framleiðir. Gísli
mun fara með
hlutverk illmennisins
Hassans en þeir sem
þekkja til Gísla segja
hann þó vinalegan,
hjartahlýjan,
skemmtilegan og
fyndinn. Gísli Örn er
maður vikunnar.
Gísli bjó lengi í
Noregi og prófaði
ýmislegt áður en hann
fann sína réttu hillu.
Hann stoppaði stutt
við í norskum
fimleikaháskóla,
reyndi fyrir sér í
félagsfræði við
Háskóla Íslands og
fór svo aftur til
Noregs til að læra
Evrópufræði. Þar
byrjaði hann í
leiklistinni, þegar
hann lék með stúd-
entaleikfélagi
lögfræðinema í Ósló,
þó svo að hann hefði
aldrei lagt stund á
lögfræði. Hann setti
síðar upp sínar eigin
sýningar, meðal
annars Rocky Horror
í Noregi og bítlasýn-
ingu á Íslandi.
Gísli hafði engan
sérstakan áhuga á
leiklist í æsku og
engan hefði órað fyrir
því að hann ætti eftir
að gera garðinn
frægan á því sviði.
Raunar hafði hann
sjálfur ekki grun um
það fyrr en hann fór
að velta því fyrir sér á
hvaða sviði hann gæti
nýtt fimleikahæfi-
leika sína. Árið 1995
kynntist Gísli
eiginkonu sinni, Nínu
Dögg Filippusdóttur.
Þau bjuggu saman í
kommúnu í Noregi;
tóku John Lennon og
Yoko Ono sér til
fyrirmyndar og vildu
vinna sem götulista-
menn. Helsti draum-
urinn var að ferðast
um heiminn en hann
náði ekki lengra en á
aðalgöngugötu Noregs
þar sem þau spiluðu
eitt sinn ásamt
fleirum á djembít-
rommur og didger-
idoo og söfnuðu
peningum í hatt.
Árið 1997 sótti
Gísli, hikandi þó, um í
Leiklistarskóla
Íslands ásamt Nínu
Dögg og komust þau
bæði inn. Nína hefur
því ávallt verið hans
nánasti samstarfs-
maður hans og félagi.
Hún var meðal
þeirra sem stofnuðu
með honum leikhópinn Vesturport. Hópurinn
hefur notið mikillar velgengni frá upphafi og sett
upp sýningar víða um heim, meðal annars í
Bretlandi, Mexíkó, Suður-Kóreu og Rússlandi.
Hópurinn hefur yfirleitt hlotið einróma lof
gagnrýnenda og jákvæða umfjöllun í virtum
dagblöðum og tímaritum á alþjóðavísu. Auk þess
hefur hópurinn gert kvikmyndirnar Börn og
Foreldra.
Í Gísla mætast ákveðnar andstæður. Hann er
sagður óvenju kraftmikill og atorkusamur en engu
að síður einstaklega rólegur. Frægt dæmi um
rólyndi hans er þegar Vesturport setti upp
Kommúnuna í
Mexíkó. Þá var
leikmyndin ekki
komin á frumsýning-
ardag og erfiðlega
gekk að ná henni úr
tollinum. Allir aðrir í
hópnum voru að fara
á límingunum en Gísli
var pollrólegur og
hafði engar áhyggjur.
Þessi rósemi þykir
bæði kostur og galli.
Fólki finnst yfirvegun
hans ýmist þægileg og
róandi eða einn af
fáum eiginleikum
Gísla sem fer í
taugarnar á því.
„Þetta fer allt eftir
aðstæðum,“ segir
félagi hans. „Þegar
maður er að farast úr
stressi eða að flýta
sér er erfitt að vera
með svona hægum
manni. Stundum spyr
maður sig hvort það
renni ekki í honum
blóðið. Ég þekki
engan sem gengur
svona hægt, þrátt
fyrir ótrúlega langar
lappir.“ Sá bætir þó
við að þetta sé eini
galli Gísla.
Það er þó ljóst
þegar afrekaskrá
Gísla er skoðuð að
blóðið í honum rennur
prýðilega. Hann hefur
alltaf nóg fyrir stafni
og starfar jöfnum
höndum sem leikari,
leikstjóri, handritshöf-
undur og framleiðandi
bæði í kvikmyndum,
leikhúsi og sjónvarpi.
Auk þess stofnaði
hann Hverfisbarinn
og auglýsingapóst-
kortafyrirtæki sem
tröllreið þjóðinni í
upphafi aldarinnar.
Raunar segir einn
vinur hans að hann sé
blanda af athafna-
manni og nörd. „Hann
er rosalega mikill
töffari út á við, en inn
við beinið er hann
algjör nörd − í góðri
merkingu þess orðs.“
Annað dæmi um
mikla orku hans er að
hann stundaði
fimleika lengi framan
af ævinni og náði
þeim merka árangri
að vera liðsmaður í
þremur landsliðum í
greininni, því íslenska,
danska og norska.
Hann er sem sagt
framtakssamur mjög
og telja margir vina
hans það hans helsta
kost. „Hann hefur
engar innri hömlur og
gerir það sem honum
dettur í hug. Hann
fylgir hugmyndunum
eftir frá A til Ö og lætur hlutina gerast,“ segir einn
samstarfsmaður hans. Hugmyndirnar eru margar
eins og sést, Gísli þykir á köflum sveimhugi með
troðfullt höfuð − þannig að líklega er ekki skrítið
að hann sé oft utan við sig og taki ekki endilega
eftir því sem fólk í kringum hann er að segja.
Hann er líka óstundvís en það skal ósagt látið hvort
það sé vegna þess að hann gleymi sér í hafsjó
hugmyndanna eða hve hægt hann gengur.
MAÐUR VIKUNNAR
Rólegur athafnanörd
GÍSLI ÖRN GARÐARSSON
ÆVIÁGRIP
Gísli Örn Garðarsson fæddist í Reykjavík 15. desember 1973.
Foreldrar Gísla eru þau Garðar Gíslason kennari og Kolbrún
Högnadóttir sjúkraliði en þau er skilin. Gísli er giftur Nínu
Dögg Filippusdóttur leikkonu sem var með honum í bekk
í leiklistarskólanum og starfar með honum í leikhópnum
Vesturporti. Dóttir þeirra heitir Rakel María.
Gísli Örn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamra-
hlíð árið 1992 og stundaði svo nám hér og þar meðal annars
í norskum fimleikaháskóla og bæði við Háskóla Íslands og
Háskólann í Ósló. Hann útskrifaðist svo vorið 2001 frá leik-
listardeild Listaháskóla Íslands.
Gísli er einn af stofnendum leikhópsins Vesturports og
hefur leikið og leikstýrt mörgum velheppnuðum verkefnum
með hópnum auk þess sem hann hefur séð um framleiðslu.
Gísli hefur meðal annars leikið í leikritunum Hamskipt-
unum, Rómeó og Júlíu, sjónvarpsþáttunum Mannaveiðum
og kvikmyndinni Börnum, sem hann tók líka þátt í að skrifa
handritið að. Nýverið tryggði hans sér hlutverk í Hollywood-
myndinni Prince of Percia: The Sands of Time. Helstu leik-
stjórnarverkefni Gísla eru Woyzeck og Rómeó og Júlía.
VANN SÉR TIL FRÆGÐAR:
Vakti athygli í norskum smábæ þegar hann var ellefu ára
gamall þegar hann dansaði breikdans á götum bæjarins við
mikinn fögnuð bæjarbúa.
HVAÐ SEGJA AÐRIR?
„Hann er skemmtileg blanda af athafnamanni og nörd. Hann
virkar rosalega mikill töffari út á við, en inn við beinið er
hann algjör nörd - í góðri merkingu þess orðs.“
Ragnar Bragason, leikstjóri og samstarfsmaður.
HVAÐ SEGIR HANN
„Ég [er] voðalega flinkur í að nota dauðan tíma, sem til fellur
hjá sjálfum mér, í annað. Það er ákveðin gjöf eða kannski
ókostur.“
Gísli í Morgunblaðinu 13. október 2001
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS
S. 512 5426 - vip@365.is S. 512 5441 - hrannar@365.is
Við erum stolt af starfsemi okkar! Viltu vera með?
ILVA er ný húsgagna- og heimilisvöruverslun frá Danmörku. Við erum stolt af orðspori okkar er varðar gæði, verðlagningu og þjónustu. Fyrir okkur er gott einfaldlega ekki nógu gott.
Við viljum vera stolt af starfsfólki okkar og við viljum að starfsfólkið sé stolt af okkur.
Laus störf í nýrri verslun okkar í Reykjavík Síðsumars mun ILVA opna nýja og glæsilega verslun á Korputorgi við Vesturlandsveg. Því leitum við að framúrskarandi starfsfólki til liðs við okkur.
Fyrir þig er þetta frábært tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu einstakrar verslunar. Í boði eru eftirtalin störf:
Viltu slást í hópinn?
Frekari upplýsingar um störfi n fást hjá STRÁ MRIGuðný Harðardóttir og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson svara
fyrirspurnum, en viðtalstímar eru frá kl. 13–15. Vinsamlegast
sendið umsóknir/starfsferilskrár til stra@stra.is.Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2008. Upplýsingar
má einnig nálgast á heimasíðu STRÁ www.stra.is.
Sölumenn
Við leitum að smekkvísum og þjónustuliprum sölumönnum,
sem hafa næmt auga fyrir straumum og stefnum sem og
framsetningu húsgagna og húsbúnaðar.
Við leggjum áherslu á ríka þjónustulund, góða söluhæfi leika
og metnað fyrir að skila framúrskarandi árangri í starfi .
Reynsla af sölu húsgagna og húsbúnaðar er kostur.Lagermenn
Við leitum að duglegum, þjónustuliprum lagermönnum til
framtíðarstarfa í sérhönnuðu lagerhúsnæði.
Fjölbreytt þjónustustörf
Við óskum eftir að ráða þjónustuglaða og jákvæða starfmenn
til að sinna ýmsum fjölbreyttum þjónustustörfum. Ýmis störf eru í boði, m.a. Gjaldkerastörf á afgreiðslukössum.
Við bjóðum glæsilegt vinnuumhverfi , góða starfsþjálfun, lífl eg,
fjölbreytt og skemmtileg störf, góð laun, sveigjanlegan vinnutíma,
heilsdags- og hálfsdagsstörf sem og hlutastörf um helgar.
Tækifærið er þitt – hafðu
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
menning
júní 2008
NORRÆN SAMTÍMALIST
Í BRENNIDEPLI Carnegie Art Award
■ DJASS Á EGILSSTÖÐUM ■ TRAUSTI JÚLÍUSSON ■ KJÖTBORG ■ BIRNA BJA
■ ÞÓRDÍS AÐALSTEINSDÓTTIR ■ TEITUR ATLASON ■ GRÍMAN ■
Kaffi barsfl ugur
Ljósmyndabókin Barfl ies eftir Einar Snorra og Eið
Snorra kemur út í New York um helgina.
Fréttablaðið rifjar upp stemninguna á Kaffi -
barnum árið 1994 ásamt fastagestum hans.
Hver er besti ísinn í bænum?
Fréttablaðið fékk þjóðþekkta Íslendinga til að
bragða ís og fella dóm.
Menning fylgir Fréttablaðinu á
sunnudag.
- Carnegie Art Award haldin í tíunda sinn
- Norræn myndlist í brennidepli
- Benni Hemm Hemm gefur út nýja plötu,
heimildarmyndin Kjötborg, ferill Pauls Simon,
Teitur Atlason skrifar um guðfræði og dómur um
nýjustu afurð Sigur Rósar.
Menning
Auglýsingasími
– Mest lesið