Fréttablaðið - 14.06.2008, Page 58
30 14. júní 2008 LAUGARDAGUR
Ef þú værir ekki plötusnúður, hvað
værir þú þá? Ég er hvort eð er að gera
fullt af öðrum hlutum en að snúa skíf-
um. Ég er framleiðandi hjá CCP-leikj-
um, meistarakokkur, listakona og rit-
höfundur. Ef ég gæti valið eitt
draumastarf þá væri það að vakna
einn góðan veðurdag með alla þá kunn-
áttu sem þarf til þess að verða geim-
vísindafræðingur.
Hvaðan ertu og hvernig endaðir þú
á Íslandi? Ég fæddist í enskri sveit í
afar fallegu héraði. Ég kom fyrst til til
Íslands til að skrifa um Airwaves árið
2001 og vaknaði fyrsta daginn með
verstu þynnku sem ég hef nokkru sinni
upplifað og átti fullt af nýjum vinum.
Það var mjög auðvelt í fyrstu að fljúga
til London og til baka sem ég gerði ótt
og títt en svo varð ódýrara að einfald-
lega flytja hingað.
Hvenær varstu hamingjusömust?
„Varstu“ er eitthvað í fortíðinni en ég
er hamingjusöm núna. Kannski var ég
þó hamingjusamari sem saklaus fimm
ára stúlka þegar hver dagur færir nýja
uppgötvun. En eitt sem stendur upp úr
nýlega er þegar ég var að framleiða
síðasta þáttinn af Weird Girls.
(myspace.com/theweirdgirls). Ég stóð
upp í miðjum klíðum og fjarlægði kan-
ínugrímuna af höfðinu á mér og brosti
breitt. Þá var ég á kafi í snjó og sólin
skein í heiði. Ég var umkringd nítján
stúlkum í spandexgöllum, með kanínu-
grímur og sveðjur, og þetta var rosa-
legt.
Ef þú byggir ekki í Reykjavík, hvar
myndirðu þá helst vilja búa? Erfið
spurning. Ég er ekki viss. Það eru svo
margir staðir sem ég vildi gjarnan
eyða þremur mánuðum en ekki búa
þar. New York til dæmis. Eini staður-
inn í heiminum sem mér dettur í hug
að búa á í framtíðinni er Skotland.
Hver er uppáhaldsflíkin þín? Ég á
svona tólf billjónir af uppáhaldsflík-
um, þetta fer allt eftir skapi. Ég er
mjög hrifin af samfestingum og ég á
marga svoleiðis.
Hvenær og hvernig byrjaðir þú
fyrst í tónlistarbransanum? Ég var að
skrifa fyrir tónlistartímarit og vefsíð-
ur í London og var stundum að skipu-
leggja tónleikaferðir fyrir hljómsveit-
ir. Ég byrjaði ekki að þeyta skífum
fyrr en hér á Íslandi fyrir nokkrum
árum. Mig langaði svo að spila lög,
ekki bara einhver stef. Ég fór til
dæmis alltaf að hlusta á DJ KGB út af
einmitt þeirri ástæðu. Svo hætti hann
að spila á tímabili og ég heyrði ekkert
nema teknó á börunum sem ég fór á.
Ég elska að DJ-a og fólk tekur alltaf
gríðarlega vel í það og dansar brjálað.
Ég spilaði í afmæli um daginn á Dillon
og þrátt fyrir að ég væri ekki að spila
„þeirra“ tónlist þá voru allir komnir
upp á borð að dansa eftir smástund. Þá
á ég erfitt með að hætta, ég fæ svo
mikið kikk út úr því að ýta á play-takk-
ann þegar maður veit að fólk mun æpa
af gleði.
Hvaða New York 90‘s-partí er þetta
á laugardaginn? Ég er svo spennt yfir
því, ég held að þetta verði besta kvöld
sem ég hef spilað á um ævina. JD úr
hljómsveitinni Le Tigre kemur til að
þeyta skífum með mér ásamt Lauren
Flax frá New York. Lauren er góð vin-
kona mín og um ári eftir að ég byrjaði
með 90‘s-kvöldin hér tóku hún og JD
upp á að gera það sama í New York.
Við höfum verið að skipuleggja þetta
kvöld í langan tíma. Lauren hefur
unnið meðal annars með Carl Craig,
Jungle Brothers, Green Velvet, Boy
George, Miss Kitten, Moby, Scissor
Sisters, Klaxons, Peaches og Basement
ÞRIÐJA GRÁÐAN
ÞRIÐJA GRÁÐAN: Kitty Von-
Sometime
STARFSFERILL Í HNOTSKURN: Ég
hef svo mikið að gera að mér mun
aldrei leiðast.
FÆÐINGARÁR: 1977, árið sem
pönkið stóð sem hæst og geimskutl-
unni Voyager 2 var skotið á loft.
Allir dansa uppi á borði
Breska ofurskvísan Kitty Von-Sometime (öðru nafni Kiki-Ow) þeytir skífum á Organ á laugardags-
kvöldið en þá verður haldið mikið „næntís“-partí ásamt plötusnúðunum Lauren Flax og JD Samson
frá New York. Anna Margrét Björnsson tók Kitty í þriðju gráðu yfirheyrslu.
KITTY VON-SOMETIME Uppáhaldsorðið mitt á íslensku er „kannski“.
■ Á uppleið
Allt sem tengist Beðmálum í borg-
inni. Cosmopolitan-kokkteilar, Manolo
Blahnik-skór og skvísuleg föt.
Borgar-
hjólin.
Frábær
lausn á
hækkandi
bensín-
verði og
umhverfis-
væn í þokkabót. Hægt að brjóta þau
saman og svo kosta þau ekki mikið.
Sumarbústaðarferðir. Að flatmaga í
grasinu með límonaði í hönd og hlusta á
flugurnar suða.
Airwaves. Við
héldum að ballið
væri búið og svo
koma stórkost-
legar hljómsveitir
eins og CSS og
Familjen í haust.
Snilld.
Prjónaskapur. Allir að mæta í Hallar-
garðinn og prjóna úti í sólinni. Vistvænt og
hressandi.
■ Á niðurleið
Þulirnir á EM. Hver fær ekki bjánahroll
þegar Þorsteinn J. rýnir í myndavélina
og segir alvarlegri röddu að þetta sé svo
sannarlega „karlmennskusport“ því það
rétt rigndi á eitt liðið í vikunni.
Gallapils
og svartar
gammós-
íur undir.
Þessi eitr-
aða sam-
setning er
hreinlega
faraldur um þessar mundir í sólinni á
Austurvelli og er vægast sagt púkaleg.
Krepputal. Mikið er þetta orðið leiðin-
legt. Á maður ekki að vera jákvæður á
sumrin og taka upp neikvætt hjal þegar
haustar?
Strákar í skræpóttum neonlituðum
hettupeysum.
New Rave-lúkkið
er algjörlega búið.
Klámfréttir.
Það er eins og
vissir pennar fái
útrás við að flytja
hverja fréttina
af fætur annarri
af barnaníðing-
um og brjósta-
stækkunum, og
auðvitað allt með
stafsetningarvill-
um. Fyrirsagnir
eiga ekki að
innihalda orðið
„túttur“.
MÆLISTIKAN
Jaxx. Í síðasta mánuði þeytti
hún skífum fyrir Madonnu. JD
fylgdi Peaches í síðustu tón-
leikaferð og er á plötunni henn-
ar.
Af hverju ertu svona hrifin af
90‘s-tónlist? Ég og Bibbi Curver
vorum alltaf að rífast um hvor
áratugurinn væri betri, 80‘s eða
90‘s. Ég var alltaf svona eítís-
stelpa en eftir að við byrjuðum
að skiptast á tónlist þá komst ég
að því að það eru til snilldarlög
frá síðasta áratug. Svo kom
gamla reif-senan aftur í tísku í
Bretlandi og við ákváðum að
gera eitthvað sem mótvægi.
„Ég fann þetta mix í skrýtinni
götu í Þýskalandi, er ég ekki
svalur af því enginn hefur heyrt
þetta áður?“. Við spilum lög
sem fólk þekkir og skammast
sín stundum fyrir að þekkja.
Annars veit ég ekki hvað svala
fólkið gerði eiginlega á þessum
áratug, ætli það hafi ekki allt
verið með broskarl á hnakkan-
um og stökkvandi upp í loft með
sjálflýsandi reifprik.
Hvað með föt frá tíunda ára-
tugnum? Ég geng mikið í þeim,
en svona samansett á nýjan
hátt. Hönnuðir eins og Imba,
sem er íslenskur hönnuður í
New York, hafa gert handa mér
ýmiss konar samfestinga og svo
geng ég mikið í neonlituðum frá
Nakta apanum.
Hvert er versta starf sem þú
hefur nokkurn tímann gegnt?
Ég hef oft verið að þrífa en það
var ekki svo slæmt. Versta
starfið var rétt áður en ég flutti
hingað. Þá flutti ég aftur í
sveitaþorpið mitt frá London til
að spara pening og þurfti að
skrá gögn inn á tölvu í tíu tíma á
dag í gluggalausri skrifstofu
með ekkert internet. Ég varð
næstum því sturluð.
Hvernig tónlist hefur mestu
áhrifin á þig og hvaða lag ertu
að hlusta á í iPodinum þessa
vikuna? Ég hlusta á svo ólíka
stíla. Þessa vikuna hlusta ég
meðal annars á Siouxsie and the
Banshees, Le Tigre, Modest
Mouse, The Orb og The Knife.
Er eitthvað sem heldur fyrir
þér vöku á nóttunni? Kötturinn
minn. Hann nagar á mér tærn-
ar.
Ef þú ættir tímavél, hvert
myndir þú fara og af hverju? Ef
ég myndi ekki slasast þá myndi
ég vilja fara alveg aftur að
Stóra hvelli og athuga hvort
Hawking hafði rétt fyrir sér.
Svo myndi ég vilja hitta for-
eldra mína þegar þau voru átján
ára og fá mér kaffibolla með
þeim til þess að athuga hvernig
þau voru þá.
Áttu þér leynda nautn? Já,
CSI-þættina. Ég er yfir mig
hrifin af þeim. Ég veit að þeir
eru formúlukenndir og hallæris-
legir en það færist yfir mig
innri ró þegar ég horfi á þá.
Hvaða núlifandi manneskju
lítur þú mest upp til? Á Íslandi
er það nágranninn minn hún
Fríða og besta vinkona mín Kar-
ólína sem kemur mér stöðugt á
óvart. Í Englandi eru það auð-
vitað foreldrar mínir, ekki af
því að mér finnist ég verða að
segja það heldur vegna þess að
það er satt.
Hvaða núlifandi manneskju
hatar þú mest? Það er ömurlegt
að hata, það er tilfinning sem
nagar mann að innan. Ég hata
engan. Bara þoli ekki frekjur og
fólk sem gerir öðrum mein.
Hvaða eitt atriði myndi auka
lífsgæði þín? Fjölskylda, ein-
hvern daginn. En akkúrat núna
væri það meiri tími og jafnvel
aðstoðarmanneskja.
Hvaða frasa ofnotar þú?
„Heyrðu!“ og svo nota ég alltaf
orðið „casual“ yfir allt án þess
að vita af hverju.
Hvert er uppáhaldsorðið þitt
á íslensku? Kannski! Það er
yndislegt. Sérstaklega ef fólk
segir kaaaaannski með þessu
hiki. Það er svona stríðni í því.
Hvað er svo á döfinni í sumar?
Við erum að safna pening til
þess að koma Weird Girls-verk-
efninu á listahátíð í London. Við
verðum með límonaðistand á
Austurvelli næsta laugardag og
Berglind Ágústsdóttir mun
flytja tónlist. Við verðum allar í
búningum að sjálfsögðu. Svo
verðum við með grill á Q-bar
fimmtudaginn 26. júní og ég
spila þar fram eftir kvöldi.
Hvaða lag ætti að spila í
jarðar förinni þinni? „You Ain‘t
Seen Nothing Yet“ með Bach-
man Turner Overdrive.
Kitty Von-Sometime spilar á
Organ í Hafnarstræti í kvöld frá
klukkan 23.30