Fréttablaðið - 01.07.2008, Síða 46
22 1. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
V
in
n
in
g
a
r
ve
rð
a
a
fh
e
n
d
ir
h
já
B
T
S
m
á
ra
lin
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
e
ð
þ
v
í a
ð
t
a
k
a
þ
á
tt
e
rt
u
k
o
m
in
n
í
S
M
S
k
lú
b
b
. 1
4
9
k
r/
sk
e
yt
ið
.
HVER VINNUR!
9.
SENDU SMS
BTC KFP Á NÚMERIÐ 1900
VINNINGAR: BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR, VARNINGUR
TENGDUR MYNDINNI, DVD MYNDIR OG FLEIRA!
> FINNST HRUKKURNAR FÍNAR
Cate Blanchett finnst kynþokka-
fullt að hafa hrukkur og finnst
fólk sem fer í lýtaaðgerðir vera
sjálfhverft. Leikkonunni finnst
ekki aðlaðandi að sjá hvernig
fimmtugt fólk hefur þurrkað út
æviár sín með lýtaaðgerðum og er
fullviss um að hrukkur muni þykja
kynþokkafullar eftir fimmtíu ár.
Sýningar hefjast á Ríkinu,
nýrri grínþáttaseríu á Stöð
2, í ágúst. Yfirumsjón með
handritsgerð þáttanna hafði
Sigurjón Kjartansson, en
sex manna hópur lagði í
handritspúkkið. Þeir Auddi
og Sveppi fara með stór
hlutverk í þáttunum og
Silja Hauksdóttir leikstýrir
þeim. Þá voru bræður grín-
istanna Péturs Jóhanns og
Þorsteins Guðmundssonar
einnig í handritsteyminu,
þeir Árni Jón Sigfússon og
Magnús Guðmundsson. Eru
þeir þá loksins að komast
út úr grínskugga bræðra
sinna?
„Ég hef aldrei talið mig lifa í ein-
hverjum skugga,“ segir Árni Jón,
bróðir Péturs Jóhanns. Hann er
þremur árum eldri. „Mér líður
allavega mjög vel í þessum meinta
skugga.“
Árni er arkitekt og hafði aldrei
skrifað grínþætti áður. „Ég veit nú
bara ekki af hverju ég var fenginn
í þetta. Ætli bróðernið hafi ekki
potað mér að, svo hef ég líka
Heimi Jónasson, þáverandi dag-
skrárstjóra, grunaðan um að hafa
mælt með mér.“
Árni segist gríðarlega stoltur af
litla bróður og fylgjast grannt með
ferli hans. „Ég er engan veginn
jafn fyndinn, enda er hann atvinnu-
maður og fær borgað fyrir þetta.
Það er aldrei grín í fjölskylduboð-
unum. Við högum okkur vel.“
Skriftirnar voru skemmtilegar
að sögn Árna. „Það var voða frjálst
form á þessu. Það var skipt í minni
hópa og svo hittumst við öll af og
til og bárum saman bækur okkar.“
En nú er það bara aftur í arki-
tektúrinn. „Hvað er ég að teikna?
Ég get ekki beint sagt að það sé
eitthvað djúsí. Ég er að poppa upp
nokkur elliheimili, gera íbúðirnar
stærri og notendavænni.“
Magnús Guðmundsson, sem er
ári yngri en bróðir hans, Þor-
steinn, segist ekki heldur hafa
verið að skrifa sig út úr gríns-
kugganum af bróður sínum. „Ég
kannast ekki við téðan skugga og
það er engin öfund hjá mér, enda
er ég fyndni bróðirinn,“ segir
hann. Auglýsingagerð hefur verið
meginatvinna Magnúsar en þó
liggur eftir hann ein skáldssaga,
Sigurvegarinn. „Sigurjón bað mig
um að prófa þetta þegar ég var í
pásu frá auglýsingagerðinni.
Þetta var mjög skemmtilegt og
gaman að prófa það sem stóri
bróðir er alltaf að gera. Samt er
þetta erfiðara en ég átti von á. Það
er dálítið mál að sitja og reyna að
vera fyndinn fyrir framan tölv-
una.“
Er svo eitthvað varið í Ríkið?
„Tja, ég hef nú ekkert séð ennþá,
en las brot af handritinu. Þar var
margt mjög gott. Ég vona allavega
að það verði gaman að þessu,“
segir Magnús.
Ríkið hefst 22. ágúst á Stöð 2.
Gerðir voru tíu þættir í fyrstu
lotu. gunnarh@frettabladid.is
Líður vel í skugganum
DÁLÍTIÐ MÁL AÐ VERA FYNDINN FYRIR FRAMAN TÖLVUNA Magnús, bróðir Þorsteins
Guðmundssonar, og Árni Jón, bróðir Péturs Jóhanns Sigfússonar, skrifuðu handritið
að grínþættinum Ríkinu ásamt öðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FÓLKIÐ Í RÍKINU Efri röð frá vinstri:
Auðunn Blöndal, Vignir Rafn Valþórsson,
Elma Lísa Geirsdóttir, Víkingur Kristjáns-
son og Inga María Valdimarsdóttir. Sitj-
andi: Halldóra Geirharðsdóttir, Þorsteinn
Bachmann og Sveppi.
„Þessi eyja er skólabókardæmi
um hvernig á að reka góða nætur-
klúbba. Ég er búinn að vera í
njósnaferð milli klúbba og tékka á
því hvernig þeir fara að þessu, og
veistu... ég held bara að kvöldin
mín á Nasa standist allar kröfur,“
segir Páll Óskar, sem nú nýtur
lífsins á Ibiza en fellur ekki verk
úr hendi frekar en fyrri daginn.
Páll Óskar undirbýr nú stærsta
styrktarball ársins sem verður á
Nasa 5. júlí þar sem hann ætlar að
þeyta skífum stanslaust frá klukk-
an 23 og fram undir morgun og
syngja sína helstu smelli. Páll er
væntanlegur til landsins sjóð-
heitur og sólbrúnn á næstu dögum.
Sérstakur gestur verður Haffi
Haff. Miðaverð rennur óskipt til
Hinsegin daga. „Já, þá verður
sléttur mánuður í Gay Pride og
gráupplagt að fá smjörþefinn af
herlegheitunum í sannkallaðri
„pride“ stemningu með Palla á
Nasa,“ segir tónlistarmaðurinn
kátur. Og heldur því fram, þrátt
fyrir allt, að stuðið sé jafn geggjað
á Íslandi og á Ibiza. „Hér eru heit-
ustu plötusnúðarnir, Tiesto, Carl
Crag, David Guetta... en allir
þessir gaurar hafa komið til
Íslands að spila.“
Páll Óskar segir að allt hafi
orðið brjálað þegar fyrir lá að
Spánn hafi sigrað á EM. „Spán-
verjar gjörsamlega misstu sig.
Flugeldar úr öllum húsum. Eins og
gamlárskvöld hjá kolvitlausum
Íslendingum. Meira að segja gaml-
ar kerlingar og smábörn hlupu út
á göturnar argandi og gargandi,“
segir Páll Óskar, sem nú breytist á
augabragði í fréttaritara Frétta-
blaðsins á Spáni. „Göturnar hér
loguðu af gleði. Það fór enginn að
sofa þessa nóttina. Löggan tók þátt
í látunum, argandi og gargandi
löggur úti um allt. Tótal stjórn-
leysi. Sem betur fer voru engar
rúður brotnar eða kveikt í bílum.
Bara gleðilæti.“ - jbg
Spæjar um næturklúbba á Ibiza
PÁLL ÓSKAR Njósnar um næturlífið á
Ibiza og ætlar ekki að draga af sér í
„pride“ stemningunni heim kominn.
SJÁLFSÖRUGGARI EN ÁÐUR FYRR Lind-
say Lohan segist vera hamingjusöm og
vill ekki láta þyngdina stjórna lífi sínu.
Lindsay Lohan neitar að stíga á
vigtina því hún vill ekki að þyngd-
in stjórni lífi hennar. Í viðtali við
breska tímaritið OK segist
leikkonunni líða vel í eigin skinni
og vera hamingjusöm, borða vel,
skemmta sér og ekki leggja of
mikla stund á líkamsrækt.
Leikkonan segist þó finna fyrir
pressunni sem fylgir því að starfa
í Hollywood og segist myndu vilja
breyta ýmsu hvað varðar útlit
sitt. „Ég myndi vilja vera
hávaxnari og ég þoli ekki
fótleggina mína,“ sagði Lindsay í
viðtalinu og kveðst vera mjög
meðvituð um eigið útlit. „Ég hef
oft áhyggjur af freknunum,
hárinu og tapa mér ef ég fæ bólu.
En í fúlustu alvöru, þá er ég orðin
mun sjálfsöruggari en ég var
áður fyrr,“ segir Lindsay.
Neitar að
stíga á vigtina
Nú er komið í ljós að leikkonan Sienna
Miller hefur ekki verið að slá sér upp
með leikaranum Matthew Rhys eftir allt
saman, heldur með samleikara hans úr
þáttaseríunni Brothers and Sister, Balt-
hazar Getty. Sienna og Balthazar hafa
þekkst í einhvern tíma og var það hinn
fyrrnefndi Matthew Rhys, sem er fyrr-
verandi kærasti Siennu og samleikari
Balthazars, sem kynnti þau. Samband
þeirra var aðeins vinátta til að byrja
með en varð innilegra eftir að Sienna
dvaldi í Los Angeles í mars við tökur
myndarinnar GI Joe. Sienna er nú
aftur stödd í borg englanna og
hefur varið flestum stundum þar með
Balthazar.
„Sienna hætti með Rhys Ifans þegar
hún áttaði sig á því að hún væri að falla
fyrir Balthazar. Hún vildi gera það rétta
í stöðunni. Eftir að Sienna hætti með
Rhys hefur hitnað nokkuð í kolunum
milli hennar og Balthazar,“ segir heim-
ildarmaður um sambandið. Balt-
hazar virðist þó ekki hafa jafn
miklar áhyggjur og Sienna af
því að gera hið rétta því hann
er giftur og fjögurra barna
faðir.
Sienna með kvæntum manni
BALTHAZAR GETTY Nýi kærastinn
er giftur og fjögurra barna faðir.
NORDICPHOTOS/GETTY
SIENNA MILLER Sparkaði Rhys Ifans til að geta
verið með Balthazar Getty.
Auglýsingasími
– Mest lesið