Fréttablaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
6. júlí 2008 — 182. tölublað — 8. árgangur
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM ÍÞRÓTTIR ]
Sport
júlí 2008
MEIRI METALL Í KVENNABOLTANUMÍÞRÓTTAMÖMMURNARVONARSTJÖRNUR KVENNABOLTANSDÓMARAR FÁ ÞJÁLFARA
FYLGIR Í DAG
Þúsundir
titla í boði
á ótrúlegum
verðum
OPIÐ 11 - 19
ALLA DAGA VIKUNNAR
BYÐU ÖSSURI MEÐ Í ÚTILEGU
Sigurlaug M. Jónasdóttir og
Sigmar B. Hauksson settust á
rökstóla
AÐ LIFA KREPPUNA AF
Tilboðsmatur, afgangar og salat
úr garði nágrannans. Hagsýnir
ráðgjafar gefa sparnaðarráð.
VIÐSKIPTI „Gengi íslensku krón-
unnar er hagstætt fyrir útlend-
inga og við finnum fyrir því,“
segir Sandra Jóhannsdóttir,
starfsmaður í Víkurprjóni í Vík í
Mýrdal.
Sandra segir að salan hafi auk-
ist mjög hjá fyrirtækinu milli
ára. Aukningin nemi líklega þrjá-
tíu til fjörutíu prósentum.
„Það er mjög mikill munur á
gengi krónunnar nú og í fyrra og
við heyrum minna um að útlend-
ingarnir kveinki sér yfir verðlag-
inu á Íslandi,“ segir Sandra.
„Við höfum orðið vör við lítils
háttar söluaukningu milli ára,“
segir Bryndís Sigurðardóttir,
verslunarstjóri í Rammagerð-
inni.
Bryndís segir meira keypt af
litlum minjagripum og minna af
dýrari varningi í ár en áður. „Við
höfum fengið færri stóra kaup-
endur nú en oft áður,“ segir
Bryndís.
Bryndís segir að þrátt fyrir að
gengið sé hagstætt fyrir erlenda
ferðamenn í ár vegi verðhækkan-
ir þar upp á móti og minnki áhrif
gengisbreytinganna.
- ht
Gengi íslensku krónunnar mun hagstæðara fyrir erlenda ferðamenn en í fyrra:
Sala á prjónavörum rýkur upp
GEGN GUÐI OG
GÓÐU SIÐFERÐI
Aldarfjórðungur er liðinn
síðan Úlfar Þormóðsson,
útgefandi Spegilsins, var
dæmdur fyrir guðlast og
klám. HELGAREFNI 16
1410
VEÐRIÐ Í DAG
ENDURREISN STÓRVELDIS
Uppgangur rússneska fótboltans
og hvernig valdhafar nýta íþróttir
sér í hag.
HELGIN 12
SIGURHRINGURINN FH-ingar sigruðu í 43. bikarkeppni FRÍ sem lauk á Kópavogsvelli í gær en þetta var fimmtánda árið í röð sem
Hafnarfjarðarliðið vinnur keppnina. Liðið sigraði í bæði karla- og kvennaflokki og fyrirliðarnir Silja Úlfarsdóttir og Björgvin Víkings-
son hlaupa hér fremst í flokki með sigurlaunin. Sjá síðu 26 FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
TOKYO, AP Japanskur ævintýra-
maður, Kenichi Horie, sigldi um
7.800 kílómetra leið milli
Honululu á Hawaii og Wakayama
í Vestur-Japan á snekkju, knúinni
af afli frá sjávaröldunum. Kenichi
Horie kom í land í fyrradag en
ferðin hófst í mars. Ástæðuna
fyrir því hversu ferðin gekk seint
segir Horie vera þá að veðrið hafi
verið gott og sjórinn lygn.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
hinn 69 ára gamli Horie siglir á
náttúruvænu afli en árið 1992 fór
hann á fótstignum báti milli
Hawaii og Japan til að vekja
athygli á vistvænum ferðakostum.
- rat
Sigldi á afli sjávaraldna:
Veðrið var of
gott til siglinga
17
12
16
19
16
22
20
20
BJART MEÐ KÖFLUM Í dag
verður hægviðri eða hafgola. Bjart
með köflum og hætt við þokulofti
með ströndum, einkum norðan og
austan til. Hiti 12-22 stig, hlýjast til
landsins vestan til.
VEÐUR 4
HESTAR Ekki náðist að slá heims-
metið í 100 metra skeiði á
Landsmóti hestamanna í gær, líkt
og stefnt var að. Landsmótinu
lýkur í dag þegar úrslit verða ljós
í öllum keppnisgreinum.
„Það hefur allt gengið upp þrátt
fyrir vitlaust veður um tíma,“
segir Sigurður Ævarsson móts-
stjóri. Hingað hafa komið um 12-
15 þúsund manns og fólk er enn
að drífa að.“
Sigurður er ánægður með
hvernig til hefur tekist með
landsmótið og segir tímaáætlanir
hafa staðist. „Veðrið er mjög gott
núna og hér eru frábærir hestar
að keppa. Við erum ánægð með
mótið og fáum ekkert nema góð
viðbrögð frá fólki.“ - rat
Landsmót hestamanna:
Heimsmet ekki
slegið í skeiði
FÍNAR PEYSUR Erlendir ferðamenn
skoða vöruúrvalið hjá Rammagerðinni.
FÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SIGURÐUR ÆVARSSON Mótsstjóri er
ánægður með landsmótið.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FLÓTTAMENN „Ef þeir senda mig til
Kenía bið ég um að einhver sjái um
konuna mína og litla barnið mitt.
Ég get ekki til þess hugsað að það
verði fátækur betlari á götunum, ef
ég verð drepinn. Ég get ekki beðið
um neitt mikilvægara en þetta,“
segir Paul Ramses flóttamaður.
Paul dvelst nú í Sentrone-búðun-
um fyrir utan Róm og er vondaufur
um að Ítalir taki við honum, fyrst
að „ríkt land eins og Ísland vildi
ekki gera það“.
Í samtali við Fréttablaðið segist
hann biðja fyrir íslenskum stjórn-
völdum, sem hafi ef til vill sent
hann í opinn dauðann. Á Íslandi séu
sönnunargögn sem sýni að hann sé
á „dauðalista“ í heimalandinu.
„Og við erum þá samábyrg ef
hann verður myrtur,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna. „Við gætum tekið
upp símann og fengið hann til baka
á morgun. Ítalir myndu fagna því.
Tilfinningalega kemur það líka við
hjartað að sonur hans hafi fæðst á
Íslandi. Mér finnst hann verða svo-
lítill Íslendingur við það. Það er
ansi kaldranalegt ef við ætlum að
fara að sparka nýfæddum börnum
úr landi,“ segir hann.
Birgir Ármannsson, formaður
allsherjarnefndar, hefur ekki tekið
afstöðu til þess hvort mál hælisleit-
enda verði tekin fyrir í nefndinni,
en Steingrímur hefur farið fram á
að nefndin skoði mál Pauls. Birgir
útilokar þetta ekki. „En nefndin
hefur ekki úrskurðarhlutverk um
málefni einstaklinga eins og í þessu
tilfelli,“ segir Birgir.
Spurður álits á framkvæmd þess-
ara mála, í ljósi þess að hælisleit-
endur eru iðulega sendir til Evrópu
á grundvelli Dyflinnar-samnings,
segir Birgir: „Við höfum framfylgt
samningnum með þessum hætti og
ég held að það hafi ekki valdið nein-
um sérstökum vandræðum fyrir
okkur.“ - kóþ/ sjá síðu 6
Paul biðst vægðar
fyrir litla barnið sitt
Paul Ramses er vonlítill um að ítölsk yfirvöld taki við honum. Hann biður þess að
kona hans og fimm vikna gamalt barn verði ekki send til Kenía líka. „Ansi kald-
ranalegt að sparka nýfæddum börnum úr landi,“ segir formaður Vinstri grænna.