Fréttablaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 11
SUNNUDAGUR 6. júlí 2008 11
með lengra nám. Það þarf hins
vegar að sjá til þess að þær geti
unnið vinnuna sína án þess að taka
alla þessa yfirvinnu og svo er und-
arlegt að hjúkrunarfræðingar
lækki í launum við það að bæta við
sig námi og verða ljósmæður.
Silla: Það er auðvitað furðulegt
hvað þær eru með lág laun og
þetta er grafalvarlegt mál. Við
megum ekki missa ljósmæðurnar.
Sigmar: Varðandi það hverjum ég
hefði viljað taka á móti þá held ég
að ég verði að segja Björk. Ég vinn
í ferðaþjónustunni og það er eng-
inn Íslendingur sem er okkur jafn
mikils virði. Hróður Bjarkar er
svo gríðarlegur um allan heim og
hún er svo klár og gefur svo góða
mynd af landinu.
Silla: Ég hefði viljað taka á móti
Kjarval. Þá hefði ég skoðað vel á
honum hendurnar. Það er alveg
sama hvað maður skoðar verkin
hans oft. Maður verður alltaf jafn-
heillaður.
Á vespu til Kirkjubæjarklausturs
Nú leggjast landsmenn í ferðalög
og útilegur sem getur verið dýrt
með hækkandi eldsneytis- og mat-
vælaverði. Ef þið ættuð að fara
saman í ódýra útilegu, hvert
mynduð þið þá fara, hvaða þrem-
ur þekktu einstaklingum mynduð
þið bjóða með til að halda uppi
fjörinu og hver finnst ykkur
ofmetnasti ferðamannastaðurinn
á Íslandi?
Silla: Hjólarðu?
Sigmar: Já, já, ég hef gaman af
því.
Silla: Ef ég myndi lána þér vespu
…
Sigmar: Já, ég er til í það.
Silla: Þá held ég að við færum í
stuttan mótorhjólatúr. Það er
spurning hvert. Ég myndi fara á
Klaustur.
Sigmar: Það er nú heldur langt að
fara þangað á vespu.
Silla: Já, ég fer náttúrlega á stóra
hjólinu mínu. Þú verður á ves-
punni.
Sigmar: Ég myndi taka Sillu norð-
ur í Steingrímsfjörð á Ströndum
og fara í sjóstangaveiði.
Silla: Það er nú enn þá lengra að
fara þangað.
Sigmar: Við förum ekkert á ves-
punni. Við tækjum rútuna eða
færum á mínum fjallabíl sem
eyðir mjög litlu. Færum svo í
Grímsey á Steingrímsfirði og eld-
uðum aflann þar.
Silla: Ég skal gera sósuna.
Sigmar: Og hverja tækjum við
með okkur? Ég myndi vilja hafa
Össur Skarphéðinsson með.
Silla: Þá tæki ég bróður hans,
Magga. Það er alltaf gaman að
tala um álfa og drauga.
Sigmar: Ég myndi líka vilja hafa
einhvern listamann í ferðinni.
Gunna Þórðar, kannski.
Silla: Já, er það?
Sigmar: Hann er fæddur á Hólma-
vík og svo getur hann spilað á gít-
arinn. Eða þá Sjón, taka hann sem
fjórða mann?
Silla: Ég er ekki alveg sammála.
Má hann vera útlendingur? og
þarf hann að vera lifandi? Fyrst
ég hef Magnús með mér þá gætum
við kannski komist í samband við
Leonardo da Vinci.
Sigmar: En Leonard Cohen?
Silla: Nehei! Ég sofna bara þegar
ég heyri fyrstu tónana hjá honum.
Úff, þetta er erfitt.
Sigmar: En Össur er alveg pott-
þéttur
Silla: Já, já.
Sigmar: Hann er skemmtilegur
og náttúrlega ferðamálaráð-
herra.
Silla: Þannig að við gætum kannski
fengið eitthvað ókeypis …
Sigmar: Já, og kynnt hann fyrir
þessari perlu, Steingrímsfirði.
Silla: Ég myndi taka Halldóru
Geirharðs og trúðinn Barböru.
Það eru þá eiginlega tveir.
Sigmar: Þá tek ég George Bush.
Silla: Oj.
Sigmar: Bara til að ég geti skamm-
að hann sko.
Silla: Ég hélt þú ætlaðir að segja
til að ég geti skotið hann.
Sigmar: Neeee… ég kann nú ekki
við það. En ofmetnasti ferða-
mannastaðurinn? Það er erfitt
enda Ísland margbrotið. Ég myndi
nefna vegasjoppurnar við þjóð-
veginn sem eru hryllilega dýrar
og selja vondan mat. Ég verð yfir-
leitt mjög þunglyndur þegar ég
kem inn á þessa staði.
Silla: Sérstaklega þegar lyktin
tekur á móti manni.
Sigmar: Af gömlum frönskum
kartöflum og þránuðu floti. Ég
skil ekkert í þessu. Það ætti að
setja upp viðvörunarskilti við
þessa staði.
Silla: Ég held að Austurvöllur sé
ofmetnastur.
Sigmar: Nei, ekki segja þetta.
Hvað með Jón Sigurðsson?
Silla. Jú, ég segi Austurvöllur.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
...á milli Sillu og Sigmars eru 14 ár.
...B-ið í nafni Sigmars stendur fyrir
Bent.
...M-ið í nafni Sillu stendur fyrir Mar-
grét.
...ef Silla ætti að bjóða Sigmari í mat
myndi hún elda sítrónupasta eftir
uppskrift Sophiu Loren í forrétt.
...ef Sigmar fengi að spreyta sig í Ís-
landi í dag fengi hann forsætisráð-
herra í viðtal.
...ef Sigmar og Silla sætu í tveggja
manna ríkisstjórn myndu þau skipta
með sér verkum. Silla réði fyrir há-
degi og Sigmar seinnipartinn.
...fyrsta alvöru starf Sillu við fjöl-
miðla var þegar hún las barnasögu
í útvarpinu 12 ára gömul. Þá hafði
hún þegar leikið í nokkrum útvarps-
leikritum.
...ef Silla tæki við hlutverki Sigmars
í einn dag færi hún til Ítalíu á villi-
svínaveiðar. Aðallega til að komast í
trufflurnar.
Vissir þú að...