Fréttablaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 10
10 6. júlí 2008 SUNNUDAGUR
Þið heilsist innilega og virðist þekkjast, hvað
vitið þið um hvort annað?
Sigmar: Allt!
Silla: Ekki neitt.
Sigmar: Ég hef náttúrlega vitað hver Silla er
frá því hún var krakki enda þekkti ég for-
eldra hennar á Ríkisútvarpinu. Nú veit ég,
sem náttúrlega hryggir mig á vissan hátt, að
Silla er farin yfir til kapítalistanna og farin
að vinna á Baugsmiðli.
Silla: Jú, jú, þetta var ekki auðveld ákvörðin.
Svolítið eins og að skilja held ég. Fyrir mér
er Ríkisútvarpið eins og fjölskylda. En ég er
ótrúlega glöð í dag enda hafa allir gott af því
að skipta um vinnu. Segi ég … þetta er í
annað sinn sem ég skipti um vinnu.
Sigmar: Ég hélt að þú myndir aldrei hætta á
RÚV. Hélt að það væri nú bara ekki einu
sinni inni í myndinni.
Silla: Það var það heldur ekkert. Ég fékk
náttúrlega RÚV-stimpil á rassinn við fæð-
ingu og vissi þá að ég yrði að vinna þar það
sem eftir væri.
Sigmar: Ég man fyrst eftir þér þegar ég
byrjaði að vinna á útvarpinu árið 1973. Þá
hefur þú verið …
Silla: Þá var ég tíu ára og búin að vinna í
útvarpinu í tíu ár. En ef ég hugsa um Sigmar
þá hugsa ég um mat, skotveiði, viskí og
Spaugstofuna. Þú ert svo heppinn nefnilega,
það hefur aldrei verið gert grín að mér í
Spaugstofunni.
Veiðimaðurinn og mótorhjólapían
Nefnið þrjá hluti um hvort annað sem þið
vitið ekki hvort eru sannir eður ei en gætuð
engu að síður trúað að væru það.
Silla: Ég held að Sigmari finnist gott eftir
góðan dag að setjast í besta stólinn sinn,
setja lappirnar upp á skemil og skoða bækur
um Skotland.
Sigmar: Það er mjög frumlegt.
Silla: Svo held ég að honum finnist mjög
gaman að njóta lífsins og reyni að gera eins
mikið af því og hann getur. Reyni jafnvel að
taka krók á sinni leið til þess að geta slakað á
og notið lífsins. Í þriðja lagi held ég, af því
hann er svo mikill gúrmei kall, að honum
finnist frábært að fá sér eina pulsu og kók.
Sigmar: Já, þetta er nú allt rétt nema þetta
með Skotland. Ég hef held ég bara aldrei
skoðað bók um Skotland.
Silla: Er það ekki? Ég sé þig alveg fyrir mér
undir teppi með svoleiðis bók. Það tengist
eitthvað veiðinni, þú kannski ferð til Skot-
lands að veiða?
Sigmar: Jú, jú, ég hef gert það. Veiddi krón-
hjört.
Silla: Einmitt.
Sigmar: Það er eitt sem ég held, kannski er
það misskilningur, en ég held að Silla sé
áhættufíkill og aki mótorhjóli, án þess að ég
viti það. Í öðru lagi held ég að hún sé mjög
hrifin af rómantískum óperum og í þriðja
lagi grunar mig að Silla lesi mikið mat-
reiðslubækur en fari sjaldan eftir þeim.
Silla: Það er alveg rétt.
Dýrafræði að hætti Walt Disney
Fólk sér hvítabirni í hverju skúmaskoti.
Hvernig mynduð þið bregðast við ef þið mætt-
uð slíkri skepnu á förnum vegi og gætuð þið
hugsað ykkur að borða ísbjarnarkjöt?
Silla: Hver getur borðað ísbjarnarkjöt? Það
er svo eitrað. En ef maður gæti verið viss um
að það væri ekki eitrað væri ég alveg til í að
smakka.
Sigmar: Það er étið á Grænlandi. Ef maður
sæi hvítabjörn og væri með einhvern félaga
sinn með sér sem hleypur hægar en maður
sjálfur þá myndi maður bara hlaupa, en ann-
ars gera sem minnst.
Silla: Ég held ég myndi standa alveg kyrr.
Neeeeei. Ég sá einhvers staðar leiðbeiningar
um hvernig á að bregðast við og maður á til
dæmis ekki að hlaupa hratt í burtu.
Sigmar: Nei, ekki nema það sé einhver með
manni sem hleypur hægar.
Silla: Þarna kom skepnuskapurinn fram í
þér! Á maður ekki líka að forðast að horfa í
augun á birninum? Ég veit eiginlega ekki
hvað ég ætti að gera. Play dead?
Sigmar: Bara láta eins og maður sjái hann
ekki. Look busy.
Silla: Já, og labba fram hjá og bjóða góðan
dag.
Sigmar: Það er skrítið með dýr að ef þú
hundsar þau þá eru þau oft mjög spök. En ef
ég hefði tök á því myndi ég auðvitað reyna
að veiða hann.
Silla: Veistu hvað ég myndi gera þá? Ég
myndi rífa af þér byssuna og stinga henni
upp í rassxxxxx á þér. Annars var þetta
ísbjarnarmál allt saman farið að verða eins
og eitthvað Keikódæmi.
Sigmar: Það er því miður ekkert hægt að
gera annað en aflífa þá. Þessi dýr sem þvæl-
ast hingað eru örmagna og myndu varla lifa
flutning af þannig að ég myndi nú mæla með
því við alla Skagfirðinga sem eru að tína ber
eða reka rollur að vera vopnaðir.
Silla: Getur þú ekki lánað þeim eitthvað af
byssunum þínum?
Sigmar: Njaaa. Ég tími því nú ekki. Æ, þessi
umræða var svo ömurleg með þennan bless-
aða hvítabjörn. Það er komið fullt af fólki
sem hefur lært sína dýrafræði af Walt
Disney. Ég meina lömbin sem við erum að
grilla núna, þau frömdu ekkert sjálfsmorð.
Þau fara ekkert í næsta læk og drekkja sér á
haustin.
Sigmar væri í peningaþvætti
Menn hafa áhyggjur af því að skipulögð
glæpastarfsemi erlendra glæpahópa sé að
ryðja sér til rúms hér á landi. Hvernig á að
bregðast við því? Sigmar, ef Silla væri háska-
legt glæpakvendi í hvaða glæpum myndi
hún þá sérhæfa sig og, Silla, hvers konar
glæpon gæti Sigmar verið?
Sigmar: Ég held að Silla væri að stela bílum.
Hún væri bílaþjófur og seldi þá til Lett-
lands. Annars held ég að það eigi að bregð-
ast við þessu af hörku. Það er líka óhugnan-
legt helvíti að fólk geti komist upp með það
að hrækja á lögguna. Reyndar væri Silla
örugglega ekkert í því.
Silla: Nei, ég hræki aldrei.
Sigmar: Ég held að Silla hafi duldan áhuga á
að ganga í mótorhjólalögguna og kæmi mér
ekki á óvart að hún gerði það einhvern tím-
ann.
Silla: Já, svona þegar ég skipti næst um
starf. Af því ég er nú svo dugleg við það. En
Sigmar sem glæpon … Ég hugsa að þú færir
út í peningaþvætti
Sigmar: Já, ég held það myndi henta mér
mjög vel.
Að öðru. Ljósmæður berjast fyrir kjörum
sínum. Hver finnast ykkur sanngjörn laun
fyrir að hjálpa börnum í heiminn? Ef þið
væruð ljósmæður, hvaða þekkta einstakl-
ingi vilduð þið getað stært ykkur af að hafa
tekið á móti?
Silla: Mér finnst að ljósmæður eigi bara að
vera með sömu laun og læknar. Þær eru
með sex ára háskólanám að baki og ótrú-
lega klárar. Hvað eiga þær að fá í laun,
hmm … kannski 500 þúsund?
Sigmar. Ég held þær ættu nú ekki að vera
með alveg sömu laun og læknar. Þeir eru
Byðu Össuri með í útilegu
Ef Sigurlaug M. Jónasdóttir væri ljósmóðir vildi hún hafa hjálpað Kjarval í heiminn. Hefði Sigmar B. Hauksson hins vegar
glaður tekið á móti Björk. Þórgunnur Oddsdóttir hitti mótorhjólagellu og veiðimann á rökstólum og ræddi við þau um útilegur,
ísbirni og illa lyktandi vegasjoppur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
Á RÖKSTÓLUM Sigmar: Það er komið fullt af fólki sem hefur
lært sína dýrafræði af Walt Disney. Ég meina
lömbin sem við erum að grilla núna frömdu
ekkert sjálfsmorð. Þau fara ekkert í næsta
læk og drekkja sér á haustin.
GAMLIR VINNUFÉLAGAR Þegar Sigmar byrjaði að vinna á Ríkisútvarpinu var Silla bara tíu ára en hafði þó unnið þar í áratug að eigin sögn.