Fréttablaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 22
6 sport
ÍÞRÓTTAMÖMMURNAR
Þær eiga það sameiginlegt að vera frábærar íþróttakonur í fremstu röð sem hafa drifi ð sig aftur í slaginn eftir að hafa eignast sitt fyrsta
barn. Ólíkt mörgum íþróttakonum sem leggja skóna á hilluna við þessi stóru tímamót í sínu lífi hafa þessar fj órar fræknu konur tekið
upp þráðinn frá því sem var horfi ð þegar þær urðu ófrískar og eru allar komnar aftur í fremstu röð. Óskar Ófeigur Jónsson fékk að heyra
af reynslu golfarans ÓLÖFU MARÍU JÓNSDÓTTUR, knattspyrnukonunnar HREFNU HULD JÓHANNESDÓTTUR, körfuboltakonunnar
BIRNU VALGARÐSDÓTTUR og handboltakonunnar ÁGÚSTU EDDU BJÖRNSDÓTTUR en sú síðastnefnda hefur komið tvisvar til baka
eftir að hafa eignast barn.
H andboltakonan Ágústa Edda Björns-dóttir spilar sem
leikstjórnandi í Valsliðinu
en hún lék með Gróttu/KR
áður en hún eignaðist sitt
fyrsta barn. Ágústa Edda
sker sig út úr þessum flokki
því í vetur kom hún til baka
í annað sinn eftir að hafa
eignast barn. Hún eignaðist
soninn Björn Skúla Birnis-
son 28. september 2007 en
hafði áður eignast Sindra
Dag 13. september 2003.
Ágústa Edda var mætt til
leiks í byrjun desember á
síðasta tímabili. „Ég fór á
fyrstu æfinguna eftir tvær
og hálfa viku en byrjaði
ofboðslega rólega. Það er
ekki mælt með
því að byrja
svona snemma
en ég ákvað
bara að byrja og
sjá svo til. Það
gekk allt vel þannig
að ég gat tiltölulega
fljótt bætt við tempóið
og aukið álagið. Það eru
kannski ekki allar sem
gætu þetta en ég var líka
dugleg að halda mér við á
meðgöngunni og var alltaf
að hreyfa mig,“ segir Ágústa
Edda sem átti sín bestu
tímabil í boltanum eftir að
hafa eignast Björn Skúla.
Hún skoraði yfir sex mörk í
leik þrjú tímabil í röð og
vann sér fast sæti í landslið-
inu. „Ég fór í keisaraskurð í
fyrra skiptið og þá mátti ég
ekki hreyfa mig í fjórar
vikur þannig að þetta var
eiginlega auðveldara í
seinna skiptið.
Í fyrra skiptið drap ég
alveg öxlina á mér með því
að fara að skjóta strax en
núna passaði ég mig á því að
fara aðeins hægar í það,“
rifjar Ágústa Edda upp.
Ágústa Edda er ein af
mörgum mömmum í Vals-
liðinu sem hefur skapað sér
nokkra sérstöðu í boltanum
hérna heima. „Við erum
orðnar hálfgerður mömmu-
klúbbur í Val. Við erum
kannski eldra lið og það
hefur þróast þannig að við
höfum haldið áfram þrátt
fyrir að vera komnar á þann
aldur sem margar eru farn-
ar að hugsa um að
hætta. Það eru
líka margar sem
hætta þegar þær
fara að eign-
ast börn en
Valur hefur
staðið vel að þessu. Þar
hefur verið barnapössun og
svo hafa þeir þjálfarar sem
ég hef verið með, Gurrý og
Gústi, verið mjög skilnings-
rík og vildu bæði gera allt
sem þau gátu fyrir mann,“
segir Ágústa Edda.
Hún segir fjölskylduna
koma gríðarlega sterka inn
og það skiptir miklu máli.
„Það þarf rosalega hjálp frá
makanum og ég á mjög
skilningsríkan maka. Það
þarf samt að púsla þessu vel
saman,“ segir Ágústa Edda
og málin urðu enn flóknari
eftir að landsliðsverkefnin
bættust við. „Ég var komin í
landsliðið rúmu ári eftir að
ég átti eldri strákinn og þá
var ég í burtu kannski í viku
tvisvar til þrisvar á ári. Það
var ekki í boði að taka barn-
ið með en þar sem maðurinn
minn var í krefjandi vinnu
þá hjálpaði systir mín og
fjölskylda til og hún nánast
flutti inn þegar ég fór í
landsliðsferðirnar,“
segir Ágústa Edda
sem ætlar að halda
áfram á fullum
krafti með Valslið-
inu næsta vetur.
„Hjá mér kom
ekkert annað til
greina en að halda
áfram í handbolt-
anum. Mér finnst
þetta enn þá svo
gaman og líkaminn leyfir
þetta,“ segir Ágústa Edda
að lokum.
VIÐ ERUM ORÐNAR HÁLFGERÐUR
MÖMMUKLÚBBUR Í VAL
H refna Huld Jóhann-esdóttir, framherji KR-liðsins í fótbolt-
anum var nú ekki að mikla
það mikið fyrir sér að eign-
ast sitt fyrsta barn. Hún
eignaðist Júlíu Jönu Adolfs-
dóttur 16. júlí 2006 og spil-
aði sinn fyrsta leik með KR-
liðinu 30. ágúst 2006.
„Mér fannst þetta ekkert
mál en fannst aftur á móti
mikið mál að vera ólétt og
gera ekki neitt í níu mánuði.
Það var miklu meira mál.
Ég held að það sé nú ágætt
fyrir alla sem eignast börn
að komast aðeins út úr húsi,“
segir Hrefna og bætir við.
„Ég byrjaði að mæta á
æfingar þremur vikum eftir
að ég átti. Ég ætlaði að ná að
spila leiki á tímabilinu. Ég
byrjaði að æfa þegar stelp-
urnar voru að koma heim að
þjóðhátíð þannig að ég var
fljót að ná þeim,“ segir
Hrefna í léttum tón. „Ég
veit ekki hvort að einhverj-
ar hafi verið hissa að sjá
mig svona snemma á æfing-
um og ég held að flestir hafi
ráðlögðu mér að fara heima
aftur og hvíla mig,“ segir
Hrefna sem lék tvo síðustu
leiki tímabilsins og minnti
heldur betur á sig með því
að skora tvö mörk eftir að
hafa komið inn á sem vara-
maður í þeim síðasta. „Það
eru margar sem koma ekki
aftur eftir að þær eignast
börn en þetta er bara spurn-
ing um að setja sér mark-
mið. Ég ákvað það áður en
ég átti að ég ætlaði að ná að
spila leik áður en tímabilinu
lauk. Mér fannst ég vera
komin í ótrúlega gott form í
lok tímabilsins en ég var
kannski ekki komin í mitt
besta form. Það er um að
gera að byrja fljótt aftur og
það þýðir ekkert að
liggja heima í volæði,“
segir Hrefna.
Barnið breytir
samt miklu í hinu
daglega lífi. „Það
erfiðasta við þetta
er að maður getur
náttúrlega ekki
skilið barnið eftir
eitt heima. Það
er mesta málið
að koma barn-
inu fyrir í pöss-
un en það sem
samt lítið mál
hjá mér. Móðir
mín og pabbi sjá mikið
um það sem er góður kost-
ur. Andrea Færseth studdi
líka dyggilega við bakið á
mér,“ segir Hrefna Huld en
hún getur þó ekki tekið
stelpuna sína með á æfing-
ar eða leiki. „Hún brjálast
alveg þegar hún sér mig
inn á vellinum. Það er ekki
hægt að taka hana með á
leiki,“ segir Hrefna.
Þjálfari Hrefnu, Hel-
ena Ólafsdóttir, kom
einnig til baka eftir að hafa
átt barn og vissi því hvað
Hrefna var að ganga í gegn-
um. „Ég apa allt eftir henni,
er númer tíu, spila frammi
og hún er algjörlega fyrir-
myndin hjá manni,“ segir
Hrefna að lokum í léttum
tón en daginn eftir
viðtalið þá skoraði
hún tvö mörk í 5-0
stórsgri á Fjölni
og er þar með
komin með 7
mörk í Lands-
bankadeild
kvenna í
sumar.
MIKLU MEIRA MÁL AÐ
GERA EKKI NEITT Í NÍU MÁNUÐI
Hrefna Huld Jóhannesdóttir, knattspyrnukona og mamma, með dótturinni Júlíu Jönu Adolfsdóttur.
Ágústa Edda Björnsdóttir,
handboltakona og mamma,
með sonum sínum, Birni
Skúla og Sindra Degi Birnis-
sonum.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R