Fréttablaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 56
24 6. júlí 2008 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is Það verður allt lagt í sölurnar þegar toppliðin tvö, Keflavík og FH, mætast á Sparisjóðsvellinum í Keflavík kl. 20 í kvöld. Liðin áttust sem kunnugt er við í 16 liða úrslitum VISA-bikarsins í Keflavík á fimmtu- daginn og þá höfðu heimamenn betur, 3-1, í bráðskemmtilegum leik. Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, vonast því til þess að hans menn komi tvíefldir í leikinn í kvöld. „Við erum náttúrlega staðráðn- ir í að gera betur en á fimmtu- daginn og það er einfaldlega í eðli íþróttamanna að ætla að bæta fyrir tap strax í næsta leik og við ætlum að sjálfsögðu að gera það,“ sagði Heimir sem telur að samstaða innan FH-liðsins sé lykillinn að ná settu marki. „Ef við sýnum samstöðu og leik- um sem ein liðsheild þá verðum við í góðum málum. Með sigri í leiknum getum við komið okkur í mjög góða stöðu og það hlýtur að vera vilji manna að svo verði,“ sagði Heimir. Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, er óviss hvort að sigur Keflavíkur á fimmtudag eigi eftir að hjálpa liðinu í leiknum í kvöld. „Það verður bara að koma í ljós hvern- ig sá sigur fer í menn og það verður spennandi að sjá. Annars verðum við bara að halda áfram að útfæra okkar leik vel og fyrst og fremst sýna vilja til þess að vinna leikinn. Á fimmtu- daginn voru allir leikmenn Keflavík- urliðsins að toga vagninn í sömu átt og þannig næst árangur, svo einfalt er það,“ sagði Kristján sem á von á því fólk fjölmenni á völlinn. „Það var góð stemning á bikar- leiknum en ég held að það verði enn þá fleira fólk á þessum leik,“ sagði Kristján að lokum. ÞJÁLFARAR FH OG KEFLAVÍKUR Í LANDSBANKADEILD KARLA: EIGA VON Á HÖRKULEIK ÞEGAR LIÐIN MÆTAST Í KVÖLD Kemur í ljós hvort bikarleikurinn hafi áhrif - lífið er leikur www.motormax.is Mótormax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400 Mótormax Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070 Mótormax Akureyri - Sími 460-6060 Mótormax hefur úrvalið af bátum og mótorum Steady harðplastbátar Skemmtilegu norsku bátarnir með eiginleika slöngubáta og styrkinn úr harðplastinu. Verð 114.000 Ending og traust er aðall Yamaha. Vandaðir mótorar á góðu verði. Verð frá 135.000 Nýkomnir glæsilegir Yamarin bátar Verð 3.150.000 Yamaha utanborðsmótorar GOLF Karlalandslið Íslands í golfi bar sigurorð af Sviss á Evrópumóti landsliða áhugamanna á Ítalíu í gær og vann þar með alla þrjá leiki sína í mótinu. Íslenska liðið í mótinu var skipað þeim Kristjáni Þór Einarssyni úr GKj, Ólafi Birni Loftssyni úr NK, Stefáni Má Stefánssyni úr GR, Sigmundi Einari Mássyni úr GKG og Hlyn Geir Hjartarsyni og Sigurþóri Jónssyni úr GK. Íslendingar kepptu í C-riðli og byrjuðu á því að vinna Eista og Pól- verja örugglega 5-0 en fyrirfram var vitað að Svisslendingar yrðu talsvert erfiðari and- stæðingar, eins og kom á daginn. Ísland vann Sviss á dramatískan hátt, 3-2, þar sem Kristján Þór setti niður 15 metra pútt á lokaholunni. „Þetta var mjög spennandi og það var frá- bært að sjá boltann detta ofan í og við fögn- uðum dátt og dönsuðum um á grín- inu að keppni lokinni,“ sagði Staffan Johannsson, landsliðs- þjálfari Íslands, í samtali við Fréttablaðið í gær og var afar sáttur með fram- göngu liðsins. „Ég taldi fyrirfram okkur vera með sterk- asta liðið í C-riðlinum og vonaðist því eftir því að við myndum ná að vinna okkar andstæðinga þar og það gekk sem betur fer eftir. Sigur okkar í þessum riðli gerir það að verk- um að við komumst beint inn á EM á næsta ári án þess að þurfa að taka þátt í forkeppni og það munar um minna. Það gladdi mig að sjá Ólaf Björn taka mikið framfaraskref í mótinu, Hlynur Geir og Sigþór spiluðu einnig vel. Kristján Þór hefur þann eiginleika að töfra fram einhverja snilld allt í einu eins og hann gerði á loka- holunni og ég hef miklar mætur á Stef- áni Má og Sigmundi Einari og set miklar kröfur og hefði viljað sjá þá gera aðeins betur. En það var frábær stemning í hópnum og þeir náðu vel saman og það er mikilvægt,“ sagði Staffan að lokum. Ísland vann Sviss 3-2 á Evrópumóti landsliða áhugamanna í golfi á Ítalíu í gær: Við dönsuðum um á gríninu ÁNÆGÐUR Staffan Johannsson, landsliðsþjálfari í golfi, var tiltölulega sáttur við frammi- stöðu íslenska landsliðsins á Evrópumóti áhugamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR FÓTBOLTI Toppliðin ÍBV og Selfoss styrktu stöðu sína með góðum sigrum þegar leikið var í 1. deild karla í gær. ÍBV hélt uppteknum hætti með því að leggja KS/Leiftur að velli, 2-1, en það mátti þó varla tæpara standa því sigur- markið kom á lokamínútum leiks- ins og þar var framherjinn knái Atli Heimisson að verki. Selfoss viðhélt pressunni á ÍBV með því að vinna Fjarðabyggð 4-1 á Selfossi og Selfyssingar hafa enn ekki tapað leik í deildinni. Haukar gerðu góða ferð til Akur- eyrar og unnu Þórsara og skutust þar með upp í þriðja sæti deildar- innar. Víkingar frá Reykjavík unnu svo Víkinga frá Ólafsvík 3-2 en Gunnar Kristjánsson skoraði sigurmarkið beint úr aukaspyrnu þegar skammt var eftir. - óþ ÍBV hélt sigurgöngu sinni áfram í 1. deild karla í gær: ÍBV illviðráðanlegt ÖFLUGUR Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, hefur gert frábæra hluti með Eyja- menn í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI > Rosalegir Reykjavíkurslagir Nýliðar Þróttar frá Reykjavík fá það verðuga verkefni að stoppa KR-inga þegar liðin mætast á Valbjarnarvelli kl. 19.15 í kvöld. KR hefur verið á mikilli siglingu undanfarið og hefur unnið þrjá leiki í röð í Lands- bankadeildinni og er komið í 8 liða úrslit í VISA-bikarnum. Framherjinn Björgólfur Takefusa hjá KR, fyrrum leikmaður Þróttar, hefur farið mikinn og skorað í sjö leikjum í röð í deild og bikar. Þá mætast Íslandsmeistarar Vals og Fram á Vodafone-vellinum og hefst sá leikur einnig kl. 19.15 en Valsarar geta með sigri komist upp fyrir Framara í fyrsta skiptið í sumar. SUND Bikarmeistaramót Sundsam- bands Íslands lauk í gær með sigri ÍRB í bæði karla- og kvenna- flokki. Alls voru um 200 sundmenn sem tóku þátt í bikarmeistaramótinu að þessu sinni en mótið var haldið í sundlauginni Vatnaveröld í Reykjanesbæ. ÍRB fór með sigur af hólmi í bæði karla- og kvennaflokki og leiddi stigakeppnina frá upp- hafi mótsins. Sundkonan frækna Erla Dögg Haralds- dóttir úr ÍRB var að vonum sátt við gengi Suðurnesjaliðs- ins að keppni lokinni í gær. „Þetta var góður sigur og við erum bara mjög sátt við þetta. Það var fyrst og fremst rosalega góð liðsheild sem skóp þennan sigur hjá okkur og við ætluðum bara að leggja upp með að vera jákvæð og taka eitt sund í einu og standa saman og það gekk eftir,“ sagði Erla Dögg sem var að sama skapi sátt með persónulegan árangur sinn í mótinu. „Ég er frekar sátt og þá sérstak- lega með 400 metra fjórsundið hjá mér þar sem ég synti rétt um einni sekúndu frá Íslandsmetinu og átti alls ekki von á því að komast svo nærri,“ sagði Erla Dögg sem er eins og aðrir fremstu sundmenn landsins í þungum æfingum fyrir Ólympíuleikana í Peking. „Það er erfitt að gíra sig upp í mót eins og þetta þegar maður er á kafi í æfingum og ólíklegt að ein- hver met muni falla en ég var nú eiginlega bara svekkt þegar ég kom að bakkanum í 400 metra fjórsundinu og sá hversu nálægt Íslandsmetinu ég var. Ég verð bara að taka það met seinna,“ sagði Erla Dögg á léttum nótum. Sex aldursflokkamet féllu á mótinu. Stúlknasveit SH bætti metin í 100 metra skriðsundi og 4x100 metra fjórsundi og Kristinn Þórarinsson, 12 ára sundmaður úr Fjölni, gerði sér lítið fyrir og sló fjögur sveinamet í tveimur grein- um. Hann setti met í 100 metra og um leið 50 metra skriðsundi og 100 metra og um leið 50 metra baksundi, sannarlega glæsilegur árangur það. Þá náði Davíð Hildi- berg Aðalsteinsson úr ÍRB lág- marki fyrir Evrópumeistaramót unglinga í 100 metra baksundi. omar@frettabladid.is ÍRB bikarmeistari í sundi Karla -og kvennasundsveitir ÍRB urðu í gær bikarmeistarar í sundi en mótið fór fram í Reykjanesbæ. Vegna þungra æfinga undanfarið voru sterkustu sund- menn talsvert frá sínu besta en sex aldursflokkamet féllu hins vegar á mótinu. ÁNÆGÐ Erla Dögg Haraldsdóttir, ÍRB, var vitanlega sátt við sigur liðs síns í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BIKARMEISTARAR KARLA OG KVENNA 2008 ÍRB sigraði í bæði karla- og kvennaflokki á Bikarmeistaramóti Sundsambands Íslands sem lauk í Reykjanesbæ í gær. VÍKURFRÉTTIR/INGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.