Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.07.2008, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 06.07.2008, Qupperneq 8
8 6. júlí 2008 SUNNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Eftir Svein Andra Sveinsson Ísland er Evrópuþjóð; í Evrópu eru okkar helstu markaðir og til annarra landa Evrópu sækja Íslendingar til náms og starfa. Evrópusambandið sem byrjaði sem Kola- og Stálbandalag Evrópu og stofnað var til að varðveita friðinn í álfunni hefur smátt og smátt verið að stækka og innri uppbygging þess að breytast. Er svo komið að langflest ríki Evrópu hafa gengið til liðs við ESB og saman mynda þau eitt markaðs- svæði þar sem landamæri hafa verið afnumin í viðskiptum innan svæðisins. Í samræmi við þessa sýn hafa ríkin sameiginlegan seðlabanka og þau nota sömu myntina í viðskiptum á svæðinu; evru (með örfáum undantekning- um. Hið frjálsa flæði vöru, þjón- ustu, vinnuafls og fjármagns innan sambandsins stuðlar að auknum hagvexti innan aðildar- ríkjanna og styrkir samkeppnis- stöðu þeirra. Evrópska efnahagssvæðið Með aðild að Evrópska efnahags- svæðinu í gegnum EFTA hefur Íslandi að sumu leyti tekist að nýta það jákvæða í starfsemi ESB, en vegna þess hve ríkin sem þannig tengjast ESB eru fámenn og fá eru samskiptin við EFTA afgangsstærð auk sem EFTA-ríkin eru áhrifalaus um allar ákvarðanir ESB sem síðan öðlast gildi á hinu Evrópska efnahagssvæði. Að auki er ekki fullkomið frjálst flæði vöru og þjónustu innan Evrópska efna- hagssvæðisins eins og í ESB. Greiða þarf vörugjöld af vörum sem flutt eru inn frá ríkjum ESB og ýmsar álögur leggjast á vörur sem við flytjum til ríkja innan ESB. Helstu kostir þess að ganga í ESB og evrópska myntsamstarfið eru þeir að við það verðum við hluti af stærra efnahags- og mark- aðskerfi. Við það samlagast Ísland þeim kjörum sem gilda í ríkjum ESB; vextir lækka, bæði almennt og af húsnæði sem og vanskila- vextir, verðtryggingin hyrfi, verð myndi lækka á neysluvörum, ekki síst af landbúnaðarafurðum o.s.frv. Hagvöxtur myndi taka mikinn kipp upp á við og velmegun aukast til mikilla muna. Ekki sjáanlegir gallar við aðild Þrjú atriði hafa andstæðingar Evr- ópusambandsaðildar aðallega nefnt aðild til foráttu: a) Íslendingar framselji hluta af fullveldi sínu til sambandsins. b) Fiskimiðin opnist fyrir erlenda aðila og þeim verði stýrt frá Brussel. c) Skrifræði ríki í Evrópusam- bandinu. Um fullveldisframsalið er það að segja að fullveldi er teygjan- legt hugtak og í raun er verulegt álitaefni hvort við séum með aðild að ESB ekki í raun að styrkja full- veldi landsins. Í dag eru það stofn- anir ESB sem setja okkur Íslend- ingum í raun og veru lög á reglur á fjölmörgum sviðum. Undirbún- ingur, setning og framkvæmd regluverks ESB er í höndum stofn- ana þess og sem EFTA-ríkjunum er síðan skammtað úr hnefa. Gera EFTA-ríkin ekki annað en að lög- leiða eða staðfesta það án nokk- urra breytinga. Með aðild að ESB verður Ísland hluti af þeim stofn- unum sem setja reglurnar og virk- ir aðilar í lagasetningarferlinu. Má því má segja að með því sé verið að útvíkka fullveldið. Það er að auki lögfræðilega fráleitt að halda því fram að frjálst og full- valda ríki sem tekur ákvörðun um að gerast aðili að fjölþjóðlegum samtökum nokkurra ríkja eins og ESB og felur því yfirþjóðlegt vald til ákvarðana sem fyrir aðild voru í höndum stjórnvalda viðkomandi ríkis, sé með þessu að afsala sér fullveldi sínu að einhverju leyti, þegar það er haft í huga að þessi sömu stjórnvöld geta á hvaða tímapunkti sem er sagt sig úr ESB og þar með svipt hinar yfirþjóð- legu stofnanir ESB hinu yfirþjóð- lega valdi. Fiskimiðin munu eftir sem áður við óbreytt kvótakerfi vera lokuð fyrir erlendum fiskiskipum enda byggist kvóta- kerfið á úthlut- un á grundvelli veiðireynslu. Svo lengi sem úthlutun afla- heimilda byggir á slíkum málefna- legum sjónarmið- um en mismuna ekki fiskiskipum á grundvelli þjóðernis geta stofnanir ESB ekki haggað við því. Svo hittir hins vegar á að nánast engin skip af erlendum toga, ef undan eru skild- ar nágrannaþjóðir okkar Norð- menn, Grænlendingar og Færey- ingar, hafa slíka veiðireynslu að leiði til úthlutunar aflaheimilda. Stjórnun fiskveiðanna yrði ávallt falin íslenskum stjórnvöldum, sem gæta yrðu þess að mismuna ekki við aðgerðir sínar, eins og lokanir svæða, möskvastærð o.s.frv., innlendum og erlendum aðilum. Augljóst má einnig telja að framkvæmdastjórn ESB fæli íslenskum stjórnvöldum að ákveða heildarafla á Íslandsmiðum. Skrifræði er ekkert meira innan ESB en í hvaða stofnunum eða ríkjum sem er. Hafa ber í huga að stjórnsýslu sambandsins er fyrst og fremst ætlað að koma í veg fyrir að aðildarríkin setji upp hindranir í vegi hins frjálsa flæðis milli landanna og þarf því að vera sterk til að geta staðið í fæturna gegn slíkum tilburðum. Eftir engu að bíða Ísland á strax að sækja um aðild að ESB. Í kjölfar aðildarumsóknar hefjast aðildarviðræður og í þeim viðræðum skýrist í fyrsta lagi hvaða heimavinnu íslensk stjórn- völd þurfa að vinna, efnahagslega og stjórnskipulega áður en til aðildar getur komið og í öðru lagi hverjir skilmálar verða í aðildar- samningi Íslands við ESB. Telji íslensk stjórnvöld aðildarsamning Íslands og ESB ásættanlegan er samningurinn borinn undir þjóð- aratkvæði. Fyrir undirrituðum hafa ekki verið færð haldbær rök fyrir því að breyta þurfi stjórnarskrá íslenska lýðveldisins við aðild að Evrópusambandinu. Sé það hins vegar niðurstaða vísra lagaspek- inga að þess þurfi yrðu slíkar breytingartillögur einfaldlega bornar undir þjóðaratkvæði um leið og aðildarsamingur og síðan endanlega samþykktar í samræmi við það ferli sem stjórnarskráin kveður á um. Það er pólitísk spurning hvort Ísland eigi að ger- ast aðili að ESB eða ekki. Fráleitt er að gangast fyrir stjórn- skipulegum breyting- um innanlands ef aðildarumsókn skilar ekki ásættanlegum samningi. Þau skilyrði sem uppfylla þarf til þess að geta gengið í Myntbandalagið eru þess eðlis að íslenskum stjórnvöldum ber að stefna að þeim sem markmiðum í sinni efna- hagsstjórn, hvort sem aðildrumsókn er uppi á borðinu eða ekki. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. L eiðtogar sjö mestu iðnvelda Vesturlanda auk Rússlands eru nú að tínast til japönsku eyjarinnar Hokkaído, þar sem þeir munu sitja á rökstólum um heimsmálin næstu daga. Tvennt er efst á baugi í hinum árvissu viðræðum þeirra að þessu sinni: efnahagsmál og aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Í loftslagsmálunum er markmiðið að fá öll G8-ríkin til að ákveða að ganga á undan með góðu fordæmi og skuldbinda sig til að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2020 og enn meira fyrir árið 2050. Margir telja nauðsynlegt að velmegunar- iðnveldin sýni forystu í þessu máli ef líkur eiga að vera á því að loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn á næsta ári skili árangri, það er sáttmála um samstillt átak þjóða heims um að draga úr útblæstri sem tekið getur við þegar Kyoto-bókun lofts- lagssáttmála SÞ rennur úr gildi árið 2012. Litlar líkur eru á því að ríki eins og Kína og Indland, sem eru undanþegin losunarhömlum Kyoto-bókunarinnar en auka hröðum skrefum jarðefnaeldsneytis- drifna orkunotkun sína, fallist á að taka á sig slíkar hömlur nema „velmegunarveldin“ sýni gott fordæmi. Þetta verður síðasti G8-fundurinn sem George W. Bush Banda- ríkjaforseti sækir. Eins og kunnugt er hefur hann í forsetatíð sinni staðið fast gegn því að Bandaríkjamenn – sem eyða um fjórðungi allrar orku í heiminum þótt þeir séu aðeins um fimm prósent íbúa heims – taki á sig skuldbindingar í þessa veru. Hið snarhækkaða olíuverð – það hefur tvöfaldast frá því á síðasta G8-leiðtogafundi í Þýzkalandi í fyrrasumar – hefur hins vegar skapað nýjan hvata til aðgerða til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Það er þessi hvati sem eflir mönnum von um að Bandaríkjamenn hætti að reyna að vera stikkfrí frá hinu alþjóðlega átaki gegn orkusóun og losun gróðurhúsalofttegunda. Vitneskjan um að báðir forseta- frambjóðendurnir vestra eru öðruvísi þenkjandi um þessi mál en sá fráfarandi eflir þá von enn frekar. Ríkisstjórn Íslands hefur líka sett sér metnaðarfull markmið um að draga úr losun af þessu tagi á næstu áratugum. Hún hefur reyndar sett sér ýmis önnur markmið sem eiga að stuðla að vist- vænni háttum landsmanna, ekki sízt í samgöngum. Aðgerða sem eru til þess fallnar að stuðla að því að þessi markmið náist hefur hins vegar lítt orðið vart. Með tilliti til þess að Ísland á raunhæft tækifæri til að verða fyrsta þróaða land heims sem verður nánast óháð jarðefnaeldsneyti, væri markvisst að því stefnt, sætir þetta aðgerðaleysi nokkurri furðu. Með því að breyta reglum um gjaldheimtu af bílum og eldsneyti eins og lagt er til í nýlegri skýrslu stjórnskipaðs starfshóps væri strax mikilvægt skref stigið í þessa átt. Þar með sköpuðust loks áþreifanlegir hvatar fyrir almenning að haga fjárfestingum sínum og neyzlumynstri í þeim stóra útgjaldalið hverrar fjölskyldu sem einkabíllinn er þannig, að stórlega drægi úr bensín- og dísilolíu- brennslu bílaflotans. Þetta væri þó aðeins byrjunin. Raf- og lífeldsneytisvæðing bíla- flotans og almenningssamgangna væri næsta skref, síðan skipa- flotans, og þannig áfram unz Ísland yrði nánast óháð olíu. Orku- berinn vetni gæti líka gegnt hlutverki. Með því að flýta þessari þróun með markvissum aðgerðum stjórnvalda gæti Ísland fest í sessi ímynd sína sem vistvænt en hátæknivætt velmegunarsamfé- lag og gegnt fordæmishlutverki fyrir önnur lönd heimsins. Forysta G8 um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum: Metnaður Íslands AUÐUNN ARNÓRSSON SKRIFAR Þjóð meðal annarra Evrópuþjóða Ótakmörkuð heimska Margrét Sverrisdóttir virðist enn um sinn þurfa að bíða fyrirgefningar fyrrum samherja sinna úr Frjálslynda flokknum fyrir að yfirgefa þá í fússi fyrir hálfu öðru ári. Tveir þeirra, þeir Jón Magnússon og Magnús Þór Hafsteinsson, láta Margréti fá það óþvegið á bloggsíðu Jóns vegna framgöngu hennar sem formaður Kvenréttindafélags Íslands í nýlegri heimsókn til Írans og ummæla eftir ferðina. Þeim þykir hún gera afar lítið úr bágri stöðu kvenna í heims- hlutanum. „Eru engin tak mörk fyrir heimsku Margrétar Sverrisdóttur?“ spyr Magnús í athugasemd. Handklæðin hans Jóns Jón Magnússon virðist hins vegar manna fróðastur um málefni Mið- Austurlanda og opinberar því til sönnunar glænýjar upplýsingar í téðri bloggfærslu, nefnilega þær að kúgaðar konur í múslimaríkjum gangi jafnan um með höfuð sitt sveipað handklæði. „Á tveim myndum sem fylgja viðtalinu er formaður- inn með handklæði um höfuðið, tákn kvennakúgunar og ófrelsis“, skrifar þingmaðurinn. Þessi ógeð- felldu tákn kvenna- kúgunar og ófrelsis eru seld hérlendis í flestum betri stórmörkuðum. Neytendafröm- uðurinn Jón getur varla látið það óátalið. Sivjaðar útvarpsfréttir Siv Friðleifsdóttir var í tvígang sögð varaformaður Framsóknarflokksins í kvöldfréttum Útvarps í gær. Valgerður Sverrisdóttir, raunverulegur vara- formaður flokksins þegar síðast fréttist af honum, getur varla hafa verið kát með það. Það segir kannski sitt um stöðu Framsókn- ar að fréttamenn skuli gleyma því hverjir halda þar um hvaða tauma. Eða þá að fram fari kosningar innan flokksins sem enginn tekur eftir nema fránir fréttahaukar útvarps. stigur@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.