Fréttablaðið - 06.07.2008, Page 16

Fréttablaðið - 06.07.2008, Page 16
16 6. júlí 2008 SUNNUDAGUR Þ að dugði ekkert minna til en mesta lögregluútkall lýð- veldisins, þetta var svo hættulegt blað,“ segir Úlfar Þormóðs- son. „Allir hreppstjórar, sýslu- menn og lögreglustjórar í landinu voru kvaddir út til þess að koma blaðinu úr umferð. Það var farið í allar bókabúðir og allar sjoppur á landinu og Spegillinn hirtur. Þá voru umboðsmenn um allt land eltir uppi.“ Félag áhugamanna um alvarleg málefni gaf Spegilinn út. Starfs- menn blaðsins voru þeir Úlfar og Hjörleifur Sveinbjörnsson, en kona hans situr í dag í sæti utan- ríkisráðherra. „Þetta var mikið leynifélag, raunar svo mikið að það var aldrei stofnað; menn hitt- ust bara. Útgáfa gamla Spegilsins lá niðri og okkur fannst vanta svona blað. Við vildum skemmta þjóðinni og sýna hvernig hún væri og við hvað hún væri að fást. Við héldum að meðaltal heimskunnar hefði lækk- að hjá þjóðinni og hún gæti tekið við einhverju. Raunin var önnur. Oft er það svo með embættismenn sem byrja ungir hjá hinu opinbera þorna upp og geldast og fara að agnúast út í allt og alla. Heimsku- meðaltalið er því alltaf hið sama. Það kemur smásig þegar nýir menn koma, en þeir eru fljótir að visna upp svo samtala heimskunn- ar er ætíð sú sama. Félagið stóð fyrir ýmsu auk útgáfunnar. Á þessum tíma voru stjórnmálaforingjar sífellt að skora hver annan á fundi og Jón Baldvin var gríðarlega brattur í því., Við skoruðum hann á fund, en hann kom aldrei, helvítið á honum. Á fundi sem hann hélt í gamla Sigtúni mættu síðan tveir úr félag- inu. Þegar orðið var gefið laust fóru þeir hver á eftir öðrum í pontu og mærðu Jón Baldvin af slíku offorsi að við lá að hinn síð- ari væri borinn úr pontu. Mogginn var mættur með blaðamann og ljósmyndara, en að afstöðnum fundi mátti sjá til Jóns Baldvins að hringja á skrifstofur blaðsins til að koma í veg fyrir að þetta birtist.“ Lögreglumál Fyrsta tölublað Spegilsins birtist í apríl árið 1983. Tímasetningin var engin tilviljun. „Þetta var skemmtilegur tími, skammt til kosninga, og Spegillinn var nátt- úrlega stjórnarmálgagn,“ segir Úlfar, en í blaðhaus kemur fram að Spegillinn sé málgagn Félags áhugamanna um alvarleg málefni „og ríkisstjórnar hverju sinni. Þiggur gjarnan ríkisstyrki...“ Úlfar segir nokkurn undirbún- ing hafa verið að útgáfunni. „Ég vildi stofna hlutafélag en kunni ekki mikið á hlutafélagalög. Ég útbjó því sjálfur hlutabréf og gekk á milli nokkurra auðmanna sem glaðir keyptu bréf. Þeim fannst framtakið gott og þetta stóð nokk- urn veginn undir fyrsta tölublað- inu.“ Annað tölublaðið kom út í maí. „Okkur fannst við ekki alveg nógu meinyrtir í fyrsta tölublaðinu og ekki nógu mikinn stuðning við rík- isstjórnina þar að finna, þannig að við hertum dálítið róðurinn.“ Sólarhring eftir að tölublaðið kom úr prentun fór hin umfangs- mikla lögregluaðgerð í gang. „Við sátum heima hjá mér á Grjótagöt- unni, ég Hjörleifur og einhverjir fleiri, og vorum að undirbúa næsta blað. Okkur grunaði ekki að yfir- völdin væru á eftir okkur. Við vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið þegar allt í einu komu lögreglumenn inn til okkar og kröfðust þess að fá öll eintök af Speglinum sem þar væru. Aðspurðir hver sökin væri sögðu þeir að í blaðinu væri að finna klám og ærumeiðingar. Síðar meir tókst þeim að bæta guðlastinu við.“ Úlfar segir að hið sama hafi verið upp á teningnum um allt land. Umboðsmenn hafi verið heimsóttir, auk sölustaða, og ein- tök gerð upptæk. „Þetta var vel skipulöð aðgerð hjá yfirvaldinu. Meira að segja fóru tveir, þrír fíl- efldir lögreglumenn á heimili prentsmiðjueigandans um kvöldið og drógu hann út í náttfötunum til að hirða filmurnar uppi í Odda. Dreifarinn okkar var í ferð út á land og hafði einhvern pata af aðgerðunum. Hann kom sér strax í felur með fullan Moskvíts af Speglinum. Önnur eintök voru sett í steininn og komið fyrir í einum fangaklefanum. Þar rýrnaði upp- lagið nú talsvert og ég held að vel- viljaðir lögreglumen hafi dreift því.“ Endurútgáfa Útgefendur voru ekki af baki dottnir og þeir gáfu blaðið út aftur og höfðu bætt kápu utan um það og nýrri miðopnu. Þar mátti meðal annars finna myndir og frásagnir úr blöðum sem voru gefin út óáreitt á þessum tíma; Bósa, Bangsa og Tígulgosanum, en í þeim var að finna berorðar frá- sagnir af kynlífi fólks. Blaðið, sem fékk nafnið Sam- viska þjóðarinnar – en það hafði verið undirtitill Spegilsins – var selt á götum úti. „Lögreglunni tókst ekki betur til en svo að þeir fjarlægðu bara litfilmurnar úr prentsmiðjunni, en ekki þær svarthvítu. Það voru því hæg heimatökin að prenta blaðið upp á nýtt. Nokkuð harðsnúinn hópur sölumanna frá okkur fór af stað nokkrum dögum eftir að fyrsta upplag var gert upptækt. Fyrst vorum við í Austurstræti og ég fór með gjallarhorn upp á húsin sem stóðu á horni Lækjargötu og Austurstrætis, en eru nú brunnin, og hvatti þjóðin til að kaupa sam- visku sína. Við vorum náttúrlega teknir þar. Um kvöldið fór einn hópur í Öskjuhlíðina, en þar var eitthvað um að vera, og annar á Laugar- dalsvöll, á landsleik í knattspyrnu. Lögreglan komst á snoðir um þetta og stöðvaði söluna, en eitthvað seldist þó.“ Leiðindi ekki saknæm Úlfar var sem ábyrgðarmaður kallaður til yfirheyrslu hjá lög- reglunni. „Það var nú yfirleitt blíðlindi í þessu máli. Yfirheyrsl- urnar voru nú hálfundarlegar og mér fannst á lögregluþjónunum að þeim fyndist málið allt asna- legt. En ég var spurður hvar blöð- in væru falin og af hverju ég væri í því að gefa þetta aftur út, þegar blaðið væri bannað. Ég fékk stuðning frá ýmsu fólki og til að mynda kom þekktur rit- höfundur að máli við okkur og rit- aði pistil á baksíðu endurútgáf- unnar. Þá sagði Jón Steinar Gunnlaugsson í tengslum við málið eitthvað á þá leið að ekki væri víst að Spegillinn væri skemmtilegur, en ekkert væri í Gegn guði og góðu siðferði Aldarfjórðungur er síðan Úlfar Þormóðsson, útgefandi og ábyrgðarmaður Spegilsins, var dæmdur fyrir guðlast og klám. Ein- ungis tveir Íslendingar voru dæmdir fyrir guðlast á síðustu öld. Úlfar sagði Kolbeini Óttarssyni Proppé frá málinu. Bragi Kristjónsson forn- bókasali kannaðist vel við eintakið þegar blaðamaður leitaði til hans. „Við fáum það alltaf af og til inn til okkar, það berst þá með bókasöfnum. Það er nú svo sem ekki rífandi eftir- spurn eftir því – enda er nútímafólk fljótt að gleyma – en hún er þó einhver. Það fer alltaf fljótt út eftir að við fáum það,“ segir Bragi. Tölublað af hinu bann- aða eintaki fer á um 2.000 krónur í dag. Það kostaði 70 krónur á þávirði þegar það kom út í maí 1983. Úlfar segist reglulega þurfa að fara með eintök af blaðinu í Þjóðarbókhlöð- una. „Þangað koma víst einhverjir menn sem hafa vit á góðum bókmenntum og ræna blaðinu,“ segir Úlfar um eintakið bannaða. ➜ EINHVER EFTIRSPURN SELST FLJÓTT Bragi segir að þegar eintök af hinum bannaða Spegli komi í búðina hjá honum séu þau fljótt keypt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DÆMDUR GUÐLASTARI Úlfar segist ekki hafa viljað missa af þeirri reynslu sem Spegilsmálið færði honum. Það varð honum þó dýrkeypt því hann þurfti að selja hús sitt til að eiga fyrir skuldum og sektargreiðslum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.