Fréttablaðið - 06.07.2008, Síða 18
2 sport
Síðustu ár hefur verið að dúkka upp athyglisverð
umræða þar sem menn takast á um þau sjónarmið
hvort það sé í lagi að leikmenn og þjálfarar fari í
viðtöl beint eftir leiki. Sú umræða er komin á annað
stig núna því KSÍ hefur stofnað sérstakan starfshóp
sem fer yfir þessi mál meðal annars.
Þarna tel ég að menn verði að stíga ákaflega
varlega til jarðar. Ef KSÍ ætlar sér að fara þá leið að
banna fjölmiðlamönnum að tala við leikmenn eða
þjálfara löngu eftir að leik lýkur geta afleiðingarnar
orðið talsverðar. Slíkir ritskoðunartilburðir eru alls
ekki af hinu góða að mínu mati.
Allt slíkt mun gera erfiða vinnu fjölmiðla enn
erfiðari og það á versta tíma dagsins. Ákveðnir
fjölmiðlar munu þess utan einfaldlega ekki eiga þess
kost að taka viðtöl svo seint. Efnið sem viðkomandi
fjölmiðlar geta í kjölfarið boðið upp á verður ekki
eins innihaldsríkt og áhugavert. Það er klárlega ekki
til framdráttar fyrir íþróttina og getur aukinheldur
orðið þess valdandi að fjölmiðlar setji ekki sama
púður í umfjöllun og annars væri raunin.
KSÍ þarf að átta sig á því að samstarf og samspil
við fjölmiðla hefur gríðarlega mikið að segja um
hversu vinsælt efnið getur orðið. Það þarf að sjá til
þess að fjölmiðlamenn geti matreitt sitt efni á sem
besta mögulega hátt.
Áhorfendur vilja sjá viðtöl við leikmenn beint
eftir leiki og í hálfleik. Það er líka oftast í þeim
viðtölum sem „besta“ efnið verður til. Efnið sem
selur íþróttina að mörgu leyti hvort sem mönnum
líkar betur eða verr. Auðvitað getur það haft sína
ókosti ef menn fara langt yfir strikið í orðavali sínu
og skaða íþróttina. Þessi viðtöl og umdeildir atburðir
eru það sem áhugamennirnir tala um á kaffistofun-
um daginn eftir leiki. Svo er heldur engin trygging
fyrir því að allir hagi sér eins og skátar þótt þeir
komi einhverjum mínútum síðar í viðtöl.
Ef við tökum sem dæmi NBA-deildina þá hafa
menn þar á bæ algjörlega áttað sig á því hvað
samspilið við fjölmiðla skiptir miklu máli fyrir
íþróttina. Forráðamenn NBA-deildarinnar eru
fullkomlega meðvitaðir um að þeir þurfa að selja
sína vöru og gera því það sem þarf til að gera
íþróttina sem mest aðlaðandi fyrir þá sem mestu
máli skipta. Það eru áhorfendurnir eða neytendurnir
réttara sagt sem borga brúsann og eru undirstaða
þess að sportið stendur undir sér. Ef engin er
umfjöllunin er ekki líklegt að hallirnar eða vellirnir
séu fullir af fólki.
Í stað þess að standa í ritskoðunartilburðum hefur
NBA ákveðið að stíga skrefið enn lengra í þessu
nauðsynlega samspili við fjölmiðla. Þeir til að
mynda skikka þjálfara til þess að gefa viðtöl á milli
leikhluta. Einnig verða menn að koma í viðtöl beint
eftir leiki og í hálfleik.
Ákveði KSÍ að fara hina leiðina og hreinlega hefta
aðgengi fjölmiðla að leikmönnum mun það bitna á
íþróttinni. Söluvörunni góðu sem hefur heldur betur
verið að skila KSÍ og félögunum pening í baukinn.
Því vara ég menn við því að fara þessa leið enda
sannfærður um að það muni bitna á íþróttinni og
verðgildi söluvörunnar mun í kjölfarið lækka. Slíkt
skref væri ekki framfaraskref fyrir knattspyrnuna.
KSÍ á ekki að vera með
ritskoðunartilburði
FRÁ RITSTJÓRA
Henry Birgir
Gunnarsson
Ef KSÍ ætlar
sér að fara
þá leið að
banna fjöl-
miðlamönn-
um að tala
við þjálfara
löngu eftir
að leik
lýkur geta
afleiðing-
arnar orðið
talsverðar.
Slíkir rit-
skoðunar-
tilburðir eru
ekki af hinu
góða.
Forsíðumyndina tók Valgarður
Gíslason af Sveini Elíasi Elíassyni.
Útgefandi: 365.
Ritstjóri: Henry Birgir Gunnarsson
henry@frettabladid.is.
Blaðamenn: Óskar Ófeigur Jónsson
ooj@frettabladid.is, Ómar Þorgeirsson
omar@frettabladid.is, Hjalti Þór Hreins-
son, hjalti@frettabladid.is
Útlitshönnun: Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is
Auglýsingar; Stefán P. Jones,
spj@frettabladid.is
Sport
F ótbolti er rokkíþrótt. Stelp-ur fíla líka rokk. Meira segja fótboltastelpur,“ segir Þor-
kell Máni Pétursson, þjálfari
kvennaliðs Stjörnunnar, aðspurð-
ur hvað annálaður rokkhundur
eins og hann sé að gera í kvenna-
bolta.
Þorkell Máni, eða bara Máni
eins og hann er oftast kallaður,
hefur hingað til verið best þekktur
sem kjaftfor útvarpsmaður á
rokkstöðinni X-inu 977 þar sem
hann er tónlistarstjóri. Máni var
einnig umboðsmaður Mínus til
langs tíma. Það liggur því beint
við að spyrja Mána næst að því
hvort það sé metall að þjálfa
kvennabolta?
„Öll lið sem ég þjálfa fá með-
fram knattspyrnuþjálfuninni tón-
listarlegt uppeldi. Það finnst mér
bara sjálfsögð skylda mín þó þess
sé ekki getið í ráðningarsamningn-
um mínum. Það hefur einmitt allt-
af loðað við íþróttafólk að hafa
hræðilegan tónlistarsmekk. Þetta
hefur gefið sig vel ég þjálfaði
sama hópinn hjá Haukum í þrjú ár.
Helmingurinn af þeim er enn í
boltanum, hinn helmingurinn er í
rokkinu,“ segir Máni stoltur og
bætir við: „Það er meiri metall í
Landsbankadeild kvenna en karla.
Það sést mest á vælinu karlameg-
in.“
Ef mið er tekið af töktum Mána
í útvarpinu er auðvelt að sjá fyrir
sér að hann sé mjög harður þjálf-
ari.
„Ég er enginn ruddi en ég er
kannski ekkert skemmtilegasti
þjálfarinn í bænum. Þó ég vilji nú
meina að ég hafi verið óvenju
mjúkur og þægilegur þetta tíma-
bil,“ sagði Máni en blótar hann
eins mikið í boltanum og útvarp-
inu? „Það er best að svara þessu
þannig að ég myndi ekki hafa
strákana mína hjá mér á bekkn-
um.“
Eins og Máni segir veitir hann
þeim stelpum er hann þjálfar einn-
ig tónlistarlegt uppeldi. Það er því
væntanlega spilað þungarokk fyrir
stelpurnar.
„Klárlega. Margar stelpurnar er
líka rokkarar og metalhausar.
Aðalvandamálið eru þessar stelp-
ur utan af landi og þá sérstaklega
þessar frá Sauðárkróki. Það virð-
ist sem eini diskurinn sem til var í
Kaupfélaginu á Króknum hafi
verið með Bon Jovi. En ég er að
berja þann viðbjóð úr þeim,“ sagði
Máni ákveðinn. Máni er uppalinn
Garðbæingur og harður Stjörnu-
maður sem hefur mikinn metnað
fyrir hönd síns félags en hvar ligg-
ur metnaður hans í þjálfun?
„Mig langar til að verða betri
þjálfari. Ég hef mikinn metnað
fyrir því verkefni sem ég er í núna.
Stjarnan er mitt uppeldisfélag, þar
æfði ég, byrjaði að þjálfa og ætla
að enda minn þjálfaraferill. Ég hef
engan sérstakan áhuga að þjálfa
meistaraflokk karla eða verða
landsliðþjálfari. Það er ekkert
fyrir mig. Ég mun klára minn
samning við Stjörnuna og þegar
honum lýkur tel ég allt eins líklegt
að ég kaupi mér bara ársmiða á
Stjörnuvöllinn og á Elland Road.
Gerist bara „klikkaður fan“. Ég er
annars fyrst og síðast stuðnings-
maður Stjörnunnar,“ segir Máni.
Það segir sig sjálft að það er
tvennt ólíkt að þjálfa stráka og
stelpur. Hvað finnst Mána erfiðast
við að þjálfa stelpur?
„Dramatíkin maður. Konur geta
gert dramatík úr öllu,“ segir Máni
léttur en hvernig útskýrir hann
þann gríðarlega uppgang sem hefur
orðið í kvennaboltanum síðustu ár?
„Deildin er að jafnast af mörg-
um ástæðum. Aðalástæðan að
mínu mati er umgjörð liðanna.
Einu sinni voru risarnir þrír með
langbestu umgjörðina. Þá vildu
leikmenn frekar vera á bekknum
hjá þeim en að spila með liðunum
fyrir neðan. Það er ekki svoleiðis
lengur. Umgjörðin er orðin frá-
bær hjá flestum liðum í deildinni
og ef einhver er að fara í „stóru“
liðin er það fyrst og fremst vegna
þess að hann fær betur borgað
þar. Eða viðkomandi er það vitlaus
að halda að það auki möguleika
sína til að komast í landsliðið. Það
var kannski svoleiðis einu sinni en
það er liðin tíð. Sigurður Ragnar
hefur sýnt að hann velur þá bestu
og er slétt sama úr hvað liði þeir
koma. Ungu leikmennirnir sem
eru að koma upp eru tæknilega
betri. Líkamlegt atgervi knatt-
spyrnukvenna er líka miklu betra
en það var og síðan hefur erlend-
um leikmönnum fjölgað mikið,“
sagði Máni.
Stjörnuliðið hefur farið vel af
stað í sumar undir stjórn Mána og
situr þegar þetta er ritað í þriðja
sæti deildarinnar á eftir risunum,
KR og Val. Hvað telur Máni sig
geta komist langt með þetta
Stjörnulið? „Vonandi alla leið. Það
er klárlega nauðsynlegt að það
fari einhver annar að vinna í þess-
ari deild en KR, Valur og Breiða-
blik. Það er bara orðið þreytt. Það
breytist ekki af sjálfu sér. Ef það á
að nást þurfa þau lið sem koma á
eftir klárlega að setja meira í liðin
og ég hef trú á að það verði gert.
Mér sýnist vera mikill hugur í lið-
unum þarna í kring og vonandi
verður þess ekki langt að bíða að
við fáum að sjá nýtt nafn á titlin-
um. Mín von og trú er að það nafn
verði Stjarnan,“ segir Máni
MEIRI METALL
Í KVENNABOLTANUM
Útvarpsmaðurinn og rokkhundurinn Þorkell Máni Pétursson hefur slegið í gegn á sínu
fyrsta ári sem þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í Landsbankadeildinni. Liðið er í þriðja sæti
og á hraðri uppleið. Máni segist veita leikmönnum liðsins tónlistarlegt uppeldi og spilar
þungarokk fyrir stelpurnar. EFTIR HENRY BIRGI GUNNARSSON
Þorkell Máni Pétursson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, klæðist ósjaldan þungarokksbolum á æfingum og hann spilar einnig
þungarokk fyrir stelpurnar. Hann segir margar fótboltastelpur vera rokkhunda. SPORT/VALLI
Við stöndum upp úr
í nýjustu könnun Capacent
Fréttablaðið er með 41% meiri lestur en 24 stundir
og 93% meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fí
to
n/
SÍ
A
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgina, 18–49 ára. Könnun Capacent í febrúar–apríl 2008.
49,72%
36,30%
69,94%
Fréttablað
ið
24
stundir
M
o
rg
unblað
ið