Fréttablaðið - 06.07.2008, Side 58
26 6. júlí 2008 SUNNUDAGUR
FÓTBOLTI Kvennalandslið Íslands
skipað leikmönnum 16 ára og
yngri lauk keppni á Opna Norður-
landamótinu í gær en mótið fór
fram hér á landi. Ísland sigraði
Svíþjóð 2-0 í leik um sjöunda
sætið.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
og Ásta Eir Árnadóttir skoruðu
mörk íslenska liðsins í gær og
Kristrún Lilja Daðadóttir lands-
liðsþjálfari var ánægð með sigur-
inn og spilamennsku liðsins.
„Við réðum ferðinni frá upphafi
til enda og hefðum bara kannski
mátt skora fleiri mörk. Það var
gott að enda mótið á sigri og mér
fannst við eiga það svo sannarlega
skilið. Ég hefði vilja vinna Danina
í fyrsta leik og við náðum að
standa vel í Þjóðverjunum sem
unnu mótið örugglega. Seinni hálf-
leikurinn gegn Noregi fór hins
vegar illa en ég held að stelpurnar
hafi lært af því,“ sagði Kristrún
Lilja sem telur að stelpurnar séu
stöðugt að bæta sig.
„Mér fannst stelpurnar vera að
taka eitthvað frá hverjum einasta
leik og mér fannst gaman að sjá
hvað við erum að nálgast önnur lið
hvað styrkleika og tækni varðar.
Það vantar hins vegar upp á
úthaldið og það er mikilvægt
þegar verið er að spila í leikjum
sem þessum sem eru með hraðara
tempó en stelpurnar eru ef til vill
vanar. Við þurfum því að vinna í
því upp á framhaldið og svona mót
eru náttúrlega nauðsynleg til þess
að leikmennirnir geti tekið fram-
förum og það mættu alveg vera
fleiri verkefni sem þessi,“ sagði
Kristrún Lilja sem telur jafnframt
mikilvægt fyrir stelpurnar að hafa
góðar fyrirmyndir í A-landsliði
kvenna eins og raun ber vitni um.
„Það er frábært fyrir þessar
stelpur hversu vel gengur hjá A-
landsliðinu og hjálplegt fyrir þær
að sjá að stelpur eins og Sara
Björk Gunnarsdóttir eru að taka
stökkið upp og standa sig vel.
Þannig að þær geta sett sér mark-
mið og haft eitthvað að stefna á,“
sagði Kristrún að lokum. - óþ
U-16 ára landslið Íslands vann Svíþjóð 2-0 á Opna Norðurlandamótinu í fótbolta á ÍR-vellinum í gær:
Áttum sigurinn svo sannarlega skilið
MARKHEPPIN Berglind Björg Þorvaldsdóttir er gríðarlega efnilegur leikmaður og
skorar jafnan grimmt. Hún skoraði glæsilegt mark gegn Svíþjóð í gærdag.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FRJÁLSÍÞRÓTTIR FH-ingar sigruðu
43. Bikarkeppni Frjálsíþrótta-
sambands Íslands sem lauk á
Kópavogsvelli í gærdag. Þetta
var 15. árið í röð sem Hafnar-
fjarðarliðið fór með sigur úr
býtum og fátt sem bendir til þess
að einokunartímabil FH-liðsins
sé að líða undir lok.
Björgvin Víkingsson og Silja
Úlfarsdóttir, fyrirliðar FH í mót-
inu, voru eðlilega í skýjunum
með árangurinn.
„Þetta var alveg hrikalega góð
helgi þar sem bæði karlarnir og
konurnar í FH voru að standa sig
mjög vel. Við bjuggumst við því
að vera sterkir í karlaflokknum
en konurnar voru ekki síðri og
stóðu sig hreint út sagt frábær-
lega,“ sagði Björgvin sem kvað
framtíðina vera bjarta hjá FH.
„Þetta er ungt og gott lið hjá
FH þótt það séu vissulega gamlir
refir inn á milli en það eru líka
alltaf að koma inn öflugri krakk-
ar í gegnum unglingastarfið og
ég held að við verðum bara enn
sterkari á næstu árum,“ sagði
Björgvin og Silja tók í sama
streng.
„Við erum með mjög fínt ungl-
ingastarf og það eru alltaf að
koma upp efnilegir krakkar og
það á bara eftir að færast í auk-
ana þegar við fáum nýju frjáls-
íþróttahöllina. Það má bara búast
við meiru af okkur á næstu
árum,“ sagði Silja sem var sátt
með persónulegan árangur sinn
en kvað hann skipta minna máli í
móti sem þessu.
„Þetta snýst um að vera í fyrsta
sæti og tímarnir skipta minna
máli í þessu, aðalmálið er að taka
sex stig í hverri keppnisgrein og
það gekk bara ljómandi vel,“
sagði Silja sigurreif en það er
nóg framundan hjá henni.
„Ég fer út í næstu viku til Hol-
lands og ætla að taka þátt í móti
þar og er enn með Ólympíulág-
markið bak við eyrað. Við sjáum
til hvernig það gengur, það er ef
til vill ekki búið að ganga alveg
eins og ég vildi en ég gefst ekkert
upp og stefni á að ná lágmark-
inu,“ sagði Silja að lokum.
Ólympíufararnir sáttir með sitt
Bergur Ingi Pétursson, sleggju-
kastari úr FH, stóð fyrir sínu í
mótinu og var sáttur með sitt.
„Ég get ekki verið annað en
sáttur. Lengsta kastið mitt var
70,80 metrar sem er bara mjög
gott miðað við æfingarálagið sem
búið er að vera á mér. Ég er búinn
að vera að kasta þungum sleggj-
um og er því frekar hægur núna,“
sagði Bergur Ingi sem vonast til
þess að vera kominn í sitt besta
form á Ólympíuleikunum.
„Það er mikilvægt að toppa á
réttum tíma og ég þarf bara að
æfa eins og vitleysingur á næst-
unni og verð svo að koma mér í
keppnisformið. Svo er bara að
kasta eins langt og ég get, það
þarf ekkert að vera að flækja það
neitt,“ sagði Bergur Ingi á léttum
nótum.
Stangarstökkvarinn Þórey
Edda Elísdóttir úr FH vann
keppnisgrein sína örugglega eins
og fyrir var spáð og náði enn
fremur sínum besta árangri í ár
þegar hún stökk 4,30 metra.
„Ég ætlaði að stökkva 4,40
metra, það var markmiðið, en
svona er þetta. Ég náði þó að
brjóta 4,20 metra múrinn og get
verið mjög sátt með það. Þetta er
allt að koma hjá mér og ég fílaði
mig mjög vel í atrennunni og náði
góðum tökum á stönginni,“ sagði
Þórey Edda sem var ánægð með
aðstæður á Kópavogsvelli.
„Það er mjög gott að stökkva á
Kópavogsvelli, mun betra en á
Laugardalsvelli í það minnsta.
Það er mun betra skýli fyrir vind
hérna og það skiptir sköpum í
stangarstökkinu,“ sagði Þórey
Edda sem ætlar sér stóra hluti á
Ólympíuleikunum í lok sumars.
„Ég stefni á að komast í úrslit í
Peking og það yrði stór sigur
fyrir mig ef það myndi takast,“
sagði Þórey Edda vongóð.
omar@frettabladid.is
FH bikarmeistari 15. árið í röð
FH varð Bikarmeistari í frjálsíþróttum í gærdag en mótið fór fram á Kópavogsvelli að þessu sinni. Hafnar-
fjarðarliðið hafði talsverða yfirburði á mótinu og var að vinna hvorki meira né minna en 15. árið í röð.
LOKASPRETTURINN Silja Úlfarsdóttir
innsigldi sigur FH-inga í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MEÐ SIGURLAUNIN FH-ingar unnu Bikarmeistaramót FRÍ 15. árið í röð á Kópavogsvelli í gær og höfðu því ríka ástæðu til þess að
fagna. Fyrirliðarnir Björgvin Víkingsson og Silja Úlfarsdóttir halda hér á bikarnum á milli sín. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÉL
FRJÁLSÍÞRÓTTIR Kári Steinn
Karlsson, langhlaupari úr
Breiðabliki, var sáttur við helgina
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum en hann fór með sigur í
bæði 1.500 metra hlaupi og 5000
metra hlaupi.
„Ég er bara mjög ánægður með
mitt gengi í þessu móti og ég náði
alveg að skila mínu. Ég átti
ekkert endilega von á því að
vinna 1.500 metra hlaupið þannig
að ég get verið mjög sáttur,“
sagði Kári Steinn sem fékk ekki
mikla samkeppni í 5.000 metra
hlaupinu og hringaði alla keppi-
nauta sína.
„Ef samkeppnin er ekki hörð þá
finnur maður sér bara ný
markmið eins og að hringa hina
hlauparana eða eitthvað annað.
Bara til að halda tempóinu
gangandi. Síðan horfir maður
auðvitað til mótsmetanna en það
var einhver leti í mér í 5.000
metra hlaupinu og það verður
bara að bíða betri tíma. Það
kemur bara næst,“ sagði Kári
Steinn kátur. - óþ
Kári Steinn Karlsson, B.blik:
Tek bara móts-
metið næst
STAKK AF Kári Steinn fékk ekki mikla
samkeppni í 5.000 metra hlaupinu og
hringaði alla keppinauta sína þar.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FRJÁLSÍÞRÓTTIR Sveinn Elías
Elíasson úr Fjölni lét sig ekki
vanta á Bikarmeistaramótið þrátt
fyrir að vera á förum á Heims-
meistaramót U-19 ára sem fer
fram í Póllandi á næstu dögum.
„Mér gekk bara ágætlega en
gat auðvitað ekki gefið eins mikið
í þetta og ég vildi. Ég vann 100
metra hlaupið á föstudaginn, varð
í öðru sæti í stangarstökki, við
unnum svo 4x100 metra boð-
hlaupið og það var fínt. Ég keppti
líka í grindarhlaupi og það er ekki
mín sterkasta keppnisgrein en
mér gekk ágætlega þar,“ sagði
Sveinn Elías sem telur sig vera í
fínu formi fyrir Heimsmeistara-
mót U-19 ára.
„Þetta var annars bara fín
æfing fyrir Heimsmeistaramótið
í U-19 og miðað við hvernig mér
hefur gengið í þessu móti er ég
bara bjartsýnn á framhaldið,“
sagði Sveinn Elías. - óþ
Sveinn Elías Elíasson, Fjölni:
Fín æfing fyrir
HM U-19 ára
TIL PÓLLANDS Sveinn Elías keppir á HM
U-19 ára á næstu dögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GÓÐUR ÁRANGUR Þórey Edda náði
sínum besta árangri í ár þegar hún stökk
4,30 metra í stangarstökkinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL