Fréttablaðið - 06.07.2008, Page 59

Fréttablaðið - 06.07.2008, Page 59
SUNNUDAGUR 6. júlí 2008 27 FÓTBOLTI Mike Riley hætti að æfa mark og byrjaði að dæma eftir að hafa fengið á sig átján mörk í einum leik. Hann sá að hæfileikar sínir sem leikmaður væru afar takmarkaðir. „Ég byrjaði að dæma af því ég gat einfaldlega ekkert í fótbolta,“ sagði Riley og benti á að það eigi við um marga dómara. Dómaraferill hans spannar 30 ár og dæmir hann nú í ensku úrvals- deildinni. „Ég meiddist reyndar þegar ég var fjórtán ára og í staðinn fyrir að gera ekki neitt fór ég að horfa á liðið mitt. Einn daginn var ég svo settur á línuna og ég komst ekkert aftur í liðið eftir það. Ég fór því bara að dæma,“ sagði Riley um aðdraganda þess að hann gerðist dómari. „Ég elska fótbolta,“ sagði hinn 43 ára gamli Riley og dæsti. Dómarar á Englandi eru atvinnumenn í sínu fagi. Ekki er langt síðan Riley vann sem endur- skoðandi meðfram dómarastarf- inu. „Það er stutt síðan við urðum atvinnumenn og það er líklega mesta breytingin á mínum ferli sem dómari,“ sagði Riley sem hefur dæmt í ensku úrvalsdeild- inni frá árinu 1996. „Það er frá- bært að geta helgað líf sitt dóm- arastarfinu.“ Undirbúningstímabilið er langt og strangt, líkt og hjá leikmönn- um. Það er ekki skrýtið þar sem kröfurnar eru gríðarlegar. „Við fáum stutt frí. Stuttu eftir tímabil- ið fengum við bréf þar sem okkur er sagt hvað er æskilegt að við leggjum áherslu á í sumar. Við förum eftir því og svo hittast dóm- arar reglulega, bæði dómarar í öllum deildum og svo bara úrvals- deildadómararnir tuttugu. Þar erum við að fara yfir ýmis mál í pallborð- sumræðum. Ég hélt til að mynda fyrirlestur um staðsetningar, annan um úthald, einn um sam- skipti við leikmenn og svo framvegis.“ Dómarar hittast svo á tveggja vikna fresti í tvo daga í senn meðan á tíma- bilinu stendur til að skerpa á áherslu- atriðum. Riley segir að samkeppnin um dóm- arastöður sé ótrúlega mikil. Enska knatt- spyrnusambandið hefur um 30 þúsund dómara á sínum snærum og er raunar að leita að fimm þús- und til viðbótar. „Þetta er gríðar- legur fjöldi af leikjum sem þarf að dæma, það eru ekki margir sem komast á toppinn. Samkeppnin er af hinu góða, hún hefur aukist með hverju árinu,“ sagði Riley. Að hans mati hefur fótbolt- inn breyst nokkuð á und- anförnum árum, þá sér í lagi hvað varð- ar tækni og yfir- ferð leikmanna. Því fylgja líka meiri kröfur á dómarana en Riley æfir sjálfur tvisvar á dag. „Bolt- inn er orðinn hraðari, tölfræðin sýnir að það er 20 prósent meira um hröð hlaup en fyrir fimm árum. Það þýðir fleiri sprettir og meiri yfir- ferð. Leikmenn eru orðn- ir leiknari og við þurft- um að bregðast við því með því að taka harðar á tæklingum aftan frá,“ sagði Riley. Mikil virðing er borin fyrir þjálfarastéttinni á Englandi þrátt fyrir að þeir fái eðlilega stundum að heyra það frá fjölmiðlum. „Ég hlusta aldrei á gagnrýni í fjölmiðl- um, það þýðir ekkert. Við skoðum sjálfir hvern einasta leik sem við dæmum, það er mun betra en að lesa blöðin. Dómarar eru sínir bestu gagnrýnendur sjálfir,“ sagði Riley sem hefur gaman af því að heyra stjórana kvarta. „Það er gaman að tala við þjálf- ara og knattspyrnustjóra sem þurfa stundum að dæma sjálfir æfingaleiki og spyrja mig síðan, hvernig ferðu að þessu í fullu starfi? Ég held að við séum mikils metnir,“ sagði Riley og brosir. Dómarastarfið getur verið erf- itt, en hvað er erfiðast? „Að vita þegar þú hefur gert mistök,“ segir Riley án þess að hika. „Mistökin gerast alltaf en við erum allir í leiknum af því við elskum fótbolta og við viljum ekki gera neitt til að skemma hann,“ sagði Mike Riley úrvalsdeildardómari að lokum. hjalti@frettabladid.is Dómgæsla er stöðugt lærdómsferli Mike Riley er flestum knattspyrnuunnnendum að góðu kunnur. Hann er að hefja sitt tólfta ár sem dómari í ensku úrvalsdeildinni og hann settist niður með blaðamanni Fréttablaðsins til að ræða um fótbolta og dómgæslu. ERFITT Dómarastarfið getur verið erfitt, en Riley segir erfiðast að vita til þess að maður hafi gert mistök. NORDIC PHOTOS/AFP EKKI VÆLA Riley hefur dæmt margan stórleikinn, hér gefur hann Eiði Smára Guðjohnsen gult spjald árið 2005. NORDIC PHOTOS/AFP REYNDUR Mike Riley hefur dæmt í ensku úrvalsdeildinni frá árinu 1996. Hann hefur enn fremur dæmt á vegum FIFA frá 1999 og gjörþekkir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN FÓTBOLTI Sara Björk Gunnarsdóttir hefur slegið í gegn með kvenna- landsliðinu í fótbolta í ár. Þessi sautján ára stelpa úr Hafnarfirði, sem á enn eftir að leika sinn fyrsta leik í Landsbankadeild kvenna, hefur skorað 3 mörk í fyrstu 10 landsleikjum sínum og er búin að vinna sér fast sæti í liðinu sem hefur sett stefnuna á það að kom- ast fyrst A-landsliða á stórmót. Sara Björk kom inn á sem vara- maður fimm mínútum fyrir leiks- lok í sínum fyrsta landsleik sem tapaðist óvænt í Slóveníu. Síðan hún fékk alvöru tækifæri hefur saga hennar í landsliðinu verið ein sigurganga. Hún kom inn á í hálf- leik í stöðunni 0-0 gegn Póllandi í fyrsta leik í Algarve-bikarnum og átti mikinn þátt í því að kveikja í íslenska liðinu sem vann seinni hálfleikinn 2-0. Sara Björk nýtti síðan vel fyrsta tækifærið í byrjunarliðinu og skoraði eitt markanna í 4-1 sigri á Írlandi. Sara hefur nú byrjað átta leiki í röð, enginn þeirra hefur tapast og íslenska liðið hefur unnið sex þeirra, þar af alla þrjá í und- ankeppninni. Sara Björk hefur alls leikið í 656 mínútur í íslenska A-landsliðsbún- ingnum og þær mínútur hafa þær unnið 27-1. Sara Björk er algjör lykilmaður í hápressu íslenska liðsins og hún hefur gengið vel síðan stelpan fékk tækifærið hjá Sigurði Ragnari þjálfara. Í raun eru Sara Björk og lands- liðið búin að ná ótrúlegri tölfræði því það eru núna komnar 583 mín- útur síðan skorað var á liðið þegar Sara Björk var inni á vellinum. Eina markið sem íslenska kvenna- landsliðið hefur fengið á sig í síð- ustu sjö leikjum kom þegar Sig- urður Ragnar þjálfari var búinn að taka hana útaf. Það var í vin- áttulandsleik gegn Finnum í maí þegar Söru Björk var skipt útaf á 82. mínútu í stöðunni 1-0 fyrir Ísland en finnsku stelpunum tókst að tryggja sér jafntefli með marki í uppbótartíma. - óój Íslenska kvennalandsliðið hefur ekki tapað með Haukakonuna Söru Björk Gunnarsdóttur í byrjunarliðinu: Sara eins og stormsveipur inn í landsliðið 583 MÍNÚTUR Það er ansi langur tími síðan íslenska kvennalandsliðið fékk á sig mark með Söru Björk inni á vellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA SARA BJÖRK OG A-LIÐIÐ: Landsleikirnir hennar Söru Björk: Leikir 10 Sigar 7 Jafntefli 2 Tapleikir 1 Sara Björk í byrjunarliðinu: Leikir 8 Sigar 6 Jafntefli 2 Tapleikir 0 Sara Björk inn á vellinum Mínútur spilaðar 656 Mörk hjá Söru Björk 3 Mörk hjá Íslandi 27 Mörk fengin á sig hjá Íslandi 1 SPORTBLAÐIÐ Fjórir ungir og upprennnandi dómarar á Íslandi eru komnir undir handleiðslu einna reyndustu dómara sögunn- ar. Þeir Gylfi Þór Orrason, Eyjólfur Ólafsson og Egill Már Markússon komust allir í fremstu röð dómara hér á landi en hafa lagt flautuna á hilluna. Þeir hafa hins vegar tekið að sér að hjálpa þessum ungu dómurum að bæta sig. Egill Már er í dómaranefnd KSÍ sem setti verkefnið á laggirnar og þeir Gylfi og Eyjólfur eru með tvo dómara hvor. Þá er Pjetur Sigurðsson með tvo aðstoðardómara undir sínum væng. Markmiðið með verkefn- inu er að hlúa að ungum dómur- um og hjálpa þeim að takast á við fyrstu verkefnin. Miðað er við að hver dómari verði í eitt til tvö ár undir handleiðslunni. Viðtal við þá félaga má finna í Sportblaðinu sem er í miðju Fréttablaðsins í dag. Þar eru einnig viðtöl við fljótasta húsvörð landsins og fjórar íþróttakonur sem hafa nýverið eignast barn en haldið áfram að keppa. Svo má finna hvaða sex stelpur eru vonarstjörnurnar í Landsbanka- deild kvenna sem og viðtal við þjálfara spútnikliðs Stjörnunnar. - óój Fjórir ungir fótboltadómarar: Í læri hjá reynd- um dómurum LÆRIFEÐUR Egill Már Markússon, Gylfi Þór Orrason og Pjetur Sigurðsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FORMÚLA 1 Finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen hjá McLaren kom mörgum á óvart þegar hann náði besta tíma í tímatökum á Silverstone-brautinni í gær en þetta er í fyrsta skiptið sem Kovalainen nær ráspól. „Það var frábært að ná loksins að verða fyrstur á ráspól. Við erum búnir að ná góðum hraða í vikunni og ég er sannfærður um að þetta eigi eftir að ganga vel hjá okkur í framhaldinu. Aðstæð- urnar voru frekar erfiðar og keppnin verður löng og ströng og allt getur gerst,“ sagði Kovalain- en vongóður. Mark Webber hjá Red Bull kom næstur en stórlaxarnir Kimi Raikkonen hjá Ferrari og Lewis Hamilton hjá McLaren komu þar á eftir. Fróðlegt verður að fylgjast með þeim Felipe Massa hjá Ferrari og Robert Kubica hjá BMW, sem eru eftir í stigakeppn- inni, þegar í keppnina er komið en þeir voru ekki meðal fremstu manna í tímatökunni í gær og eru með rásnúmer níu og tíu. - óþ Tímatökur á Silverstone: Kovalainen óvænt fyrstur FÖGNUÐUR Heikki Kovalainen gat leyft sér að fagna dátt í gær og verður fyrstur á ráspól í dag. NORDIC PHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.