Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.07.2008, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 06.07.2008, Qupperneq 64
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Íslendingar skipa sér ekki í flokka eða fylkingar eftir afstöðu sinni til einstakra mála, eins og tíðkast hjá siðuðum þjóð- um, heldur skipa þeir sér í skot- grafir í eitt skipti fyrir öll og taka þaðan afstöðu til alls mögulegs og ómögulegs. Og vei þeim sem er með manni í skotgröf en rýfur samstöðuna með því að hafa sjálf- stæða skoðun á einhverju. Nú verða menn til dæmis annaðhvort að vera með áli og á móti túristum eða öfugt. Þriðji kosturinn er ekki í boði. Að vera á móti báðu kemur ekki til greina og að vera hlynntur skynsamlegri blöndu af hvoru tveggja er aðeins til þess fallið að hlegið sé að manni. UM DAGINN var frétt í sjón- varpi þar sem tekjur af áli voru bornar saman við tekjur af túr- istum og var sá samanburður túr- istunum vægast sagt í óhag. Gott ef ekki þurfti einn og hálfan túr- ista til að dekka eitt tonn af áli. Síðan var því bætt við, rétt eins og um væri að ræða stærðfræði sem ekki væri á valdi sex ára barna, að samkvæmt útreikningum frétta- stofunnar þyrfti fjöldi túrista að margfaldast til að halda í horfinu ef tekjur okkar af áli margfölduð- ust. Fréttin var að á áli væri miklu meira að græða en túrisma. AF EINHVERJUM ástæðum var álið ekki borið saman við sjávaraf- urðir, svona til að benda á að sjó- menn ættu nú bara að leggja döll- unum, loka loðnubræðslunni og skella sér í álbræðsluna. Ekki var heldur minnst á það hve margar lopapeysur þyrfti að selja útlend- ingum til að vega upp á móti álinu, til að íslenskar prjónakerlingar sæju nú villu síns vegar, legðu prjónana á hilluna og sæktu um hjá Alcoa. Nei, túrisminn einn var algjör óþarfi í efnahagslífinu. Í LOK fréttarinnar var reyndar tekið fram að ekki væri miðað við eyðslu túrista hér á Íslandi. Það var m.o.ö. miðað við að hver ein- asti túristi kæmi með allan sinn mat með sér, færi allra sinna ferða fótgangandi og svæfi á víðavangi allar nætur. Hins vegar var ekki tekið fram hvort hvort álgróðinn sem rennur í vasa erlendra auð- hringa væri inni í tölum frétta- stofunnar eða hvort þær tækju aðeins til tekna þjóðarinnar af áli. EKKI kom fram hvað átti að vera fréttnæmt við þetta. Það sem vakti athygli mína var hins vegar að Íslendingum skyldi vera boðið upp á þvætting sem þennan undir yfir- varpi fréttamennsku. Álvitar Í dag er sunnudagurinn 6. júlí, 189. dagur ársins. 3.17 13.32 23.46 2.20 13.17 0.11 F í t o n / S Í A Börn, 11 ára og yngri í fylgd með fullorðnum, fá helmingsafslátt af flugverði hjá Iceland Express fyrir skatta og aðrar greiðslur. Vertu með þeim sem þér þykir vænt um Hvernig væri að fara með alla fjölskylduna í draumaferð til Evrópu í kringum verslunarmannahelgina? Iceland Express býður flug til 14 fjölskylduvænna áfangastaða vítt og breitt um Evrópu. Bókaðu flugsæti á betra verði á www.icelandexpress.is! BÖRN FÁ AFSLÁTT* 50% London Chessington Royal Air Force Museum British Museum The London Eye Kaupmannahöfn Tívolí Dyrehavsbakken Billund Lególand Løveparken Gautaborg Liseberg Stokkhólmur Skansen París Disneyland Park Basel Dýragarðurinn Friedrichshafen Ravensburger Spieleland Berlín Dýragarðurinn Alicante Terra Mitica Barcelona Sólarstrendur PortAventura Frankfurt Hahn Wild- und Freizeitpark Klotten Phantasialand Varsjá Ostrogski-höllin Fantasy-garðurinn Eindhoven De Efteling-skemmtigarðurinn Dierenrijk-dýragarðurinn Eitthvað fyrir alla fjölskylduna! * Útihátíð í Evrópu! Verslunarmannahelgin í London með Express ferðum Söfn, tónleikar, leikhús, sýningar og skoðunarferðir fyrir alla fjölskylduna. 31. júlí–4. ágúst Verð á mann í tvíbýli 65.900 kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á 4* hóteli með morgunverði, akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100. með ánægju
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.