Fréttablaðið - 17.07.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA SUMAR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Fjóla Ósland Hermannsdóttir fatahönnuður
segist vera með fremur einfaldan stíl en vera
óhrædd við liti og mynstur.„Ég var áður gallabuxnatýpan en nú hef ég breytt um
stíl og ég myndi segja að ég væri orðin mikil kjól
kona,“ segir Fjóla en hún ikepp i
Charleston-tímabilinu. „Fötin sem ég hannaði fyrir
útskriftarverkefnið eru vel sniðin, en án þess að
þrengja að þannig að þau eru mjög þægileg. Ég þró-
aði svo saumaaðferð með bönd sem é þ
aðinn,“ útskýrir Fjó
Þægindin í fyrirrúmi
Fjóla er mikil kjólakona en hún vill hafa þá þægilega. Bæði útskrift-arkjóllinn sem hún er í og svo kjóllinn á gínunni sem hún hannaði fyrir Hagkaupskeppnina eru einmitt eins og Fjóla vill hafa kjóla, þægilegir og flottir.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/STEFÁN
15% - 70%
TILBOÐSDAGARDagana 17.júlí - 1.ágústeru tilboðsdagar í Atson Frábært úrval af leður- og roðvörum með 25 - 70% afslætti. Komdu og gerðu góð kaup!
Atson • Brautarholti 4 • s. 561-0060 • www.atson.is
OPNUNARTÍMI Á TILBOÐSDÖGUMmán. - föst. 11.00 - 18.00fi m. 11.00 - 19.00föst. 11.00 - 16.00
ÚTSÖLURNAR HAFNARFallegir sumarkjólar fást nú með töluverðum afslætti í fjölda tískuvöruverslana þar sem sumarútsölurnar eru hafnar.TÍSKA 4
Í SVEITASÆLUNASérstakir og sveitalegir hlutir í sumarbústaðinn finnast víða fyr-ir þá sem eru að vinna í því að gera sitt annað heimili notalegt.HEIMILI 2
austurlandFIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 2008 Hörð baráttafram undan í BarðsneshlaupiBLS. 2
Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
17. júlí 2008 — 193. tölublað — 8. árgangur
Tuttugu ár í
bransanum
Birnir Ásgeirsson
fagnar tvöföldu
afmæli á þessu
ári.
TÍMAMÓT 28
FJÓLA ÓSLAND HERMANNSDÓTTIR
Vill hafa kjólana sína
þægilega og flotta
tíska heimili heilsa sumar
Í MIÐJU BLAÐSINS
FÓLK „Ég hef eytt stórum hluta
æskunnar við ramb um næturlíf
erlendra borga en hef aldrei séð
jafn tilviljunarkennd skrílslæti og
haft eins mikla ástæðu til að
forðast nokkurn borgarhluta í
heiminum,“ segir Vestur-Íslend-
ingurinn og kvikmyndagerðar-
maðurinn Hörður A. Arnarson.
Hörður er hér staddur við
vinnslu sjónvarpsþáttaraðar um
deCODE, gagnagrunninn og Kára
Stefánsson. Hann hefur verið
búsettur í Bandaríkjunum í tíu ár
og fór niður í miðborg Reykjavík-
ur um síðustu helgi og sagðist
mega heita heppinn að hafa
sloppið lifandi þaðan - slíkt hafi
ofbeldið verið í miðborginni.
„Hroðalegur blettur á menningu
okkar,“ segir Hörður. jbg/sjá síðu 50
Hörður A. Arnarson:
Óöld í Reykjavík
HÖRÐUR A. ARNARSON Segist aldrei
hafa séð neitt í líkingu við skrílslætin í
miðborginni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Fálmkenndar fyrirspurnir
„Fálmkenndar fyrirspurnir
stjórnvalda erlendis um upptöku
evrunnar nú eða síðar án ESB-
aðildar gætu haft þveröfug áhrif,“
skrifar Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 26
Ritstjóri Séð og
heyrt rekinn
Loftur Atli Eiríks-
son kveður Séð og
heyrt eftir ellefu ár.
FÓLK 50
2,25%
ÚTSALA !!!
VEÐRIÐ Í DAG
Gaman hjá
strákunum okkar
Fyrirliði handboltalandsliðsins
segir svo gaman í stífum
undirbúningi fyrir
ÓL að æfingarnar
séu leikjanámskeiði
líkastar.
ÍÞRÓTTIR 44
EFNAHAGSMÁL „Það er hættulegt
að hækka stýrivexti við svona
aðstæður. Það eykur hættuna á
að hagkerfinu verði þrýst niður í
djúpa niðursveiflu. Engu máli
skiptir hvort verið er að tala um
Ísland, Bandaríkin eða Evrópu,“
segir Bjarni Már Gylfason, hag-
fræðingur Samtaka iðnaðarins.
Verðbólgutölur voru birtar
beggja vegna Atlantsála í gær.
Verðbólgan stendur í fimm pró-
sentum vestanhafs og hefur ekki
verið meiri í sautján ár. Þá er hún
fjögur prósent á evrusvæðinu,
sem er það mesta í sextán ár.
Til samanburðar mældist
verðbólga hér 12,7 prósent í júní
og er því spáð að hún fari yfir
fimmtán prósentin í næsta mán-
uði.
Snörp hækkun olíu- og mat-
vælaverðs á heimsvísu skýrir
þróun mála.
Bjarni bendir á að viðbrögð
seðlabankanna séu ærið misjöfn.
Í Bandaríkjunum sé horft til
þess að lækka stýrivexti og koma
hjólum efnahagslífsins í gang. Í
Evrópu sé fremur horft stíft á að
halda verðbólgu innan mark-
miða bankans eins og hér.
Hann segir hins vegar fáu við
að líkja. Krónan sé, ólíkt evrunni,
veikur gjaldmiðill og stjórnist
verðbólguþróun að miklu leyti af
áhrifum gengissveiflna. Keyra
þurfi stýrivexti hátt hér til að ná
fram sömu virkni og í hinum
löndunum. „Trú manna er samt
sú að á endanum muni peninga-
málastefnan virka og gengið
styrkjast á ný. Þegar það gerist
mun óhjákvæmilega draga úr
verðbólgu,“ segir Bjarni og bætir
við að þá verði komið í óefni. „Við
eigum fáa góða kosti í stöðunni.“
- jab / Sjá síðu 24
Verðbólga hefur ekki
verið meiri í áraraðir
Verðbólga hefur ekki verið meiri í Evrópu eða Bandaríkjunum í sautján ár. Óráðlegt
að stýra verðbólgu með krónunni, segir hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
FÍNT VEÐUR Í dag verður víða
norðan 3-8 m/s en 5-10 m/s NA-
og A-til. Víða bjart með köflum og
úrkomulaust en fer að þykkna upp
norðan til í kvöld. Hiti á bilinu 10-18
stig, hlýjast til landsins SV-til.
VEÐUR 4
12
12
12
14
15
18
AUSTURLAND
Heill heimur
ævintýra
SÉRBLAÐ UM AUSTURLAND
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
SKIPULAGSMÁL Borgarráð hefur, að
tillögu borgarstjóra, samþykkt að
gefa knattspyrnufélaginu Víkingi
fyrirheit um stækkun athafna-
svæðis þess. Á lóðinni sem félagið
fær stendur nú Gróðrarstöðin
Mörk. Síðar verður samið um
greiðslu fyrir svæðið.
Núverandi svæði Víkings er
um 53 þúsund fermetrar, en fyrir-
hugað svæði, sem er að Stjörnu-
gróf 18, er 19.415 fermetrar að
stærð.
„Hér er í raun verið að gefa
viljayfirlýsingu um að sú stefna
sem borgin hefur haft um langa
hríð, að svæði Víkings stækki til
suðurs, verði að veruleika,“ segir
Ólafur F. Magnússon borgastjóri.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að eigendur Markar séu
ósáttir við málið, ekki síst það að
hafa litla aðkomu haft að málinu.
„Við munum að sjálfsögðu
aðstoða við að finna nýtt svæði
undir starfsemi stöðvarinnar. En
stórt félag eins og Víkingur, með
sína miklu starfsemi, þarf pláss
og hlýtur að fá framgang sinna
mála,“ segir borgarstjóri.
Hann áréttar að leigusamningur
gróðrarstöðvarinnar renni út árið
2016. „Við vildum strax gefa fyrir-
heit um stefnu okkar í stað þess að
bíða þangað til. Víkingur varð 100
ára í vor og við vildum líta yfir
stöðu félagsins á þessum tímamót-
um og horfa yfir til næstu aldar.“
Eigendur Gróðrarstöðvarinnar
Markar vildu ekki tjá sig um málið
að svo stöddu.
-kóp
Knattspyrnufélagið Víkingur fær veglega 100 ára afmælisgjöf:
Víkingur fær svæði Markar
SNERT HÖRPU MÍNA HIMINBORNA DÍS Sólveig Thoroddsen, sem einnig er þekkt sem Únettinn Harpa, töfraði fram fagra tóna fyrir
gesti og gangandi í Alþingisgarðinum í gærdag. Vart er hægt að hugsa sér meira viðeigandi undirspil fyrir sólríka sumardaga, en
veðrið hefur leikið við borgarbúa stærstan hluta sumars. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÁSTRALÍA, AP Ástralskur dómstóll
hefur úrskurðað að lög sem
lögðu sektir við því að „angra“
kaþólikka á kaþólskri ung-
mennahátíð væru ólögmæt, enda
ósamrýmanleg tjáningarfrelsis-
ákvæði áströlsku stjórnarskrár-
innar.
Benedikt páfi sextándi sækir
hátíðina ásamt um tvö hundruð
þúsund pílagrímum hvaðanæva
úr heiminum. Mótmælendur
hyggjast mótmæla stefnu
kirkjunnar gegn getnaðarvörn-
um og fóstureyðingum, meðal
annars með því að dreifa
smokkum á hátíðinni. - gh
Áströlsk lög ólögmæt:
Mega angra
kaþólikka