Fréttablaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 4
4 20. júlí 2008 SUNNUDAGUR GENGIÐ 18.07.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 16,4258 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 79 79,38 157,69 158,45 125,22 125,92 16,79 16,888 15,545 15,637 13,218 13,296 0,7408 0,7452 129,1 129,86 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Tilvalið í ferðalagið Án viðbætts salts!Án viðbætts sykurs! Kjarngóð næring í þægilegum umbúðum barnamatur.is IRAK, AP Gordon Brown, forsætis- ráðherra Bretlands, segir að verið sé að vinna að áætlun um fækkun hermanna í Írak, en óákveðið sé hvenær hinir 4.000 bresku hermenn sem enn dvelja í landinu verði kallaðir heim. Brown heimsótti Írak í gær. Hermennirnir, sem flestir eru fyrir utan borgina Basra, taka nú lítinn þátt í hernaðaraðgerðum og sinna aðallega þjálfun íraskra öryggissveita. Brown segir mikinn árangur hafa náðst í Írak, árásum hafi fækkað til muna og efnahagsleg uppbygging sé nú hafin víða um landið. - ag Brown heimsækir Írak: Heimkvaðning í vinnslu GORDON BROWN STJÓRNMÁL „Að sjálfsögðu mun ég verða við ósk Steingríms um fund,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður utanríkismála- nefndar. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, hefur óskað eftir fundi með nefndinni vegna meintra misvísandi upplýsinga um eignarhald á mannvirkjum á og við Keflavíkur- flugvöll. Bjarni segist ekki ætla að draga lappirnar með fundinn, en segir að samkvæmt reglum séu ekki haldnir fundir í júlí nema brýna nauðsyn beri til. „Ég hef óskað eftir því við ráðuneytið að teknar verði saman upplýsingar til undir búnings fundinum. Hann gæti þó ekki orðið fyrr en eftir verslunar mannahelgi,“ segir Bjarni. - kg Utanríkismálanefnd Alþingis: Óskar gagna um mannvirki BJARNI BENEDIKTSSON MIÐBÆRINN Ólafur F. Magnússon borgarstjóri fagnar því að Listahá- skólinn „með sína miklu starfsemi og mannauð komi í miðborgina“. Borgaryfirvöld vilji sjá kröftugt mannlíf blómstra í sátt við sögu miðborgarinnar og götumynd Laugavegarins. Borgarstjóri minnir þó á að til- löguna að nýjum Listaháskóla við Laugaveg eigi eftir að leggja fyrir skipulagsráð borgarinnar. Hann hvetur menn því til að „gefa sér ekki of mikið fyrir fram“. Á fimmtudag var kynnt tillaga +Arkitekta að nýbyggingu Samson Properties og gerir hún ráð fyrir því að öll gömlu timburhúsin á reitnum hverfi, utan eitt. Í málefna- samningi núver- andi meirihluta borgarstjórnar stendur hins vegar að leitað verði leiða til að „varðveita 19. aldar götumynd Laugavegarins og miðborgar- innar eins og kostur er“. Ólafur segist „viss um að hægt verði að samræma þarfir Listahá- skólans við vilja borgaryfirvalda um verndun götumyndar“. Stefna meirihlutans sé mjög skýr. „Við höfum haldið uppi öflugri húsverndarstefnu og lagt meginá- herslu á uppbyggingu á baklóðum, líkt og á Laugavegi 4 og 6,“ segir hann. Hann efast ekki um að það takist að ná góðri sátt um þetta: „Við ætlum að leysa vandamálin í mið- borginni, en ekki búa þau til.“ Sumar aðrar tillögur sem kynnt- ar hafa verið gera ráð fyrir að öll gömlu húsin standi en að skólinn sjálfur verði hærri. „En það er enginn að tala um háhýsi þarna. Skipulagsyfirvöld hafa unnið markvisst gegn því að háhýsi rísi á þessu svæði og slík umræða hefur verið þýðingarlaus gagnvart núverandi meirihluta,“ segir Ólafur. Hann minnir á að eitt af hans meginstefnumálum sé að ekki verði leyft að eyðileggja mið- borgina. Reykvíkingar muni bera gæfu til að eiga áfram svokallaðan gamlan borgarhluta. Spurður hvort húsin standi þá áfram segir Ólafur að heppileg- ast sé að „vera ekki með mjög bindandi yfirlýsingar á þessu stigi málsins“. Húsverndarstefna gangi ekki út á það eitt að hreyfa ekki við gömlum húsum. Megin- atriðið sé varðveisla götumyndar og tíðaranda. klemens@frettabladid.is Menn gefi sér ekki of mikið fyrir fram Borgarstjóri segir skipulagsráð eiga eftir að fjalla um tillögu um nýtt hús Lista- háskólans í miðborginni. Borgaryfirvöld vilji vernda götumynd Laugarvegar. TILLAGA AÐ LISTAHÁSKÓLA Þessi tillaga gerir ekki ráð fyrir því að öll timburhúsin þrjú standi áfram, heldur eitt þeirra. MYND/SAMSON ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Vinningstillagan veldur Snorra Frey Hilmarssyni, formanni Torfusamtak- anna, vonbrigðum. „Ef menn eru að leggja mikið á sig til að bjarga gamalli götumynd neðar á Laugaveginum væri skrítið að fara að leggja allt í rúst þarna,“ segir hann. Forskrift samkeppninnar hafi gefið fyrirheit um að tekið yrði tillit til götu- myndar og gamalla húsa. „Þetta stígur alveg á þær hugmyndir. Listaháskólinn gefur sig út fyrir að koma niður í bæ til að taka þátt í bæjarlífinu og vera svo- lítið bóhem. Manni finnst þá að hann ætti að koma klæddur eftir tilefninu. Svo mætir þetta bákn,“ segir Snorri. ÆTTI AÐ KLÆÐA SIG EFTIR TILEFNINU VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg Helsinki Eindhofen Amsterdam London Berlín Frankfurt Friedrichshafen París Basel Barcelona Alicante Algarve Tenerife HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 19° 19° 18° 20° 19° 23° 19° 19° 19° 24° 21° 26° 20° 26° 27° 30° 29° 25° Á MORGUN 5-10 m/s víðast hvar. ÞRIÐJUDAGUR 3-8 m/s. 14 13 13 16 18 13 19 15 17 12 14 4 4 5 3 3 2 4 5 2 6 5 13 11 17 15 12 13 12 15 15 20BREYTINGAR Það eru dálitlar breytingar í kortun- um. Hæðarsvæðið sem var yfi r landinu í gær er að gefa eftir og lægðir að taka völdin. Það þýðir að það þykknar upp sunnan og vestan til í dag og þar má búast við rigningu í kvöld. Á morgun kemur önnur lægð með vætu mjög víða síst þó reyndar á norðaustan og austan verðu landinu. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur AFGANISTAN, AP Bandaríski forsetaframbjóðandinn Barack Obama er nú í kosningaherferð um Kúvæt og Afganistan. Obama hélt til Kúvæt í gær þar sem hann heimsótti aðalherbúðir Banda- ríkjamanna og hélt síðan til austurhluta Afganistans áður en hann fór til höfuðborgarinnar Kabúl. Obama segist vilja kynna sér sjálfur ástandið á svæðunum. Í heimsóknum sínum svaraði hann spurningum, sat fyrir á myndum og spilaði körfubolta við her- menn. Heimsókn Obama til Afganist- ans er hans fyrsta fyrir forseta- kosningarnar sem fara fram í nóvember. - ag Barack Obama á ferðalagi: Fer um Kúvæt og Afganistan MÓTMÆLI Einn var handtekinn við mótmæli Saving Iceland-hópsins á lóð Norðuráls í Helguvík í gær. Honum var gefið að sök að hafa neitað að sinna tilmælum lögreglu og segja til nafns. Tæplega fjörutíu mótmælendur komu til Helguvíkur klukkan hálf tíu í gærmorgun. Hlekkjuðu sumir þeirra sig við vinnuvélar og klif- ruðu upp í krana. Verkstjórar og vinnumenn lögðu samstundis niður vinnu og héldu til búða sinna skammt frá. Fjórtán lögreglumenn voru á svæðinu, og var eina hand- taka dagsins gerð um klukkan hálf fjögur síðdegis. Stuttu síðar hófu mótmælendurnir að tínast á brott. Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn á Suðurnesjum, segir örlitlar ryskingar hafa orðið þegar lögreglumenn ætluðu að losa mót- mælanda sem hafði hlekkjað sig við vinnuvél. Einnig hafi allir mótmæl- endurnir brotið lög með því að neita að hlýða tilmælum lögreglu þegar þeim var sagt að yfirgefa svæðið. Tekin hafi verið niður nöfn allra mótmælendanna, en ekki hafi þótt ástæða til að taka fleiri en einn höndum. Ekki sé ljóst hvort mót- mælendurnir verði ákærðir. Snorri Páll Jónsson, meðlimur Saving Iceland, segir mótmælin hafa tekist vel og vakið athygli á málstað þeirra. Mótmælunum var ætlað að vekja athygli á eyðilegg- ingu jarðhitasvæða á suðvestur- horni landsins og mannréttinda- og umhverfisbrotum Century Alu- minum í Afríku og á Jamaíku. Hópurinn stendur fyrir Þjórsár- göngu á hádegi í dag, sunnudag. - kg Meðlimir Saving Iceland mótmæltu á lóð Norðuráls í Helguvík í gær: Mótmælandi handtekinn MÓTMÆLI Meðlimir Saving Iceland hlekkjuðu sig við vinnuvélar og klifruðu upp í krana. MYND/VÍKURFRÉTTIR STJÓRNSÝSLA Bílafríðindi lík þeim sem fyrrverandi forstjóri Orkuveitunnar, Guðmundur Þóroddsson, naut gilda ekki um starfandi forstjóra. Hjörleifur B. Kvaran forstjóri segir marga starfsmenn fyrir- tækisins njóta bílafríðinda, ýmist að fullu eða til takmark- aðra nota.Sjálfur aki hann sama bílnum og hann hafi fengið til afnota þegar hann var fram- kvæmdastjóri lögfræðisviðs Orkuveitunnar. Fram hefur komið að Guð- mundur hefur til umráða jeppa sem kostar nýr um sjö milljónir. - kóþ Orkuveita Reykjavíkur: Guðmundur á dýrasta bílnum KJARNORKA Samningamenn Írans og hóps stórvelda og alþjóða- stofnana ákváðu í gær að ræðast frekar við um kjarnorkuáætlun Írana eftir tvær vikur. Fundað var í Genf í gær. Samkvæmt Javier Solana, utanríkismálastjóra Evrópusam- bandsins, gáfu Íranar engin skýr svör við tilboði um ýmsar tilslakanir á refsiaðgerðum gegn ríkinu, gegn því að Íranar hætti að auðga úran. Fyrir fundinn hafði fulltrúi Írans sagt að ekki kæmi til greina að hætta að auðga úran. Dró það nokkuð úr miklum væntingum sem menn höfðu haft um árangur af fundinum fyrir fram. - kg Kjarnorkuáætlun Íran: Íranar svöruðu ekki tilboði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.