Fréttablaðið - 20.07.2008, Side 49
SUNNUDAGUR 20. júlí 2008 25
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
*
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
30
64
0
7
2
0
0
8
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
GOLF Ólöf María Jónsdóttir,
atvinnukylfingur úr GK, er sem
stendur í 54.-56. sæti á Opna
ítalska BMW-mótinu sem fram
fer á Argentario-vellinum í
Toscana-héraði á Ítalíu. Hún var
talsvert frá sínu besta á þriðja
hring keppninnar í gær og náði
sér í raun aldrei almennilega á
strik og fór hringinn á 78 höggum
eða sjö höggum yfir pari vallar-
ins.
Ólöf hóf leik kl. 05.30 í morgun
á lokahringnum en mótið er liður
í Evrópumótaröðinni. - óþ
Opna ítalska BMW-mótið:
Ólöf María náði
sér ekki á strik
VONBRIGÐI Ólöf María var langt frá sínu
besta í gær og fór hringinn á 78 högg-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Húsvíkingurinn Guðni
Rúnar Helgason hefur náð
samkomulagi við forráðamenn
Fylkis um að hann rifti samningi
sínum við Árbæjarliðið og leiti á
önnur mið.
Þetta var staðfest í kvöldfrétt-
um Stöðvar 2 í gærkvöld.
Guðni Rúnar, sem er 32 ára
gamall, hefur leikið átta af ellefu
leikjum Fylkis í Landsbankadeild-
inni í sumar en hann kom til
félagsins frá Val fyrir keppnis-
tímabilið árið 2004. - óþ
Leikmannamál hjá Fylki:
Guðni hættur
hjá Fylki
FARINN Guðni Rúnar Helgason hefur
ákveðið að yfirgefa herbúðir Fylkis.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FORMÚLA 1 Bretinn Lewis Hamil-
ton á McLaren náði besta tíman-
um í tímatökum á Hockenheim-
brautinni eftir harða baráttu við
Brasilíumanninn Felipe Massa á
Ferrari í gærdag.
Hamilton er búinn að vera í
miklu stuði á Hockenheim-braut-
inni og hreinlega farið á kostum
á æfingum þar síðustu daga. Það
þarf því ekki að koma á óvart að
Hamilton hafi náð besta tíman-
um í tímatökum í gær og verði
fremstur á ráslínu í Þýskalands-
kappakstrinum sem fram fer í
dag.
Massa kom fast á hæla Hamil-
ton en þeir eru einmitt jafnir í
stigakeppni ökuþóra með 48 stig
fyrir kappaksturinn í dag, ásamt
reyndar heimsmeistaranum
Räikkönen sem náði einungis
sjötta besta tímanum í gær.
Heikki Kovalainen, liðs-
félagi Hamilton hjá
McLaren, náði þriðja
besta tímanum og því
gátu McLaren unað sáttir
við sitt í gær en Hamilton
varaði þó við því að ekk-
ert hefði enn verið unnið.
„Ég er auðvitað ánægð-
ur með að vera fremst-
ur á ráslínu
en ég hins
vegar
engin stig
fyrir það. Ég verð að sýna hvað
ég get þegar í keppnina sjálfa er
komið. McLaren stefnir að því að
taka fyrsta og annað sæti í kapp-
akstrinum, það er ósköp einfalt
mál,“ sagði hinn 23 ára gamli
Hamilton og hélt áfram.
„Þetta var mjög jöfn barátta í
tímatökunni og jafnvel jafnari
en ég átti von á, þannig að það
eru margir ökumenn sem gera
tilkall til sigurs þegar í keppnina
er komið,“ sagði Hamilton að
lokum.
Það var heldur þyngra hljóðið í
Räikkönen í gær.
„Sjötta sæti er alls ekki viðun-
andi árangur en það er enginn
heimsendir heldur og ég mun
gera allt sem í mínu valdi stend-
ur til þess að gera betur þegar í
keppnina er komið,“ sagði Räikk-
önen, sem kvað Ferrari-liðið hafa
lent í vandræðum.
„Við erum búnir að vera í smá
vandræðum alla helgina en von-
andi gengur þetta allt upp að
lokum,“ sagði Räikkönen. - óþ
McLaren-maðurinn Lewis Hamilton hélt áfram að aka vel í gær og náði besta tímanum í tímatökunni:
Lewis Hamilton á ráslínu á Hockenheim
KÁTUR Hamilton hefur ríka
áherslu til þess að vera
ánægður með frammi-
stöðu sína í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY
YFIRBURÐIR Hamilton er búinn að aka eins sá sem valdið hefur frá því æfing-
ar hófust á Hockenheim-brautinni og verður því að teljast líklegur til þess að
halda uppteknum hætti þegar í keppnina er komið. NORDIC PHOTOS/GETTY
GOLF Gamli refurinn Greg Norman
frá Ástralíu heldur sínu striki á
Opna breska meistaramótinu í
golfi sem fram fer á Royal Birk-
dale-vellinum á Bretlandi þessa
dagana. Hvíti hákarlinn er efstur
fyrir lokahringinn sem fram fer í
dag.
Reynsla hins 53 ára gamla
Norman kom til góðra nota í gær á
Royal Birkdale-vellinum þar sem
mikill vindur setti strik í reikning-
inn og skor kylfinga var eftir því.
Aðeins fjórir kylfingar léku á pari
í gær en Norman lék á tveimur
höggum yfir pari og er því sam-
tals á tveimur höggum yfir pari í
efsta sætinu fyrir lokadaginn í
dag. Padraig Harrington frá
Írlandi og KJ Choi frá Suður-
Kóreu eru jafnir í 2.-3. sæti á fjór-
um höggum yfir pari en Choi var
eimitt efstur áður en keppni hófst
í gær en hann lék á 75 höggum.
Norman getur orðið elsti kylf-
ingurinn til þess að vinna Opna
breska meistaramótið en hann
hefur tvisvar sinnum áður unnið
mótið, en í ár eru fimmtán ár frá
því hann vann það síðast.
„Möguleikinn er vissulega fyrir
hendi en það er enn langt í land.
Ég er í fínu formi bæði líkamlega
og andlega og ég ætla bara að
halda áfram á sömu braut og ég
hef verði að fylgja hingað til í mót-
inu,“ sagði Norman, sem sá ástæðu
til þess að hrósa keppinautum
sínum.
„Padraig er búinn að vera að
spila virkilega vel og ég er að
sama skapi mjög hrifinn af því
sem Choi er búinn að vera að
gera,“ sagði Norman. - óþ
Lokadagur Opna breska meistaramótsins í golfi fer fram í dag:
Greg Norman með forystu
REFUR Ævintýri Greg Normans hélt
áfram í gær á Opna breska Meistara-
mótinu og Ástralinn gamalreyndi er
efstur fyrir lokadaginn. NORDIC PHOTOS/GETTY
STAÐAN Á OPNA BRESKA
Kylfingur högg yfir pari
1. Greg Norman (Ástralía) +2
2.-3. Padraig Harrington (Írland) +4
2.-3. KJ Choi (Suður-Kórea) +4
4. Simon Wakefield (England) +5
5.-8. Ben Curtis (Bandaríkjunum) +7
5.-8. Ross Fisher (Englandi) +7
5.-8. Anthony Kim (Bandaríkj.) +7
5.-8. Alexander Noren (Svíþjóð) +7
TÍMATAKA - HOCKENHEIM
Rásröð ökuþóra í Þýskalandi í dag:
1. Lewis Hamilton (McLaren)
2. Felipe Massa (Ferrari)
3. Heikki Kovalainen (McLaren)
4. Jarno Trulli (Toyota)
5. Fernando Alonso (Renault)
6. Kimi Räikkönen (Ferrari)
7. Robert Kubica (BMW Sauber)
8. Mark Webber (RedBull)
9. Sebastian Vettel (Toro Rosso)
10. David Coulthard (RedBull)