Fréttablaðið - 20.07.2008, Page 6
6 20. júlí 2008 SUNNUDAGUR
Íslensk gæðaframleiðsla
Viðhaldsfrítt efni
Endalausir möguleikar
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is
Sérhönnuð fyrir
íslenska
veðráttu
Markísur
FÓLK „Þegar ég fór fyrst yfir
Sprengisand fyrir tíu árum mætti
maður í mesta lagi fjórum eða
fimm bílum á dag. Nú í sumar
mætti ég fjórum til fimm bílum á
fimm mínútna fresti. Ævintýra-
blærinn er nánast alveg horfinn.
Ég hef ekki lengur á tilfinning-
unni að ég sé einn í heiminum, eins
og mér fannst þegar ég kom hing-
að fyrst,“ segir Gerti Van Hal, 37
ára gamall Hollendingur sem
hefur hjólað vítt og breitt um
Ísland á síðustu tíu árum. Á ferð-
um sínum um landið hefur hann
tekið ógrynni svarthvítra ljós-
mynda og haldið á þeim sýningar í
Hollandi. Hann hefur einnig í
smíðum bók um hjólaferðalög sín
á Íslandi.
Gerti segist finna fyrir miklum
áhuga á Íslandi nánast alls staðar
þar sem hann stígur niður fæti í
heiminum. „Ísland er eftirlætis-
staðurinn minn og að sjálfsögðu
er ég ánægður með þennan mikla
áhuga ferðamanna á landinu fyrir
hönd Íslendinga, því ferða-
mennska er mjög mikilvæg fyrir
hagkerfið. Persónulega finnst
mér þessi þróun hins vegar dá lítið
dapurleg. Ég kem til Íslands til að
komast í almenni lega snertingu
við náttúru öflin. Ísland er ein-
stakt í heimin um að þessu leyti og
í fyrstu heimsókninni minni fyrir
tíu árum var afar lítið um
merkingar í óbyggðunum. Það
jók mikið á ævintýra blæinn.
Núna er allt merkt í bak og fyrir
og maður rekst víða á kappfullar
rútur af fólki. Þetta er orðið að
ævintýramennsku fyrir óævin-
týra gjarnt fólk. Það er kannski
ljótt að segja það, en að mínu mati
eru þeir latir sem vilja láta sjá
um allt fyrir sig á ferðalögum.“
Gerti dvelur vanalega á landinu
í þrjár til fimm vikur í senn. Í
þetta sinn hafði hann í hyggju að
vera hér í níu vikur, en eftir fjög-
urra vikna barning í mótvindi og
norðangarra fannst honum komið
nóg og fer heim í dag. „Þegar ég
var 27 ára var ég til í allt og vildi
sanna mig. Núna leitar hugurinn
oftar og oftar til heitari landa
þegar verstu veðrin ganga yfir,“
segir Hollendingurinn hjólandi og
skellir upp úr. kjartan@frettabladid.is
Saknar fámennisins
á hálendi landsins
Hollenskur hjólreiðamaður og ljósmyndari telur ævintýrablæ landsins hafa lot-
ið í lægra haldi fyrir auknum ferðamannastraumi. Merkingum sé víða ofaukið.
ÍSLANDSVINUR Gerti Van Hal kann ákaflega vel við sig á Íslandi að eigin sögn. Hann
segist, merkilegt nokk, taka síður eftir háu verðlagi nú en árin á undan.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEILBRIGÐISMÁL Miltisbrandssýkt-
ar dýraleifar og jarðvegur sem
fundust í nóvember og júní í
Garðabæ eru enn í gámi og bíða
förgunar, að sögn Gunnar Arnar
Guðmundssonar héraðsdýralækn-
is.
Gunnar segir þó förgunar ekki
lengi að bíða. „Það er loksins að
komast lausn í þetta mál. Við
eigum von á því að það verði
jafnvel í þessum mánuði. Þetta er
búið að vera í biðstöðu ævalengi,“
segir hann.
Kaupa á ofn til förgunar
dýraleifanna. Jarðvegurinn
verður hreinsaður og urðaður. - gh
Miltisbrandur frá Garðabæ:
Sýkt hræ enn
geymd í gámi
MILTISBRANDSSÝKTUR JARÐVEGUR Miltis-
brandur er skæður dýrasjúkdómur, en
getur einnig lagst á menn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FJARSKIPTI Opnaður hefur verið
„heitur reitur“ á Austurvelli.
„Heitur reitur“ er þráðlaus
háhraða nettenging sem allar
nýlegar fartölvur eiga að geta
tengst. Því geta fartölvueigendur
skoðað veraldarvefinn á meðan
slappað er af í grasinu á góð-
viðrisdögum. Verkefnið er
sam starf Reykjavíkurborgar og
Vodafone.
Þjónustan verður í boði fram á
haust og verður notendum að
kostnaðarlausu. - hþj
Borgin þjónar netþyrstum:
Heitur reitur á
Austurvelli
VAFRAÐ UM VEFINN Ólafur F. Magn-
ússon borgarstjóri vígði heitan reit á
Austurvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
DÓMSMÁL Hollendingur, sem
smyglaði 770 grömmum af kóka-
íni til landsins í maí, var á fimmtu-
dag dæmdur í átján mánaða fang-
elsi í Héraðsdómi Reykjaness.
Maðurinn kom hingað til lands
með flugi frá Amsterdam þann
29. maí síðastliðinn. Í dómnum
kemur fram að fíkniefnaleitar-
hundur hafi gefið til kynna að
fíkniefnalykt væri af manninum.
Þegar ekkert fannst við gegnum-
lýsingu farangurs og líkamsleit
vaknaði grunur um að hann væri
með fíkniefni innvortis. Hann
skilaði af sér einu hylki með kóka-
íni nóttina eftir að hann kom og
viðurkenndi þá að hafa gleypt
fleiri hylki. Maðurinn neitaði að
taka hægðalosandi lyf og tók því
ellefu daga að fá efnin úr iðrum
hans. Alls skilaði maðurinn niður
42 fíkniefnahylkjum með 770,33
grömmum af kókaíni.
Maðurinn játaði sök í málinu og
gerði ekki athugasemdir við gögn
málsins. Hann sagðist sjá eftir
gjörðum sínum og upplýsti að
hann ætti ungt barn í Hollandi.
Fram kemur í dómnum að ljóst
þyki að hlutur mannsins í málinu
hafi aðeins snúið að því að flytja
efnin til landsins. Hann var því
dæmdur í átján mánaða fangelsi
og til þess að dæma allan sakar-
kostnað. - þeb
Hollendingurinn sem var með kókaín innvortis í ellefu daga:
18 mánuðir fyrir kókaínsmygl
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR Hollendingur-
inn var handtekinn í Leifsstöð þann 29.
maí þegar fíkniefnahundur gaf til kynna
að fíkniefnalykt væri af honum.
FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
SKEMMTUN Á Kátum dögum sem
haldnir eru á Þórshöfn á Langa-
nesi nú um helgina er meðal ann-
ars efnt til kraftakeppni fyrir
„venjulegt fólk“ úr þorpinu.
„Við vildum setja upp keppni
fyrir fólk sem er að koma úr vinn-
unni, ekki vöðvatröll,“ segir
Jóhanna Eiríksdóttir, formaður
Íslenska kraftlyftingasambands-
ins, sem stendur að keppninni.
„Fólk vill nefnilega líka taka þátt,
ekki bara að horfa á,“ segir
Jóhanna. Keppt er í sex greinum
og eru keppendur sextán; átta
konur og átta karlar. Segir Jóhanna
að færri hafi komist að en vildu.
Ein keppnisgreinanna er útkast-
arakeppni. „Við búum til „ein-
stakling“ með því að fylla kraft-
galla og náum honum upp í 40-50
kíló, svo er látið sem hann sé ölv-
aður og því þurfa keppendur að
kasta honum út.“
Jóhanna segir markmiðið vera
að fá fleiri bæjarfélög til þess að
taka þátt. „Hugmyndin er að við
förum með keppnina um landið og
svo geta bæirnir keppt innbyrðis.“
- hþj
Langanesvíkingurinn snýr aftur á Kátum dögum á Þórshöfn:
Aflraunakeppni almennings
STERKAR STELPUR Átta konur og átta karlar reyna með sér í kraftakeppni „venjulega
fólksins“ á Þórshöfn um helgina.
VINNUMARKAÐUR „Ég held að
einhver samdráttur í byggingar-
iðnaði sé óhjákvæmilegur en
menn verða að reyna að draga úr
honum með einhverjum hætti,“
segir Jón Steindór Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins.
Hann telur að ríki og sveitar-
félög eigi að auka sínar fram-
kvæmdir nú þegar kreppir að.
„Eitt af því er viðhald á mann-
virkjum og húsnæði í eigu hins
opinbera. Sumarið er mikill
framkvæmdatími svo ég held að
við séum ekki farin að sjá
atvinnuleysið að fullu komið fram
ennþá.“ - ovd
SI óttast aukið atvinnuleysi:
Fleiri opinberar
framkvæmdir
HOUSTON, AP Fjórir létust og sjö
særðust þegar krani steyptist yfir
olíuhreinsistöðina LyondellBasell í
Houston í Bandaríkjunum á
föstudag. Um 4.500 manns vinna í
stöðinni.
Kraninn, sem var tæpir 92
metrar á hæð, féll til jarðar þegar
unnið var að lagfæringum á
honum.
Vinnueftirlitið rannsakar slysið
ásamt nokkrum öðrum svipuðum
slysum sem orðið hafa í Banda-
ríkjunum á undanförnum mánuð-
um. Til dæmis létust níu manns í
tveimur kranaslysum í New York á
síðustu fjórum mánuðum.
- ag
Fjórir létust og sjö slösuðust:
Krani féll á
olíuhreinsistöð
VIÐSKIPTI Óli Olsen, sem er 75
prósent öryrki, þurfti að greiða
tæplega ellefu þúsund króna
uppgreiðslugjald þegar hann
borgaði 370 þúsund krónur til að
lækka höfuðstól rúmlega átta
hundruð þúsund króna láns sem
hann er með hjá Sparisjóði
Keflavíkur.
Óli er ósáttur við gjaldtökuna.
„Mér finnst þetta mjög óeðlilegt,
hvernig bankarnir geta alls
staðar náð sér í peninga,“ segir
hann. „Þetta er stór þjófnaður hjá
bönkunum.“ - gh
Óli Olsen um lánagjöld:
„Þjófnaður hjá
bönkunum“
Er iPod-spilari upptökutæki?
Já 26,3%
Nei 73,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er þörf á að rannsaka Hafskips-
málið betur?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN