Fréttablaðið - 20.07.2008, Page 48
24 20. júlí 2008 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Þeir sem elska smurt brauð í
sólskini, listasafn og „bröns“
á laugardagsmorgni, hjóla-
túra, eða Tívolí ættu að fara
til Kaupmannahafnar.
*Flug aðra leiðina með sköttum. Verð gildir frá 15. ágúst 2008.
Safnaðu
Vildarpunktum Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
Farðu til Kaupmannahafnar,
í helgarferð eða í sumarleyfi,
taktu fjölskylduna með og dönsku
málfræðina úr tíunda bekk.
Værsågod! Þú átt skilið að hafa það
„hyggeligt“. Drífðu bara í því
að panta far!
M
A
D
R
ID
B
A
R
C
E
LO
N
A
PARÍS
LONDO
N
MANCHESTER
GLASGOW
MÍLANÓ
AMSTERDAM
MÜNCHEN
FRANKFURT
BERLÍN
KAUPMANNAHÖFN
BERGEN
GAUTABORG
OSLÓ
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
HA
LI
FA
X
BO
ST
ON
OR
LAN
DO
MINN
EAPOL
IS – ST. P
AUL
TOR
ONT
O
NE
W
YO
RK
REYKJAVÍK
AKUREYRIÓLYMPÍULEIKAR Undirbúningur
íslensku keppendanna fyrir
Ólympíuleikana í Peking er nú
kominn á lokastig. Það er að
mörgu að hyggja utan vallar sem
innan og því er mikilvægt að allur
aðbúnaður og þægindi séu eins
og best verður á kosið fyrir
Ólympíufarana.
Búnaður íslensku Ólympíufar-
anna var kynntur í Vodafone-höll-
inni í fyrrakvöld, í hálfleik á vin-
áttulandsleik Íslands og Spánar.
Klæðnaðurinn samanstendur
af inngöngufatnaði, skóbúnaði,
daglegum fatnaði og keppnis-
galla.
Inngöngufatnaður íslenska
hópsins er hannaður af Kristínu
Halldórsdóttur og saumaður af
fyrirtækinu HEXA, en Kristín sá
einnig um hönnun á inngöngu-
fatnaði íslenska hópsins fyrir
Ólympíuleikana í Sydney árið
2000 og Aþenu árið 2004.
Skóbúnaður hópsins fyrir inn-
gönguna kemur frá Skókaupum
og eru þeir frá fyrirtækinu
Skechers en annar skóbúnaður
hópsins kemur frá Icepharma og
eru það Nike-skór.
Hinn daglegi fatnaður og
keppnisgalli Ólympíuhópsins
kemur frá Henson en þess utan
hannaði fyrirtækið keppnisfatn-
aðinn fyrir frjálsíþróttir og bad-
minton.
Íslenski hópurinn, keppendur
og fylgdarlið, verður líka vel
útbúinn tæknilega þar sem
Tæknivörur og Vodafone hafa
lagt til Samsung-farsíma og
Nýherji leggur til Lenovo-far-
tölvur og Canon-myndavélar.
- óþ
Ólympíufararnir kynntu fatnað íslenska hópsins og fengu tölvur að gjöf:
Allt að verða klárt fyrir ÓL
GJAFIR Líney Rut Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri ÍSÍ, tekur hér við
tölvu úr hendi Erlings Ásgeirssonar,
framkvæmdarstjóra Notendalausna
Nýherja. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
FRÍÐUR HÓPUR Ólympíufaranir íslensku voru með létta tískusýningu í Vodafone-
höllinni í fyrrakvöld þar sem ÓL-fatnaðurinn var kynntur. Hér má sjá inngöngufatn-
aðinn sem Kristín Halldórsdóttir hannaði og keppnisgalla Henson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Guðmundur Guðmundsson var sáttur eftir að hafa loksins
landað sigri á Spáni í fjórðu tilraun.
„Þetta var frekar skrýtinn leikur. Við vorum komnir í
vandræði í fyrri hálfleik en náðum að snúa leiknum. Við
gerðum ákveðnar breytingar á liðinu og það heppnaðist
rosalega vel. Við snúum leiknum og komumst yfir í hálf-
leik. Liðið var að spila mjög vel í síðari hálfleik. Þeir sem
komu inn stóðu sig mjög vel og það er ánægjulegt að sjá
það en Spánverjar voru greinilega þreyttir.“
„Það er mjög jákvætt að það eru margir
leikmenn sem koma inn sem standa sig mjög
vel, bæði í vörn og sókn. Við fengum góða vörn
með þessum breytingum og fríska sókn. Það
kom hraðara tempó í leikinn og menn börðust
fyrir þessu. Við ætluðum að sigra. Við höfum
leitt alla leikina gegn Spáni að hluta til og
tapað naumlega. Nú var kominn tími á sigur
og það var mikilvægt að ná honum.“
Guðmundur segist ekki horfa lengra fram í
tímann en til næsta verkefnis sem fer fram í Strassborg í Frakklandi
þar sem Ísland mætir heimamönnum, Egyptum og Spánverjum á
þremur dögum.
„Nú tökum við næsta mót, sem er um næstu helgi. Þá kemur í ljós
hvar við stöndum. Það er erfitt að meta liðið á þessari stundu.“
Guðmundur vildi ekkert segja um hvaða leikmenn hann hygðist
taka með sér til Peking. „Það er ómögulegt að segja hversu margir
hafa nú þegar tryggt sér sæti í lokahópnum.“
Alexander Petterson lék mikið í hægri skyttunni í leiknum
gegn Spáni og stóð sig frábærlega.
„Við höfum æft að vera með Alexander í skyttunni og
það hefur gengið vel. Þess vegna ákváðum við að fylgja
því eftir og hann stóð sig frábærlega.“
„Flestir leikmenn eru í góðu formi og ég er bjartsýnn
eins og alltaf en við verðum að sjá til. Fyrsta markmið
er að komast upp úr riðlinum, vera meðal fjögurra
efstu í riðlinum,“ sagði Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari um markmið liðsins á Ólympíuleik-
unum í Peking. - gmi
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON: ER EKKERT AÐ TAPA SÉR ÞRÁTT FYRIR GÓÐAN LEIK ÍSLANDS
Kemur í ljós um næstu helgi hvar liðið stendur
> TaKesha Watson ekki með Keflavík
Hin bandaríska TaKesha Watson mun ekki leika með
Íslandsmeisturum Keflavíkur í Iceland Express-
deildinni næsta haust en þetta staðfesti Jón
Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, í viðtali
við heimasíðuna Karfan.is í gær. Leikstjórnand-
inn snjalli hefur verið einn allra besti
leikmaður deildarinnar undanfarin ár
en hún var með 27,3 stig að meðal-
tali í leik í deildarkeppninni á síðasta
tímabili og 26,8 stig að meðaltali í úrslita-
keppninni og ljóst er að það er gríðarleg
blóðtaka fyrir Keflavíkurliðið að missa hana.
En Keflvíkingar ætla ekki að deyja ráðalausir
og eru sagðir nálægt því að krækja í nýjan
bandarískan leikmann í hennar stað.
Vináttulandsleikur í handb.
Ísland-Spánn 35-27 (16-15)
Mörk Íslands (skot): Alexander Petterson 8
(9), Snorri Steinn Guðjónsson 6/3 (9/3), Logi
Geirsson 5 (7), Ólafur Stefánsson 4 (7/1), Bjarni
Fritzson 3 (4), Arnór Atlason 2 (3), Sturla Ásgeirs-
son 2 (3), Róbert Gunnarsson 2 (4), Sigfús
Sigurðsson 1 (1), Ásgeir Örn Hallgrímsson 1 (2),
Rúnar Kárason 1 (3), Guðjón Valur Sigurðsson (2)
Varin skot: Hreiðar Guðmundsson13 /1 (33/4
39,4%), Björgvin Páll Gústavsson 11/1 (18/2
61,1%)
Hraðaupphlaup: 10 (Alexander 3, Bjarni 2,
Sturla, Ólafur, Sigfús, Róbert, Ásgeir)
Fiskuð víti: 4 (Snorri 3, Arnór)
Utan vallar: 8 mínútur
Mörk Spánar: Cristian Malmagro 5/4 (12/5),
Ruben Garabaua 4 (5), Juan Garcia 4 (5/1), Car-
los Ruesga 3 (4), Albert Entrerrios 3 (5), David
Davis 2 (2), Victor Tomas 2 (4), Ion Belaustegui 1
(3), Raul Entrerrios 1 (4), Albert Rocas 1 (4), Iker
Romero 1 (4)
Varin skot: Jose Hombrados 13 (48/3 27,1%)
Hraðaupphlaup: 3 (Garcia 2, Tomas)
Fiskuð víti: 6 (Tomas 3, Garabaua 2, Prieto)
Utan vallar: 4 mínútur
Æfingaleikir í fótbolta
Wisla-Liverpool 1-1
0-1 Andriy Voronin (6.), 1-1 Tomas Jirsak (12.).
Kaizer Chiefs-Man. Utd 1-1
1-0 Jonatan Quartey (38.), 1-1 Chris Eagles (59).
Barnet-Arsenal 1-2
1-0 Kenny Gillet (16.), 1-1 Jay Simpson (63.), 1-2
Nacer Barazite (73.).
ÚRSLIT
HANDBOLTI Ísland rúllaði yfir Spán,
35-27, í síðasta æfingaleik sínum á
Íslandi fyrir Ólympíuleikana.
Ísland lék frábærlega síðustu 40
mínútur leiksins og vann fyllilega
verðskuldaðan sigur á óvenju
þunglamalegu spænsku liði.
Spánverjar hófu leikinn af mikl-
um krafti og þegar rétt rúmar 10
mínútur voru eftir af fyrri hálf-
leik höfðu Spánverjar náð sjö
marka forystu, 7-14. Þá hófst frá-
bær leikkafli hjá íslenska liðinu
sem skoraði átta mörk í röð og
komst yfir, 15-14. Ísland var einu
marki yfir í hálfleik, 16-15.
Jafnræði var með liðunum í
upphafi síðari hálfleik eða allt þar
til staðan var 20-20. Þá kom Björg-
vin Gústavsson í markið og hélt
hreinu í sjö mínútur og Ísland
komst sjö mörkum yfir, 27-20.
Ísland hélt forystunni allt til leiks-
loka og vann að lokum sannfær-
andi sigur á þungum Spánverjum.
Alexander Petterson fór á kost-
um í skyttustöðunni í sóknarleikn-
um og skoraði fimm mörk í síðari
hálfleik. Alexander reiknar með
að þurfa að leysa Ólaf af hólmi í
skyttustöðunni á Ólympíuleikn-
um.
„Við höfum æft þetta þar sem
Einar Hólmgeirsson verður ekki
með á Ólympíuleikunum. Ég mun
líka spila þessa stöðu hjá mínu
félagi á næsta tímabili úti í Þýska-
landi þannig að það er gott fyrir
mig að æfa í þessari stöðu. Ég tel
mig geta staðið mig vel í skytt-
unni.“
„Það er mjög gott tilfinning að
sigra þetta lið. Þeir eru eitt af
fimm bestu liðum heims. Það er
mjög gott að sigra þetta lið.“
Hlutirnir fóru ekki að ganga hjá
Íslandi fyrr en Guðmundur hóf að
skipta varamönnunum inn á.
„Þjálfarinn tók gömlu mennina
útaf,“ sagði Alexander í léttum
dúr um ástæðu hins mikla við-
snúnings sem varð í stöðunni 7-
14.
„Við erum með góða leikmenn á
bekknum og allir geta staðið sig
vel,“ sagði Alexander í leikslok.
- gmi
Kvöddu landann með góðum sigri
Síðasti æfingaleikur strákanna okkar á Íslandi fyrir Ólympíuleikana endaði með stórsigri á einu besta
landsliði heims. Lokatölur urðu 35-27 en íslenska liðið fór á kostum í leiknum, sérstaklega í seinni hálfleik.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
FYRIRLIÐINN Ólafur Stefánsson reynir hér að brjóta
sér leið í gegnum spænsku vörnina af miklu harðfylgi.
Auglýsingasími
– Mest lesið