Fréttablaðið - 24.07.2008, Qupperneq 12
12 24. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Líkt og síðustu vikur tók Fréttablaðið saman
það helsta sem um er að vera á landsbyggð-
inni um helgina.
Í Reykholti fer fram Reykholtshátíðin Sam-
hljómur. Hátíðin er klassísk tónlistarhátíð sem
hófst í gær og lýkur á sunnudag.
Á sunnanverðum Vestfjörðum verður
göngu- og menningarhátíðin Svartfuglinn
haldin um helgina. Gönguferðir og ýmsar
uppákomur verða frá því í dag og fram á
sunnudag. Boðið er upp á tvenns konar mis-
erfiðar göngur. Fyrir þá sem ekki treysta sér í
göngur á Vestfjörðum er bæjarhátíðin Tálkna-
fjör á Tálknafirði einnig um helgina. Útimark-
aðir, tónleikar og grillveisla eru á meðal þess
sem boðið verður upp á.
Landsmót skáta fer fram á Hömrum við
Akureyri um helgina. Þar eru um 2.000 skátar
á öllum aldri samankomnir.
Mærudagar eru haldnir á Húsavík um helg-
ina. Á Mærudögum er boðið upp á ýmiss
konar námskeið, þá verður fjölskyldudansleik-
ur á föstudag og markaður, knattspyrnuleikir
og tveir dansleikir á laugardagskvöld.
Á Borgarfirði eystri verður tónlistarhátíðin
Bræðslan á laugardagskvöld. Þar koma fram
Damien Rice, Bryndís Jakobsdóttir, Eivör Páls-
dóttir og Magni Ásgeirsson.
Vopnafjarðardagar verða um helgina. Þar
verður grillveisla og brekkusöngur annað
kvöld, og á laugardag verða fjölskyldu-
skemmtanir og stórdansleikur á laugardags-
kvöld. Á Fáskrúðsfirði verða Franskir dagar
haldnir hátíðlegir.
Á Hvammstanga fer fram unglistarhátíð-
in Eldur í Húnaþingi. Hátíðin er skipulögð
af ungu fólki á svæðinu og er meðal ann-
ars rekin sérstök útvarpsstöð fyrir hátíðina.
Hljómsveitin Dalton mun leika fyrir dansi á
laugardagskvöldið, en ýmis námskeið og
óvæntar uppákomur munu eiga sér stað.
Um helgina er gert ráð fyrir að hiti verði á
bilinu 12 til 22 stig og hlýjast á Norðurlandi.
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
Gott veður á tónlistar- og bæjarhátíðum um allt land
MÆRUDAGAR Á HÚSAVÍK Mærudagar fara fram
um helgina á Húsavík. Gert er ráð fyrir að veður
verði best á Norður- og Norðausturlandi.
Þjóðhátíð í Grímsey
„En ég er að vinna í því að fá
lunda frá Grímsey. Það er því
hugsanlegt að Grímseyingar
bjargi Þjóðhátíðinni í ár.“
MAGNÚS BRAGASON, LUNDAVERK-
ANDI Í VESTMANNAEYJUM, UM
YFIRVOFANDI LUNDASKORT.
24 stundir, 23. júlí.
Skortir hugkvæmni
„Ég held að þeir sem setja
lög og reglur um svona
nokkuð hafi hreinlega ekki
hugkvæmni til að láta sér
detta í hug slíkur möguleiki.“
SIGURÐUR HELGASON HJÁ UM-
FERÐARSTOFU UM JEPPABIFREIÐ
MEÐ GÚMMÍTYPPI Á VÉLARHLÍF-
INNI.
Fréttablaðið, 23. júlí.
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
Landsmót skáta var sett að
Hömrum við Akureyri á
þriðjudag. Búist er við met-
þátttöku í ár. Skátahöfðingi
Íslands segir skátastarfið
þróast með breyttum sam-
félagsháttum.
„Skátastarfið breytist og þróast
með tímanum, jafnvel þótt grunn-
gildin séu ávallt hin sömu,“ segir
Margrét Tómasdóttir, skátahöfð-
ingi Íslands. Landsmót skáta var
sett að Hömrum við Akureyri á
þriðjudag. Veðrið hefur leikið við
mótsgesti og búast mótshaldarar
fastlega við metþáttöku á lands-
mótinu í ár.
Margrét segir skátastarfið vel til
þess fallið að teygja í hinar ýmsu
áttir, allt eftir áhugasviði hvers og
eins. „Grunngildi skátastarfsins,
að þroska sjálfan sig, taka þátt í
samfélaginu á heilbrigðan máta og
hjálpa öðrum, skipa eðlilega afar
stóran sess í öllu okkar starfi. Hins
vegar lögum við okkur að breyti-
legu samfélagi. Skátar geta verið
mikið útivistarfólk, en þeir geta
líka verið tækninördar,“ segir hún
og hlær. „Það ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi í skátastarf-
inu.“
Að sögn Margrétar dvelja yfir
tvö þúsund þátttakendur, að for-
ingjum meðtöldum, á mótssvæð-
inu alla vikuna sem mótið stendur
yfir. Eftir því sem líður á mótið
bætist þó sífellt við hópinn. Á
laugardaginn er búist við miklum
fjölda fólks á svæðið, en þá er
öllum sem vilja boðið í heimsókn.
Margrét býst við að gestir verði
fleiri nú í ár en á síðasta landsmóti
á Úlfljótsvatni fyrir þremur árum.
Þá komu átta þúsund manns. Um
sjö hundruð erlendir þátttakendur
eru staddir á mótinu, flestir frá
Bretlandi og Skandinavíu.
Skipulögð dagskrá mótsins er
fjölbreytt. Má þar nefna göngu-
ferðir, vatnasafarí og hinar ýmsu
skátaþrautir. Einnig býður skáta-
félagið Radíóskátar upp á kennslu
í samsetningu rafeindatækja, og
er búist við mikilli þátttöku í
þeirri grein.
Þema landsmótsins í ár er „Á
víkingaslóð“. Margrét segir þátt-
takendur hafa lagt töluvert á sig
við undirbúning og lærdóm um
víkingasið. „Hér eru margir
hlaupandi um í víkingaskikkjum,
með skildi, hjálma og allt tilheyr-
andi.“
Áhugasömum er bent á beinar
útsendingar frá mótinu og
útvarpsstöð mótsins, Radíó
Ragnarök, á vefslóðinni mms://
wms.vodafone.is/landsmot2008.
kjartan@frettabladid.is
Skátar geta verið tækninördar
VIÐSKIPTI „Við erum nítján athafnakonur sem höfum
sett saman sjóð og ætlum að fjárfesta saman á hluta-
bréfamarkaði,“ segir Aðalheiður Karlsdóttir einn
stofnenda eignarhaldsfélagsins Naskar sem stofnað
var á dögunum.
Hugmyndin vaknaði hjá alþjóðanefnd félags
kvenna í atvinnurekstri og er byggð á þýskri
fyrirmynd. „Þetta er tilraunaverkefni sem við
höfum unnið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík í
tengslum við mannauðsverkefnið þar. Þetta snýst
um það að nítján konur hafa stærra tengslanet en
ein kona.
Við leggjum áherslu á arðbærar fjárfestingar en
reynum að forðast að fjárfesta í fyrirtækjum sem
tengjast vopnaiðnaði eða klámi. Ennfremur skoðum
við stjórnarskipan fyrirtækja og það er plús ef það
eru margar konur í stjórn.
Hópurinn er lokaður og mun væntanlega verða
það áfram. Við völdum konurnar mjög vandlega og
skilgreindum hvað væri styrkleiki fyrir hópinn. Við
erum til dæmis með löggilda verðbréfamiðlara,
lögfræðinga og endurskoðendur. Þetta eru konur
með mjög víðtæka reynslu sem styrkja hópinn og
sjálfar sig í leiðinni. En þær þurfa ekki bara að vera
klárar heldur líka skemmtilegar.“ - ges
Nítján konur setja saman sjóð og ætla að fjárfesta á hlutabréfamarkaði:
Fjárfesta hvorki í vopnum né klámi
AÐALHEIÐUR KARLSDÓTTIR Einn stofnenda hópsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
EFNIVIÐUR SÓTTUR Þessir skátar sóttu sér efnivið í trönur til þess að byggja sér hlið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
KÓPAR Skátarnir í Kópum frá Kópavogi
reistu þetta glæsilega hlið. Dagurinn í
gær fór í mestu í hliðagerð og annan
frágang í tjaldbúðum skátanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/HKVAM
DANSKIR SKÁTAR Skátarnir á mótinu
eru af mörgum þjóðernum. Þessir
dönsku skátar fengu sér að borða eftir
að hafa reist hlið við tjaldbúðir sínar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
„Mér er einhvern veginn sama um
forsetann og hvað hann gerir,“
segir Elísabet Jökulsdóttir skáld um
þá ákvörðun forsetans að fara á
Ólympíuleikana í Kína í haust. „Auð-
vitað fer hann til Kína og er ekkert
að mótmæla neinu. Ég er eiginlega
hætt að lesa nokkuð um hann, mér
er ekkert illa við hann. Ég hef bara
einhvern veginn misst áhugann á
honum.“
„Ég er náttúrulega geðfötluð svo
ég kemst ekki til Kína, svo það er
kannski ágætt að forsetinn komi
í minn stað,“ segir Elísabet. „Við
höfum verið að reyna að hafa
íþróttir sem eitthvað sem þjóðir
heims geta sameinast um og lagt á
hilluna alls konar ágreiningsatriði.
Það hefur verið hin gullna regla
íþróttanna frá upphafi að þetta er
leikur og þegar leikurinn er búinn
er hann búinn. Þetta hefur verið
ákveðið sameiningartákn en Kín-
verjarnir eru að brjóta þetta allt með
þessum furðulegu reglum sínum.
Hvernig á til dæmis að skilgreina
geðfötlun? Má ekki gera ráð fyrir því
að einhverjir íþróttamenn hafi glímt
við þunglyndi eða kvíðaköst eins
og fólk gerir? Þessi listi er einhvern
veginn aftan úr öldum.“
Kínverjar
brjóta reglur
íþróttanna
ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR Skáld
SJÓNARHÓLL
FORSETI ÍSLANDS FER Á ÓLYMPÍU-
LEIKANA Í KÍNA