Fréttablaðið - 24.07.2008, Blaðsíða 48
28 24. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
PETER SELLERS LÉST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1980
„Þú kemst að því hvað ham-
ingja er þegar þú ert búinn
að gifta þig. En þá er það
orðið of seint.“
Peter Sellers á að baki fjölda
kvikmynda eins og Bleika par-
dusinn og Dr. Strangelove or:
How I Learned to Stop Worry-
ing and Love the Bomb.
Þennan dag árið 2001 var Simeon Saxe-Coburg-
Gotha kosinn forseti Búlgaríu. Hann var jafnframt
Tsar, eða keisari, Búlgaríu frá 1943 til 1946 eða
þar til kommúnistar tóku völdin.
Saxe-Coburg-Gotha varð að þjóðhöfðingja
1943, einungis sex ára gamall, en þá lést faðir
hans. En sex ára barn telst seint hæft til emb-
ættisstarfa svo frændi Saxe-Coburg-Gotha, for-
sætisráðherrann og yfirmaður hersins fóru með
völd. Það varð Saxe-Coburg-Gotha til lífs að vera
valdalaus því þremenningarnir sem stjórnuðu í
hans nafni voru allir líflátnir er Sovétríkin komu á
leppstjórn í Búlgaríu haustið 1946.
Saxe-Coburg-Gotha, ásamt eftirlifandi meðlim-
um Tsar-fjölskyldunnar, var sendur í útlegð, fyrst
til Egyptalands og síðar Spánar. Hann sneri aftur
til Búlgaríu árið 1996, sex árum eftir að komm-
únistar misstu völd þar. Hann stofnaði fljótlega
stjórnmálaflokk og 24. júlí árið 2001 var hann
kosinn forsætisráðherra með yfirgnæfandi meiri-
hluta. Hann varð þannig að fyrsta kónginum til
að vera kosinn þjóðhöfðingi í frjálsum kosning-
um.
ÞETTA GERÐIST: 24. JÚLÍ ÁRIÐ 2001
Keisarinn sem kjörinn var forseti MERKISATBURÐIR1896 St. Jósefssystur koma til
Íslands, fyrstu nunnurnar
síðan fyrir siðaskipti.
1950 Fyrstu V-2 eldflauginni er
skotið á loft frá Kennedy
Space Center.
1956 Grínistarnir og sjarmatröll-
in Dean Martin og Jerry
Lewis koma saman í síð-
asta skiptið á Copaca-
bana klúbbnum í NY.
1961 Yuri Gagarin kemur til Ís-
lands, þremur mánuðum
eftir að hafa orðið fyrst-
ur manna til að fara út í
geim.
1977 Fjögurra daga stríði Eg-
ypta og Ísraela lýkur.
2005 Lance Armstrong vinnur
sjöunda sigur sinn í röð í
Tour de France-hjólreiða-
keppninni.
Landsmót skáta stendur nú sem hæst á Hömrum við Ak-
ureyri með þátttöku um 2.000 skáta, íslenskra og erlendra.
Þemað er „Á víkingaslóð“ og sett hefur verið upp sérstakt
víkingaþorp þar sem finna má eldsmiðju, tré- og leður-
smiðju, jurtasetur og menningartorg. Eðalskátinn Aðal-
steinn Þorvaldsson er félagsmálastjóri hjá Bandalagi ís-
lenskra skáta en ver frístundum sínum líka í þágu hreyf-
ingarinnar og hefur verið sveitarforingi hjá Ægisbúum í
tíu ár. Hann segir landsmót hápunkt og uppskeru hins dag-
lega skátastarfs og er að sjálfsögðu mættur á mótið með
dróttskátasveit sína, Erni. „Skátastarf er ekki áhorfendas-
port heldur taka allir þátt. Hver flokkur hefur valið sér
verkefni til að leysa og allir hafa eitthvað að gera,“ lýsir
hann og nefnir vatnsbardaga, þrautabrautir, hjólaferðir og
flekagerð, auk verkefna í víkingaþorpinu.
Á laugardaginn segir Aðalsteinn alla velkomna á svæðið,
tekur samt fram að rukkað verði smávegis inn. En hvern-
ig hefur viðrað? „Betur en við bjuggumst við. Skátar fara
ekki í útilegu nema búa sig undir það versta. Á síðasta
landsmóti árið 2005 vorum við með mikla óveðursáætlun
en hefðum þurft að búa okkur betur undir ofþornun og sól-
sting því hitinn var um 25 stig.“
Aðalsteinn kveðst hafa verið kominn á þrítugsaldur
þegar hann gekk til liðs við skátahreyfinguna. „Góðvinur
minn í skátunum bauð mér í félagsútilegu að Úlfljótsvatni
og ég gersamlega heillaðist. Vildi gjarnan láta gott af mér
leiða og fann þarna skemmtilegan félagsskap sem skilar
miklu til einstaklinganna. Ég hef aldrei verið í æskulýðs-
menginu heldur alltaf í leiðtogahlutverki sem er mjög gef-
andi og lærdómsríkt.“
Dróttskátasveitin Ernir er skipuð 13 til 15 ára krökk-
um. Aðalsteinn segir sitt hlutverk jafnan að sjá til þess
að sveitin hafi eitthvað uppbyggilegt fyrir stafni sem
ögrar og veitir áskorun. Þar eru útilegur í mestu uppá-
haldi. „Krakkarnir eru æfðir í lýðræðislegum vinnubrögð-
um og verkefnin eru margvísleg en ganga mest út á hæfni
og kröfur útilífs. Friðar-, mannúðar- og hjálparstarf er líka
á dagskrá auk þess sem þeir aðstoða yngri krakka og taka
fyrstu skrefin í leiðtogaþjálfuninni. Markmið skátastarfs
er samt ekki skátastarf heldur að búa til ábyrga, virka og
hjálpsama einstaklinga.“
En nenna börn og unglingar í dag að ganga á fjöll, reyna
á sig og upplifa þurrabúð og þrengingar?
„Já. Útilega hefur alltaf verið snar þáttur í skátastarfi
enda öllum hollt að fara úr sínu eðlilega umhverfi og út í
náttúruna, læra þar á sjálfa sig og verða góður félagi og
lagsmaður eins og það er orðað í skátalögunum. Skátalíf er
ákveðin vegferð og hún endist alla ævi. Þess vegna er eitt
sinn skáti ávallt skáti.“ gun@frettabladid.is
AÐALSTEINN ÞORVALDSSON: SVEITARFORINGI Í TÍU ÁR
Landsmót er uppskera og
hápunktur skátastarfsins
SKÁTAFORINGINN Aðalsteinn ásamt hluta skátanna sem hjóluðu yfir Kjöl á leið sinni á landsmótið. Fréttablaðið/Heiða.isAFMÆLI
BRYNDÍS
HÓLM frétta-
kona er 43 ára
í dag.
HARALDUR
STURLAUGS-
SON fram-
kvæmdastjóri
er 59 ára í
dag.
MICHAEL
ANTHONY
RICHARDS,
leikari og
grínisti, er 59
ára í dag.
TJALDAÐ Skátahreyfingin barst til Íslands árið 1912 og landsmótið á
Hömrum er hið 26. í röðinni.
50 ára afmæli
Í tilefni afmælis míns 28. júlí nk.
langar mig að fagna með ætting jum og
samferðafólki í Félagslundi
Gaulverjabæjarhreppi laugardaginn
26. júlí kl. 20.00 (tjaldaðstaða)
Hlakka til að sjá ykkur !
Guðrún B.
Ægisdóttir
80 ára afmæli
Kristján G
Eggertsson
Hjaltabakka 18
er 80 ræður í dag
Í tilefni dagsins ætlar hann að taka
á mótifjölskyldu og vinum í í Kívanis
húsinu í Mosfellsbæ kl 18.00 í dag.