Fréttablaðið - 24.07.2008, Síða 31

Fréttablaðið - 24.07.2008, Síða 31
FIMMTUDAGUR 24. júlí 2008 5 Lifandi veggfóður ÁÞREIFANLEGT MYNSTUR. Veggfóður hafa notið mikilla vinsælda síðustu misseri. Breska fyrirtækið Romo Fabrics framleiðir þetta fallega veggfóður með upp- hleyptu, hringlaga blómamynstri í nokkrum litum. Veggfóðrið kallast Lasari Flock. Hægt er að nálgast veggfóðrið og panta bæklinga á www.romofabrics.com. - hs Í eldhúsinu ætti hver hlutur að eiga sinn stað svo allt komist örugglega fyrir. Eldhúsglugginn er prýðisgeymsla sem gleymist oft. Eðlilega eru gluggarnir misstórir, en ýmislegt er hægt að gera til að nýta þá betur. Oft eru gluggakistur notað- ar undir blóm eða kryddjurtir, en einnig er hægt að fá sér litlar hill- ur sem festar eru milli glugga- karma og nýta þær undir krydd- stauka eða annað smádót. Líka er hægt að hengja stangir þvert yfir gluggann í mismunandi hæð, allt eftir því hvað á að hengja á þær. Á stöngunum er svo hægt að geyma potta, sigti, sleifar og spaða. Ekki nóg með að glugginn sé oft góður geymslustaður heldur skap- ar fallega skipulagður gluggi skemmtilega stemningu í eldhús- inu. - kka Glugginn minn góði Bílskúrinn – Orkunotkun Um 90% Íslendinga eru þeirrar gæfu aðnjótandi að þurfa ekki að nota jarðefnaeldsneyti til húshitunar né rafmagnsfram- leiðslu. Samt er losun gróður- húsalofttegunda lítið minni á Íslandi en erlendis og orkunotk- un á mann ein sú mesta í Evr- ópu. Stafar það fyrst og fremst af stórum fiskiskipaflota og stóriðju. Að rafmagn á Íslandi sé að mestu leyti frá vatnsafls- virkjunum þýðir ekki að við getum leyft okkur að nota raf- magn eins og við viljum. Í fyrsta lagi kostar rafmagn, í öðru lag valda vatnsaflsvirkj- anir vissum umhverfisspjöllum og í þriðja lagi gætu Íslending- ar flutt út meira rafmagn en þeir gera í dag, eða nýtt til ann- arra þarfa, ef við göngum vel um þessa auðlind sem vatns- aflsvirkjanir eru. Öll stóriðja er óbeinn útflutningur á raf- magni. Rafmagn er til dæmis afurð annara orkugjafa eins og vatnsafls, bensíns eða olíu. Minnki Íslendingar t.d orku- notkun sína þá væri hægt að nota þann sparnað til fram- leiðslu vetnis sem vonandi verður hægt að nota í staðinn fyrir bensín og olíu til sam- gangna innan allt of margra ára. Þetta er einfaldað dæmi til að sýna að allt hangir þetta á sömu spýtu, orkusparnaður á heimili eða vinnustað sparar ekki bara peninga heldur einn- ig umhverfið. Meira um alla hluti í bílskúrnum á: http://www.natturan.is/husid/1253/ GÓÐ RÁÐ fyrir þig og umhverfið Náttúran.is - vefur með umhverfisvitund Kerti í eggi eru frumleg hug- mynd hönnuðarins Michelle Mason. Egg er náttúrulegt form sem æ oftar sést í hönnun innanstokks- muna. Eggstjakarnir eru heillandi í einfaldleika sínum. Þeir eru úr hágæða ensku postulíni og í hverju pari er eitt stórt egg og annað meðalstórt. Stjakarnir eru hann- aðir af keramíklistakonunni Michelle Mason og fékk hún hug- myndina þegar hún sá börn dýfa ristuðu brauði ofan í linsoðið egg. Líkt og eggjarauðan drýpur yfir hvíta skurnina drýpur kertavaxið yfir stjakann og lekur niður eggið. Hægt er að nálgast stjakana á www.bodieandfou.com. - hs Eggstjakarnir eru eftir Michelle Mason. MYND/WWW.BODIEANDFOU.COM Fallegir kertastjakar Eldhúsgluggar hafa oft að geyma gott geymslupláss sem vert er að nýta. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES ELDHÚS EINS OG ÞÚ VILT HAFA ÞAÐ BETRA BAÐ BETRI LAUSNIR - MEIRA ÚRVAL BAÐINNRÉTTINGARNAR byggjast á einingakerfi 30, 40, 60 og 80 cm breiðra eininga. Ótæmandi uppröðunarmöguleikar. Við hönnum og teiknum fyrir þig. Heilsteyptu vaskborðin eru vinsæl! Breiddir: 60, 80, 90, 120,140, 160, 180 cm Litir: Hvít, svört, offwhite, ljósgrá, sandgrá. o.fl . ÞVOTTAHÚS GOTT SKIPULAG SKIPTIR MÁLI Við sníðum innréttinguna að þínum óskum. Þú getur fengið skúffur og útdregin tauborð undir vélarnar, einnig útdreginn óhreinatausskáp, kústaskáp o.m.fl . Satinerað gler Verð og kjör við allra hæfi : 1 Varan greidd í einu lagi við pöntun - 15% afsláttur 2 1/3 við pöntun, rest við afhendingu - 10% afsláttur 3 VAXTALAUST EURO eða VISA lán til 12 mánaða, án útborgunar. 4 Raðgreiðslur til allt að 36 mánaða, afsláttur 10% FATASKÁPAR EFTIR MÁLI - SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÓSKUM FATASKÁPAR MEÐ HEFÐBUNDNUM HURÐUM byggjast á einingakerfi 40, 50, 60, 80 og 100 cm. eininga, sem er raðað saman að vild. Við hönnum og teiknum fyrir þig. RENNIHURÐASKÁPAR Afgreiddir eftir máli, sniðnir að þínum óskum. Hurðirnar eru afgreiddar eftir máli, hæð allt að 275 cm, breidd 40-150 cm. Í boði eru 3 rammalitir (hvítur, silfur eða svartur) og 40 panilgerðir (plast- eða spónlagðar, gler, speglar o.fl .). Að innan er val um 6 liti og boðið er upp á mikið úrval af skúffum, körfum, o.m.fl . Pisa hvítt háglans Askur Facet PISA höldulaust hvítt háglans Val um 30 hurðagerðir: Hvítar, svartar, gular, eik, askur, birki, hnota. Komdu með málin og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð. Allt á sama stað: Innréttingar og raftæki. Trésmíðaverkstæði, raf- tækjaviðgerðarverkstæði. Samsetning, uppsetning. MARKMIÐ OKKAR ER AÐ VEITA ÚRVALSÞJÓNUSTU www.nettoline.dk Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500Mán. - föst.kl. 10-18 Birki Duo 25% afsláttur af ELBA og Snaigé raftækjum þegar þau eru keypt með innréttingu Askur Soft ELDAVÉLAR OFNAR HELLUBORÐ VIFTUR & HÁFAR UPPÞVOTTAVÉLAR N Ý KÆ LI SK ÁP AL ÍN A FR Á KÆLISKÁPAR EL B A

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.