Fréttablaðið - 24.07.2008, Síða 36

Fréttablaðið - 24.07.2008, Síða 36
● fréttablaðið ● útivist og ferðalög 24. JÚLÍ 2008 FIMMTUDAGUR4 Jóhanna Benediktsdóttir ráð- leggur fólki að hafa ferskt, gott og hollt nesti með í göngur og önnur ferðalög. Útivistarunnandinn Jóhanna Bene- diktsdóttir hefur mikinn áhuga á stangveiði, fjallgöngum og holl- um mat. Hún telur nauðsynlegt að hafa alltaf gott nesti meðferð- is, þar sem það sé undirstaðan að góðu úthaldi. „Í allri útivist skipt- ir úthaldið miklu máli og þar leik- ur matur stórt hlutverk. Hollt og gott nesti veitir okkur aukna orku. Súkkulaðið gefur okkur aðeins skjótfengna orku en hollur matur varanlega orku,“ útskýrir hún. „Ég er með ákveðið óþol þannig að ég borða bara lífrænar og ferskar afurðir sem ég fæ í Fjarðarkaup- um. Þar fæ ég einnig kjötáleggið og harðfiskinn. Þetta breytta mat- aræði hefur meðal annars hjálpað mér að losna við mígreni,“ segir Jóhanna, sem var svo væn að deila með lesendum einföldum upp- skriftum að ljúffengum samlokum sem hægt er að henda í bakpokann áður en lagt er af stað. - stp Hollar og góðar samlokur Brauðin eru öll frá Grímsbæ. TILLAGA 1 lífrænt hvannarbrauð salatblanda frá Lambhaga spægipylsa frá Kjarnafæði avókadó, niðursneitt TILLAGA 2 lífrænt hvannar- brauð lúxus humm- us frá Yndis- auka ramíro-paprika (sæt á bragðið) ristuð fræ (graskers-, sólblóma- og sesamfræ) Hollt og gott nesti nauðsynlegt í göngur Jóhanna, sem hefur unnið mikið með Útivist, mælir með snakki í göngur. Til dæmis blönduðum hnetum og þurrk- uðum apríkósum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Jóhanna tekur lífræna ávaxtasafa alltaf með í göngur, sem hún segir veita sér aukna orku. Hún segir lífrænt súkkulaði með appelsínu- bragði ekki síður gott. TILLAGA 3 lífrænt fjölkornabrauð íslensk gúrka salatblanda frá Lambhaga avókadó ramíro-paprika (sæt á bragðið) TILLAGA 4 lífrænt fjölkornabrauð möndlumauk (lífrænt) skógarberjasulta (lífræn) Guðrún E. Gunnarsdóttir, formaður Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands, veit hvers konar matvæli er gott að hafa með í ferðalög og hvernig á að geyma þau. Hún bendir á að suma kælivöru þurfi að geyma við 0 til 4°C ef koma á í veg fyrir vöxt óæski- legra örvera. „Gott ráð er að kaupa frosinn mat og leyfa honum að þiðna í kæliboxinu, ásamt því að nota kælikubba svo maturinn haldist lengur kald- ur.“ Hún segir líka mikilvægt að láta sólina hvorki skína á matinn né kæliboxið. Best sé að geyma það neðst í bílnum eða breiða yfir það. „Mjólk er líka fljót að skemmast ef hún hitnar. G-mjólkin er hins vegar góður kostur sem og sýrðar mjólkur- vörur, því þær eru ekki eins viðkvæmar fyrir hita- stigssveiflum. Brauð er hins vegar ekki kælivara og geymist vel við stofuhita. Sumt grænmeti eins og tómatar, gúrkur og paprika geymist líka ágæt- lega þótt hitastig hækki aðeins. Hins vegar þarf að passa niðurskorna grænmetið, sem er mjög við- kvæmt fyrir hnjaski og geymist ekki lengi ef hitastig hækkar.“ Þá segir hún ost heppilegra álegg en majónes-salat í lengri göng- ur. „Ostur þroskast hraðar við hærra hitastig og verð- ur bragðmeiri. Þurrmatur hent- ar líka í löng ferða- lög þar sem kælingu vantar.“ - kka Ferskur matur í ferðalagið Guðrún veit hvernig geyma á matvæli á ferðalögum og halda þeim ferskum. FRETTABLAÐIÐ/AUÐUNN ● POPPAÐ Á PÖNNUNNI Popp er tilvalið nasl bæði heima og að heiman. Lítið mál er að poppa í útilegum þar sem hægt er að verða sér úti um popp- korns pönnu í Skátabúðinni hjá Skátamiðstöðinni en hún er notuð til að poppa yfir opnum eldi. Það er því engin ástæða til að neita sér um brak- andi poppkorn á ferðalaginu sem er auk þess hollur og góður aukabiti. Í íslenska sumrinu geta kvöldin verið köld í útilegunni. Þá er gott að ylja sér með brennheitum súkkulaðisopa úr brúsa. Ef nætur- hrollurinn ætlar að teygja sig fram eftir morgni ætti heitt súkku- laði kryddað með chili-pipar að hætti Asteka að fá blóðið á hreyf- ingu. Chili-kryddað súkkulaði uppskrift fyrir tvo 1 og 2/3 bollar mjólk ½ vanillustöng, klofin eftir endilöngu 1 rauður chili-pipar klofinn og fræ- hreinsaður 1 kanilstöng 45 g hreint súkkulaði Setjið vanillustöng, kanilstöng og chili- pipar út í mjólk og hitið í potti á lágum hita. Brytjið niður súkkulaði og bræð- ið í mjólk. Slökkvið undir og látið standa í nokkrar mínútur. Sigtið svo kryddið frá og hellið á brúsa. Þeir sem ekki vilja eldsterkt súkkulaði geta minnkað magn ið af chili-piparnum. Chili-kryddað súkkulaði

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.