Fréttablaðið - 24.07.2008, Page 63
FIMMTUDAGUR 24. júlí 2008 43
Tónleikar Buena Vista Social Club,
sem eru í Vodafonehöllinni að
Hlíðarenda í kvöld, hefjast ekki
klukkan átta eins og auglýst hefur
verið, heldur klukkan níu. Þá
verður húsið ekki opnað klukkan
sjö, heldur átta. Þetta kemur til
vegna breytinga á ferðatilhögun
hópsins. Buena Vista Social Club
er landanum kunnugur í gegnum
heimildarmynd með sama nafni.
Einnig spilaði hljómsveitin hér við
góðan orðstír árið 2001. Þau hafa
verið á tónleikaferðalagi um
Evrópu síðustu tvo mánuði en
enda ferðalagið hér og verður því
líklega kátt í höllinni. Tónleikarnir
eru standandi að mestu, en
stúkurnar bjóðast þeim sem vilja
hvíla sig á sveiflunni. Enn eru til
miðar á tónleikana og kostar 4.900
krónur inn. - kbs
Breyttur tími
BREYTTU FERÐATILHÖGUN Buena Vista
seinkar í kvöld.
DLX ATX (Deluxe Attacks), Æla
og Swords of Chaos spila á Organ
í kvöld. DLX ATX hafa vakið
athygli nýverið en bandið er
tvíeyki skipað bassaleikara sem
syngur, hinum írska Greg
Barrett, og trommuleikara, Pétri
Má Guðmundssyni, sem leikur
einnig með Bacon og Skátum. Ælu
þarf vart að kynna fyrir pönkur-
um landsins og Swords of Chaos
ekki fyrir harðkjarnanum. Á
tónleikunum má því finna góða
blöndu af rokki. Greg segir
böndin eiga það sameiginlegt að
„hafa áhuga á hvað geti komið úr
hefðbundnum hljóðfærum með
nýrri nálgun“. Hann bætir við að
allir sem ekki fengu miða á
Damien Rice geti séð annan Íra
skammt frá. „Og kannski verðum
við báðir að syngja fyrir bjór á
Celtic Cross eftir tónleikana.“
Húsið opnar klukkan níu og
kostar 1000 krónur inn. - kbs
Rokkblanda
Á UPPLEIÐ DLX ATX skapa sér nafn.
MYND/GREG
Orðrómur hefur verið á kreiki um að nokkrir
dansarar muni heimsækja verslunina Liborius
einhvern tímann í dag og halda þar danssýningu.
Dansararnir munu mæta og yfirtaka verslunina
á einhverjum tímapunkti og halda þar danssýn-
ingu innan um viðskiptavini og tískuklæðnað.
Jóhann Meunier, eigandi verslunarinnar, segist
hafa heyrt af fyrirhugaðri yfirtöku, „Ég veit að ég
gæti átt von á dönsurum hingað inn en veit ekki
hvenær eða hverjir þeir eru. Mér finnst þó
hugmyndin mjög sniðug og vona að það verði af
þessu.“
Þeir sem eiga leið um Laugaveginn í dag ættu
því að vera með augun opin fyrir hinum leyndar-
dómsfullu dönsurum en á meðal þeirra ku vera
margverðlaunaður breikdansari. - sm
Leynilegir dansarar í Liborius
DANSARAR Í LIBORIUS Jóhann Meunier segist ekki
vita hvenær von er á dönsurunum.
Matt Groening hefur staðfest að
það verði gerð önnur mynd um
helsta sköpunarverk hans,
Simpsons-fjölskylduna alræmdu.
Fyrsta myndin, sem hét því
frumlega nafni The Simpsons
Movie, hlaut afar góðar viðtökur á
síðasta ári og rakaði inn 500
milljónum dollara í miðasölu.
Groening hefur þó ekki gefið út
neinar yfirlýsingar um hvenær
framhaldsins verði að vænta.
„Það mun gerast á einhverjum
tímapunkti, en ég hef ekki
hugmynd um hvenær. Fyrsta
myndin tók okkur fjögur ár –
aðallega af því að okkur líkar ekki
að vinna neitt meira en við gerum
nú þegar. Við munum koma að því,
ég er viss um það,“ segir Groening.
Önnur mynd
væntanleg
HÓMER AFTUR Á TJALDIÐ Skapari Simp-
sons-fjölskyldunnar segist stefna að því
að gera aðra mynd um ævintýri hennar,
en vill engu lofa um hvenær það gæti
orðið.
Á meðan Pete Doherty var á
tónleikaferðalagi um Spán var
brotist inn á heimili hans og
höfðu þjófarnir á brott með sér
gítar og þrjú málverka hans sem
hann málaði með blóði. Doherty
sjálfur var fangelsaður í sex
mánuði árið 2003 fyrir að hafa
brotist inn til Carls Barat, félaga
hans úr hljómsveitinni The
Libertines. Það er því spurning
hvort þjófnaðurinn heima hjá
Doherty sé karma, eða einfald-
lega verk eiturlyfjasala að rukka
gamla skuld.
Blóðmálverk-
um Pete Do-
herty rænt
KRINGLUNNI // SMÁRALIND // KEFLAVÍK
ÚTSALAN HEFST Í D
AG
BOLIR FRÁ 1.500,-
SKYRTUR FRÁ 2.500
,-
PEYSUR FRÁ 3.000,
-
BUXUR FRÁ 4.000,-
JAKKAR FRÁ 4.000,-
SKÓR FRÁ 2.000,-