Fréttablaðið - 25.07.2008, Side 6
6 25. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Grill og
ostur
– ljúffengur
kostur!
Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is
DR. GUNNI neytendur@frettabladid.is
Hallveig Rúnarsdóttir skrifar: Ég var að koma
frá Vestfjörðum og fullyrði að mýtan um að allt
sé dýrara úti á landi sé dauð. Borðuðum til
dæmis á flottasta fiskistað landsins, Tjöruhús-
inu á Ísafirði, þegar ég átti afmæli. Fengum þar
tvíréttað með tveimur glösum af víni á mann,
gosi fyrir krakkann og afmæliskökusneið og
kaffi á eftir fyrir 7.400 krónur! Rétt er að taka
fram að forrétturinn var útibú frá plokkfiski
barnsins, hún gat fengið alla þá ábót sem hún
vildi, seinni vínglösin voru gefin þar eð við
vorum búin að bíða í heilan hálftíma eftir
matnum og afmælistertan var frí. Það
besta var þó að maturinn var ekkert
annað en ÓLÝSANLEGA góður! Fyrir
sama rétta- og drykkjafjölda á einhverjum lásí
millidýrum pastastað í Reykjavík hefðum við
aldrei sloppið undir 15 þúsund kallinum. Til
samanburðar má taka „fisk dagsins“ á Thor-
valdsen, sem hefur á tveimur árum farið úr 1.290
krónum með súpunni innifaldri í 2.190 krónur án
súpu. Fiskurinn er svo yfirleitt einstaklega
naumt skammtaður þar en fiskipönnurnar á
Tjöruhúsinu voru troðfullar..
Hallveig heldur áfram og nefnir tvö önnur
dæmi af sanngjörnu verðlagi á Ísafirði: Risa
paninibrauð með fullt af kjúklingi, beikoni og
fíneríi með frönskum á Langa Manga kostaði
850 kall. Í Gamla bakaríinu keypti ég svo brauð
á 350 krónur, en sambærilegt brauð hjá Bakara-
meistaranum er á 475 krónur.
Óskar Pétur Einarsson er með dæmi frá
Stykkishólmi: Á veitingahúsinu Fimm fiskar var
fyrir skömmu hægt að fá súpu, splúnkunýjan
fisk og kaffi á 1.200 kall á mann. Toppstaður!
Það er ekki alls kostar rétt að allt sé dýrara á landsbyggðinni
Sjónum beint að sanngjörnu verði og þjónstu
HRÁEFNI Á LEIÐ Á DISKA Ódýrt fiskmeti má fá í Tjöru-
húsinu á Ísafirði og hjá Fimm fiskum á Stykkishólmi.
Þykir þér eðlilegt að forseti
Íslands verði viðstaddur Ólymp-
íuleikana í Kína?
Já 54,2%
Nei 45,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér að Sigurður G. Guð-
jónsson ætti að mega verja Jón
Ólafsson?
Segðu skoðun þína á visir.is
Ók undir áhrifum fíkniefna
Einn var tekinn fyrir fíkniefnaakstur í
gærmorgun í umdæmi lögreglunnar
á Suðurnesjum. Hann reyndist hafa
neytt amfetamíns, metamfetamíns og
kókaíns.
Tíu teknir fyrir hraðakstur
Tíu voru teknir fyrir hraðakstur í
Borgarnesi í gær. Hraðast mældist bíll
á um 120 kílómetra hraða á klukku-
stund. Þrír voru teknir á Akureryri
Sá sem hraðast ók mældist á 133
kílómetra hraða á klukkustund.
LÖGREGLUFRÉTTIR
McCain hittir Dalai Lama
John McCain, forsetaframbjóðandi
Repúblikanaflokksins í Bandaríkjun-
um, hittir Dalai Lama, andlegan leið-
toga Tíbeta, í Aspen í Colorado-ríki í
dag. Dalai Lama heldur þar fyrirlestur
um málefni Tíbeta. Tíbetar hafa lengi
leitað eftir aukinni sjálfsstjórn frá
Kínverjum.
BANDARÍKIN
FLUG Fyrsta ágúst næstkomandi
verður tekið í notkun nýtt
rafrænt forskráningarkerfi á
netinu fyrir þá sem ferðast til
Bandaríkjanna. Kerfinu er ætlað
að auka ferðaöryggi, og einnig að
minnka umstangið við flugið.
Þeir sem ferðast hafa til
Bandaríkjanna kannast við grænu
eyðublöðin sem fylla þarf út í
flugvélinni á leiðinni. Þau munu
heyra sögunni til 12. janúar á
næsta ári, þegar ferðalöngum
verður gert skylt að skrá sig í
gegnum nýja kerfið. Endanleg
ákvörðun um hvort viðkomandi
komist inn í landið eður ei verður
þó sem fyrr tekin af viðeigandi
aðilum á áfangastað.
Nánari upplýsingar er að finna
á vefslóðinni www.cbp.gov.
- kg
Ferðalög til Bandaríkjanna:
Nýtt skráning-
ar kerfi á netinu
KJÖRKASSINN
REYKJAVÍK Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segir
núverandi meirihluta hafa unnið kappsamlegar að
öryggismálum borgarinnar en nokkurn annan.
Hann segist funda einu sinni til tvisvar í viku
með fjölmörgum aðilum um þessi mál. Auk þess
hafi hann haft frumkvæði að fundum með dóms-
málaráðherra og óskað eftir að ríkisvaldið komi til
móts við borgaryfirvöld sem hafi sýnt mikið
frumkvæði í þessum málum; bæði með aðgerðum,
tækjakaupum og því að leggja til mannafla.
„Dómsmálaráðherra hefur sagst vilja starfa með
okkur til að efla löggæsluna í borginni og verða við
kröfum okkar um aukna og sýnilegri löggæslu,“
segir Ólafur. „Hann ber hins vegar fyrir sig skorti á
fjárveitingum til löggæslumála og skilningsleysi
margra stjórnmálamanna á nauðsyn þess að
forgangsraða öryggis- og löggæslumálum í
samræmi við þýðingu þeirra fyrir almenning.“
Ólafur segir að auk beins þrýstings á dómsmála-
og lögregluyfirvöld verði að þrýsta á fjárveitinga-
valdið að gegna ábyrgð sinni í þessum málum.
Hann telur til bóta að færa löggæslumál til
sveitarfélaga.
„Ég held að það væri almennt til bóta að færa
þessi þýðingarmiklu mál nær vettvangi – frá ríki til
sveitarfélaga. Ég tel að verkaskiptingin og sam-
vinnan um þessi mál þurfi að vera í stöðugri
endurskoðun, en nærtækasta verkefnið núna er að
tryggja eðlileg framlög til öryggismála.“ - kóp
Borgarstjóri segir dómsmálaráðherra bera skorti á fjárveitingum fyrir sig:
Þörf er á sýnilegri löggæslu
BORGARSTJÓRI Vill færa löggæsluna til sveitarfélaganna.
Segir borgaryfirvöld hafa unnið gott starf í löggæslumálum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGGÆSLUMÁL Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, segir lítið hafa
breyst í löggæslumálum síðasta
áratuginn. Hún telur að flytja
eigi nærlöggæslu, hverfagæsl-
una, til sveitarfélaganna. Reykja-
víkurlistinn
lagði það til
árið 1995.
„Það er enn
mín bjargfasta
trú að ákveðnir
þættir löggæsl-
unnar eigi
heima hjá sveit-
arfélögunum.
Nærlöggæslan
á mun betur
heima þar,“
segir Steinunn
Valdís, en árétt-
ar að það eigi
ekki við um lítil
sveitarfélög.
Hún segir
skipulagslega
ekkert því til
fyrirstöðu og
vísar í að í dag
sé verkefnum á
sviði löggæslu skipt á milli lög-
reglustjóraembætta og Ríkislög-
reglustjóra.
Steinunn segir að skortur sé á
sýnilegri löggæslu og auknar
fjárveitingar þurfi til lögregl-
unnar. „Stefán Eiríksson, lög-
reglustjóri höfuðborgarsvæðis-
ins, kom á fund fjárlaganefndar í
vetur og lýsti yfir miklum áhyggj-
um af stöðu mála. Ég lít svo á að
þetta hafi verið ákall til Alþingis
um aðstoð við að auka fjárveit-
ingar til lögreglunnar,“ segir
Steinunn.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra er ósammála Steinunni og
telur að ekki eigi að færa nærlög-
gæsluna til sveitarfélaganna.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá
í gær skilaði viðræðuhópur um
löggæslu í Reykjavík frá sér
skýrslu í mars 2006. Björn segist
sammála ýmsu í þeirri skýrslu og
að árangur hópsins megi sjá í
störfum og stefnumótun Stefáns
Eiríkssonar sem lögreglustjóra,
en hann leiddi hópinn.
„Ég er sammála þeirri megin-
niðurstöðu að þessi verkefni eru
hvorki alfarið á hendi lögreglu né
sveitarfélagsins, heldur byggjast
á því, að þeir aðilar, sem koma að
því að tryggja borgurunum
öruggt umhverfi, stilli saman
strengi sína,“ segir Björn í svari
við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Spurður hvort úrbóta sé þörf í
löggæslu í miðbænum segir
Björn: „Reynslan nú og síðustu
ár sýnir, að meira þarf til ef
menn vilja bæta ástandið í mið-
borginni en bæta úr löggæslu –
sem hefur þegar verið gert. Þeir
menn setja kíkinn fyrir blinda
augað, sem sjá það eitt til úrbóta
fyrir miðborgina að auka lög-
gæslu.“
Björn hefur ekkert nema gott að
segja um samstarf Reykjavíkur-
borgar og ráðuneytisins um lög-
gæslumál í sinni ráðherratíð.
kolbeinn@frettabladid.is
Vill hluta lögreglu
til sveitarfélaganna
Steinnunn Valdís Óskarsdóttir vill flytja hverfalöggæslu til sveitarfélaga. Dóms-
málaráðherra er ósammála. Segir aukna löggæslu eina og sér ekki lausnina.
BJÖRN BJARNASON
STEINUNN VALDÍS
ÓSKARSDÓTTIR
FRÁ RÍKINU Steinunn Valdís Óskarsdóttir vill flytja hluta löggæslu til sveitarfélaganna.
Dómsmálaráðherra er ósammála. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON