Fréttablaðið - 25.07.2008, Síða 26
fréttir
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjórn Sunna Dís Másdóttir
sunna@frettabladid.is
Alma Guðmundsdóttir
alma@frettabladid.is
Blaðamenn Sara McMahon, Kolbrún
Björt Sigfúsdóttir, Sólmundur Hólm
Sólmundarson
Forsíðumynd Anton Brink
Útlitshönnun Arnór Bogason og
Kristín Agnarsdóttir
Auglýsingar Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462
Föstudagur Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
FÖSTUDAGUR
„Þetta var bara eitt það skemmti-
legasta sem ég hef upplifað á æv-
inni,“ segir Skjöldur Eyfjörð sem
hélt upp á þrítugsafmælið sitt síð-
astliðinn laugardag á staðnum 7-
9-13.
„Allur fókusinn fór í að
skemmta gestunum og það voru
standandi skemmtiatriði frá níu
til miðnættis,“ bætir hann við,
en meðal þeirra sem komu fram
voru Haffi Haff, Alan úr X-
faktor-keppninni og Skjöldur tók
sjálfur lagið. „Magnús Jóhann,
unnusti minn, var víst búinn að
vera að læra á gítar í laumi til að
koma mér á óvart, en hann ákvað
hins vegar bara að syngja fyrir
mig þetta kvöld og tók lagið Ev-
erything með Michael Bublé sem
er náttúrlega mjög rómantískt.
Pabbi söng svo fyrir mig lag sem
var samið fyrir hann út af afmæl-
inu,“ útskýrir Skjöldur.
„Fyrir utan skemmtiatriðin
voru svo sýndar alls konar gaml-
ar myndbandsupptökur af mér,
þar sem ég var meðal annars að
taka þátt í dragkeppnum og var
sautján ára að dansa með Páli
Óskari,“ segir Skjöldur að lokum,
ánægður með vel heppnaða af-
mælisveislu.
SKJÖLDUR HÉLT UPP Á ÞRÍTUGSAFMÆLIÐ
Pabbi söng frumsamið lag
Leyndarmálið felst í lögmáli aðdráttaraflsins.
Allt sem gerist í lífinu löðum við að okkur.
Leyndarmálið er falið innra með hverjum og
einum og möguleikarnir eru endalausir.
Skjöldur Eyfjörð skemmti sér kon-
unglega í góðra vina hópi þegar
hann hélt þrítugsafmælið sitt síðast-
liðinn laugardag.
Þ
að má segja að þetta sé um 50 prósent
nýting á tíu árum,“ segir Hreimur Örn
Heimisson, söngvari og höfundur þjóð-
hátíðarlagsins Brim og boðaföll, en þetta
er í fjórða sinn sem hann bæði flytur og semur
lag fyrir þjóðhátíð í Eyjum sem hann hefur
sótt nánast árlega síðastliðin tíu ár.
„Það er að sjálfsögðu hljómsveitin mín,
Land og synir, sem flytur lagið en við höfum
lítið verið að koma fram að undanförnu. Við
gáfum reyndar út plötuna Lífið er yndislegt
fyrir síðustu jól, sem var upptaka af tónleikum
okkar í Óperunni frá því í haust, en þá vorum
við að fagna tíu ára afmæli hljómsveitarinn-
ar,“ útskýrir Hreimur. „Við ætlum að spýta
í lófana fram að jólum og anna mikilli eftir-
spurn en í haust er von á nýju lagi frá okkur,“
bætir hann við. Spurður um frekari plötuút-
gáfu fyrir jólin vill hann ekkert gefa upp. „Ég
vil ekkert segja að svo stöddu um þetta nýja
efni en okkur líður eins og við séum mjög gjaf-
mildir,“ segir Hreimur sposkur á svip.
Í lok september á Hreimur von á sínu öðru
barni með eiginkonu sinni, Þorbjörgu Sif Þor-
steinsdóttur, en saman eiga þau dótturina
Emblu Margréti, þriggja ára.
„Það hefur allt gengið eins og í sögu, en
það mæðir nú minnst á mér enn sem komið
er,“ segir Hreimur sem hefur í mörgu að snú-
ast þessa dagana því auk þess að syngja með
Landi og sonum spilar hann reglulega með
Vigni Snæ Vigfússyni og er verslunarstjóri
fyrirtækisins Prodomo sem sérhæfir sig í
heildarlausnum á hljóð-, mynd- og ljósabúnaði.
„Það er vægast sagt nóg að gera, því ef
maður er ekki að spila opinberlega er maður
alltaf að vinna í tónlistinni á bakvið tjöldin.
Svo reynir maður öðru hverju að ná einum
golfhring þegar tími gefst til, svona áður en
barnið kemur í heiminn,“ segir Hreimur að
lokum, en þjóðhátíðarlagið Brim og boðaföll
má nálgast frítt á vefsíðunni pepsi.is.
alma@frettabladid.is
Hreimur Örn Heimisson er með mörg járn í eldinum
Á von á öðru barni í haust
„Mér datt fyrst í hug gamla Holly-
wood-leikkonan Joan Craw-
ford,“ segir rithöfundurinn og
skáldið Gerður Kristný Guð-
jónsdóttir, en glöggir lesendur
Bakþanka Gerðar Kristnýjar
síðastliðinn laugardag hafa ef
til vill rekið augun í skemmti-
lega uppgötvun hennar eftir
heimsókn á Vesturfarasetr-
ið á Hofsósi. Þar komst hún
að því að skyldmenni henn-
ar sem héldu til Vesturheims
frá Króksfjarðarnesi tóku
upp nafnið Crawford.
„Ég komst svo að því að
leikkonan hafði tekið upp
Crawford-nafnið, þar sem
hún hét upphaflega Luc-
ille Fay LeSueur. Það er
því ekkert skylt með okkur
og satt best að segja er ég
fegin, því þrátt fyrir að vera
Óskarsverðlaunahafi var
hún einnig þekkt fyrir að vera
slæm móðir,“ útskýrir Gerður
Kristný.
Spurð um hugsanlegan
skyldleika með henni og of-
urfyrirsætunni Cindy Craw-
ford slær Gerður á létta
strengi. „Cindy er náttúrlega
fræg fyrir fæðingarblett fyrir
ofan annað munnvikið og ég
veit að systir mín hefur látið
fjarlægja nokkra fæðingar-
bletti. Hvað þann skyldleika
varðar vonar maður bara
það besta,“ segir Gerður og
hlær.
Gerður Kristný „Crawford“
Gerður Kristný Guðjóns-
dóttir komst nýlega að
því að skyldmenni hennar
sem héldu til Vesturheims
á sínum tíma frá Króks-
fjarðarnesi tóku upp nafnið
Crawford. Cindy
Crawford
SYSTKININ SAMSTIGA Í
BARNEIGNUM
Systkinin Birgir Ísleifur Gunnarsson,
söngvari Motion Boys, og Unnur
Elísabet Gunnarsdóttir dansari eiga
bæði von á börnum þessa dagana.
Unnur og sambýlismaður henn-
ar, leikarinn Gunnar Hansson, eiga
von á sínu fyrsta barni saman nú
einhvern næstu daga, en enn eru
nokkrar vikur í að barn Birgis Ísleifs
komi í heiminn. Það verður annað
barn Bigga og konu hans, Heiðu
Kristínar Helgadóttur, sem eiga fyrir
soninn Benedikt. Birgir Ísleifur hefur
annars í mörg horn að líta
þessa dagana, því hann
er nú að leggja loka-
hönd á fyrstu plötu
Motion Boys, sem
beðið hefur verið með
mikilli eftirvænt-
ingu.
Hreimur er höfundur þjóðhátíðarlagsins Brim og boðaföll, en hann á von á sínu öðru barni í lok september.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Ég er að fara á Bræðsluna á Borgarfirði eystri,
með vinum og frænkum. Ég er mjög spennt.
Ég hef ekki farið áður en það er gaman
að fara í útilegu, ég hef ekkert farið í
sumar. Það er 17-20 stiga hiti sem
bíður eftir mér.“
Anna Svava Knútsdóttir, leikkona
með meiru.
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM
HELGINA?
Anna Svava Knútsdóttir leikkona
2 • FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008