Fréttablaðið - 16.08.2008, Síða 32
FORD í Evrópu setti sölumet á fyrri árshelmingi
þessa árs með 1.003.700 bíla selda á 51 markaði.
Salan jókst um nærri tvö prósent á tímabilinu.
Alþjóðarallið fer fram í Reykja-
vík 21. til 23. ágúst næstkomandi.
Mótið er með stærra móti í ár en
31 bíll er skráður til keppni, þar
af eru sjö Bretar sem flestir eru
á vegum breska hersins. „Sex af
sjö bílum eru frá hernum en
mótið er hluti af innanhúsmóti
breska hersins,“ segir Tryggvi
Magnús Þórðarson, keppnisstjóri
alþjóðarallsins, og bætir við að
auðvitað séu þeir allir á Land
Rover.
Sjöundi breski keppnisbíllinn
er svo bíll feðganna Wug Utting
og Max Utting, en þeir eru þekkt-
ir innan rallheimsins fyrir að
gefa allt í keppni, oft með áhuga-
verðum árangri. „Þeir eiga það
til að taka sénsa og keyra ansi
stíft,“ segir Tryggvi. „Ef farið er
inn á netið, á youtube.com til
dæmis, er auðvelt að finna vídeó
með þeim að skauta á vatni og
enda úti í skurði eða keyra á. Þeir
gera nóg af því.“
Alþjóðarallið hefur meira vægi
í heildarstigakeppni Íslands-
meistaramótsins en aðrar keppn-
ir, eða sem nemur 1,25. Keppnin
um meistaratitilinn í ár er gríðar-
lega jöfn og hörð og eiga þrettán
áhafnir raunhæfan möguleika á
titlinum. Ástæðan fyrir því að
keppnin er jafnari nú en oft áður
er að sögn Guðmundar Höskulds-
sonar rallökumanns reglubreyt-
ing sem tók gildi fyrir um tveim-
ur árum. „Nú er búið að banna
ofurbílana svokölluðu, A-grúppu
bílana, en það hefur gert bílana
jafnari og um leið ódýrari,“ segir
Guðmundur. „Nú er keppt á N-
grúppu bílum sem eru mun ódýr-
ari í rekstri en hægt er að reka
kannski fjóra til fimm slíka bíla
fyrir sömu fjárhæð og fer í að
reka einn A-grúppu bíl.“
Keppni hefst sem fyrr segir
21. ágúst klukkan 17 en fyrsta
sérleið er ræst frá Perlunni. Nán-
ari upplýsingar um alþjóðarallið
er að finna á www.rallyreykja-
vik.net.
tryggvi@frettabladid.is
Keppnin aldrei jafnari
Alþjóðarallið í Reykjavík fer fram í vikunni. Keppnin hefur aldrei verið jafnari á Íslandsmeistaramótinu.
Von er á góðum erlendum gestum á rallið.
Alþjóðarallið er gríðarlega erfitt. Farnir
eru 1.056 km á tveimur og hálfum degi,
þar af 352 km á sérleiðum.
Guðmundur Höskuldsson hefur séð um að taka saman stigin fyrir Íslandsmeistara-
mótið í ár. Keppnin hefur aldrei verið opnari en nú. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SAVAGE Torfærukeppnin,
keppni fjarstýrðra bíla verður haldin
sunnudaginn 17. ágúst á athafnarsvæði
Gæðamoldar í Grafarvogi. Skráning kepp-
enda er á staðnum. Frekari upplýsingar
eru í Tómstundahúsinu, sími 587 0600
Meirapróf
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
Næsta námskeið byrjar 5. marsNæsta ná skeið byrjar 20. ágúst