Fréttablaðið - 16.08.2008, Page 40

Fréttablaðið - 16.08.2008, Page 40
● heimili&hönnun Ískalt íslenskt vatn - hvenær sem er GE kæliskáparnir eru öflugir, endingargóðir og glæsilega innréttaðir Kr. 239.000 stgr. Hvernig væri að geyma góða hluti í hundskjafti? Hefur þig alltaf dreymt um að eiga hund sem sækir blaðið fyrir þig á morgnana? Þessi skemmtilega hilla frá mexíkóska hönnunarhópn- um NEL geltir reyndar ekki og hreyfir sig ekki úr stað en hún lítur út eins og hundur og getur geymt hvort sem er nýjasta dagblaðið eða bókina sem þú ert að lesa í kjaftinum. Hillan er hluti af línu sem kall- ast Pack of dogs og í boði eru nokkrar mis- munandi mublur sem minna á hunda í alls kyns stellingum. Þær heita eftir þekktum mexíkóskum glímuköpp- um og nýtast sem hillur, blaðagrindur, kaffi- borð eða stólar. Allar nánari upplýsingar má nálgast á slóðinni http://www.nel.com. mx/nel/splash.htm Anna og Ásgeir höfðu ætlað að minnka við sig og fengu hug- myndina þegar dóttir þeirra, sem rekur hárgreiðslustofu í hús- inu og átti rýmið, auglýsti það til sölu. „Hér hafa verið tannlækna- stofur og lögfræðiskrifstofa og síðast var hér líkamsræktarstöð áður en við fluttum inn,“ útskýrir Anna en húsnæðið var algerlega opið rými fyrir utan tvær burðar- súlur. Anna og Ásgeir hönnuðu sjálf innra skipulag íbúðarinnar kring- um súlurnar og gluggana en íbúð- in er um 147 fermetrar. „Ég teikn- aði þetta bara upp í excel-skjali og málsetti og þannig fór það til smiða og rafvirkja,“ útskýrir Anna. „Ég hannaði allar innrétt- ingar sjálf og fékk trésmiði hér á staðnum til að smíða fyrir mig.“ Íbúðin var hólfuð niður með gifsveggjum en Anna segir þau hafa lagt áherslu á flæði í rýminu, að það yrði praktískt og þægilegt í þrifum. Íbúðin er því öll flísa- lögð og eldhús, borðstofa og stofa eru eitt sameiginlegt rými. „Ég er komin á sextugsaldurinn og þetta er trúlega síðasta íbúðin sem ég bý í áður en ég fer á elliheimilið,“ segir Anna hlæjandi. Innbúið keyptu þau nýtt og tóku í það einn eftirmiðdag í hús- gagnaversluninni Öndvegi í Síðu- múla. Framkvæmdir við íbúðina gengu líka hratt fyrir sig en byrj- að var að rífa út úr húsinu í mars 2007 og þremur mánuðum síðar voru þau flutt inn. „Við vorum búin að selja ofan af okkur svo það var pressa að klára og unnið nótt og dag kringum páskana með góðum mönnum. Við notuðum svo kosningadaginn 12. maí til að flytja inn og hér var haldið inn- flutningspartí á kosninganótt,“ segir Anna, sem er hæstánægð með íbúðina. Hún segir sambúðina við ná- grannana ganga vel en það eru skrifstofur og hárgreiðslustofa. Þau eru því ein í húsinu á kvöldin. „Okkur líður mjög vel hérna og hér er gott næði. Svefnherbergin liggja út í portið svo það er ekki einu sinni fuglasöngurinn til að halda fyrir manni vöku á morgn- ana.“ - rat Íbúðin hefur þjónað fjölbreyttu hlutverki ● Hjónin Anna Ragnarsdóttir og Ásgeir Kristjánsson innréttuðu íbúð í iðnaðarhúsnæði á Húsavík. Innréttingar íbúðarinnar voru hannaðar af Önnu sjálfri og smíðaðar á Húsavík. Uppáhaldsstaður Önnu er við eldavélina. Þaðan hefur hún útsýni yfir skrúðgarð og upp í Húsavíkurfjall. Allar innréttingar hann- aði Anna sjálf og lét smíða á Húsavík. MYND/ÖRLYGUR Anna litla Rakel var í pössun hjá ömmu sinni og nöfnu þegar ljósmyndara bar að garði. Eldhúsið, borðstofan og stofan eru eitt sameiginlegt rými. Anna og Ásgeir keyptu sér nýtt innbú einn eftirmiðdaginn, allt á einum stað, en nýttu gömlu búslóðina í sumarbústaðinn. 16. ÁGÚST 2008 LAUGARDAGUR4

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.