Fréttablaðið - 16.08.2008, Side 60
40 16. ágúst 2008 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1941 Winston Churchill, for-
sætisráðherra Breta, hefur
viðkomu í Reykjavík á leið
sinni heim af fundi með
Franklin D. Roosevelt
Bandaríkjaforseta.
1945 Puyi, síðasti kínverski
keisarinn, er handsamað-
ur af Sovétmönnum.
1960 Kýpur fær sjálfstæði frá
Bretlandi.
1962 Ringo Starr tekur við af
Pete Best sem trommari
Bítlanna.
1989 Sólgos veldur truflunum
í örgjörvum á jörðu og
truflar tölvustarfsemi víðs
vegar um heim.
1991 Úrkomumet er sett í
Reykjavík, 18 mm á klst.
Það samsvarar fjórðungi
af heildarúrkomu venju-
legs árs.
Þennan dag, 16. ágúst, árið
1960 setti bandaríski her-
maðurinn Joseph W. Kittinger
II þrjú heimsmet sem standa
enn. Hann stökk þá úr loft-
belgnum Excelsior í 102.800
feta hæð (31.330 metrar) og
setti heimsmet í fallhlífar-
stökki úr mestri hæð. Hann
sveif í frjálsu falli í 4 mínút-
ur og 36 sekúndur sem er
annað met, og hann náði
988 km hraða á klukkustund
(274 metra á sekúndu) en
svo hratt hefur enginn maður
eða kona farið fyrr né síðar,
það er að segja án þess að sitja í flugvél.
Stökkið var þriðja stökk Kittinger en fyrsta
stökkið fór fram í nóvember 1959. Það var úr
mun minni hæð, 76.400
fetum en litlu munaði að
illa færi. Kittinger, sem þola
þurfti G-kraft sem nemur 22
földu þyngdarafli á jörðu niðri,
missti meðvitund en sjálf-
virkur sleppibúnaður fallhlífar
hans bjargaði lífi hans. Þrátt
fyrir áfallið var Kittinger kom-
inn upp í loftbelg og búinn að
stökkva aftur viku síðar. Það
stökk var úr 74.700 fetum og
var vel heppnað í alla staði.
Þess má geta að þriðja
stökkið, þar sem Kittinger setti
öll metin, gekk ekki áfallalaust
fyrir sig. Þrýstibúnaður í hanska Kittinger bilaði
og hægri hönd hans þrútnaði út svo hún varð
tvöföld miðað við þá vinstri.
ÞETTA GERÐIST: 16. ÁGÚST ÁRIÐ 1960
Hraðskreiðasti maður heims
ELVIS PRESLEY LÉST ÞENNAN DAG
ÁRIÐ 1977.
„Ég er ekki kóngurinn.
Jesús Kristur er kóngurinn.
Ég er bara skemmtikraftur.“
Elvis Presley var og er enn í
dag kallaður konungur rokks-
ins. Hann lést af hjartaslagi á
heimili sínu Graceland, aðeins
42 ára að aldri.
Trumbusláttur og söngur mun hljóma
vestast í Vesturbænum í dag þegar
leikskólinn Dvergasteinn við Seljaveg
fagnar tíu ára afmæli sínu. Hátíða-
höldin hefjast með glaðlegri skrúð-
göngu. „Við ætlum að njóta dagsins
saman frá ellefu til hálf tvö og bjóðum
gömlum og nýjum nemendum ásamt
foreldrum og gömlu og nýju starfs-
fólki,“ segir Elín Mjöll Jónasdóttir
forstöðukona, sem hefur leitt farsælt
starf á Dvergasteini allt frá stofnun
hans og haldist vel á fóstrum og öðru
starfsliði. „Fyrstu börnin stigu hér inn
fyrir þröskuldinn 17. ágúst 1998 þegar
skólinn var nýbyggður, en ég var ráðin
áður en komin var hola í jörðina,“ rifj-
ar hún upp og bætir við brosandi: „Við
vorum fimm sem héldum uppá tíu ára
starfsafmæli hér núna um daginn.“
Það er greinileg festa í starfinu á
Dvergasteini. Þjóðsögur og skapandi
list eru lykilverkefni þar enda hefur
Reykjavíkurborg séð ástæðu til að
veita honum hvatningarverðlaun. Elín
Mjöll segir líka árlega haldið upp á af-
mæli hans en nú verði það með hátíð-
legra sniði en fyrr og öllum boðið sem
tengist skólanum. Er það ekki orðinn
gríðarlegur fjöldi?
„Jú, en við byrjuðum með lítinn
tveggja deilda leikskóla og njótum
þess að þekkja öll þessi börn og for-
eldra þeirra af því að megnið af starfs-
fólkinu er búið að vera hér allan tím-
ann. Börnin sem hafa verið hér hafa
tengst okkur vel og fjölskyldur þeirra
líka. Þess vegna ákváðum við að senda
boðsbréf til þeirra allra og einnig
starfsmanna sem komnir eru annað og
höfum fengið góð viðbrögð,“ segir Elín
Möll og lýsir dagskránni lítillega.
„Við byrjum með skrúðgöngu klukk-
an ellefu og förum hring um hverfið.
Börnin hafa sjálf skapað hljóðfæri til
að vera með í göngunni. Einnig hafa
þau skreytt húsið og gert heljar mik-
inn vef úr náttúrulegum efniviði í um-
hverfi okkar. Nýtt lógó skólans verður
vígt í dag og því foreldri sem teikn-
aði það veitt viðurkenning og við erum
líka að gefa út söngbók af þessu til-
efni sem seld verður foreldrum. Svo
er skemmtidagskrá. Þar kemur fram
hljómsveit skipuð nokkrum foreldrum
og starfsmönnum og síðan koma
Skoppa og Skrítla.“ Elín getur þess í
lokin að grillað verði fyrir utan skól-
ann. „Eitt er víst að það verður gaman
hjá okkur því við viljum halda veglega
uppá þessi tímamót.“
gun@frettabladid.is
LEIKSKÓLINN DVERGASTEINN: TÍU ÁRA AFMÆLISHÁTÍÐ
Njótum þess að þekkja öll
þessi börn og foreldra þeirra
ELÍN MJÖLL Hefur verið leikskólastjóri frá
upphafi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Brynjólfur Sæmundsson
Dalbraut 27,
lést miðvikudaginn 13. ágúst. Útförin auglýst síðar.
Dagmar Brynjólfsdóttir Georg Jón Jónsson
Jóhanna Brynjólfsdóttir Sveinbjörn Jónsson
Jóna P. Brynjólfsdóttir Gylfi Helgason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Aðalbjörn Benediktsson
frá Grundarási,
sem lést 13. ágúst á Landspítalanum, verður jarðsung-
inn fimmtudaginn 21. ágúst frá Fossvogskirkju kl. 13.
Guðrún Benediktsdóttir
Sigrún Aðalbjarnardóttir Þórólfur Ólafsson
Inga Hjördís Aðalbjarnardóttir Helgi Jón Jónsson
Aldís Aðalbjarnardóttir Páll Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem auðsýndu okkur samúð og hlut-
tekningu við fráfall elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Ingibjargar
Guðmundsdóttur
Eyrardal, Súðavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á öldruar-
deild Sjúkrahússins á Ísafirði sem með frábærri
umönnun og umhyggju gagnvart mömmu og pabba,
Kjartani Jónssyni, létti þeim ævikvöldið síðustu árin
þeirra þar.
Guðlaug Ingvarsdóttir
Jóna Kjartansdóttir McCarthy Josep McCarthy
Bjarni Kjartansson Guðmundína Sturludóttir
Steinn Ingi Kjartansson Rósa Ólafsdóttir
Guðmundur S. Kjartansson
Guðjón M. Kjartansson Dagbjört S. Hjaltadóttir
Kristín Lilja Kjartansdóttir Þorsteinn H. Þorsteinsson
Bjarney Stella Kjartansdóttir Einar V. Hálfdánarson
Daði Kjartansson
Stefán H. Kjartansson
og fjölskyldur
Elsku móðir okkar, amma,
langamma og kær vinur,
Kristjana M.
Jóhannesdóttir
andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði miðvikudaginn 13.
ágúst. Útför fer fram frá Áskirkju föstudaginn 22.
ágúst kl. 11.00.
Sigurður Hávarðsson Guðrún Jónsdóttir
Jens Kristján Jensson Bang Orn Sibrunang
Manfreð Jóhannesson
Þorvaldur Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vinarhug og stuðning við
andlát og útför okkar ástkæru
Ragnhildar Kristínar
Sandholt
Sérstakar þakkir til starfsmanna heimahlynningar og
líknardeildar LHS í Kópavogi fyrir einstaka umönnun.
Jón Eiríksson
Eiríkur Jónsson Ásthildur Björnsdóttir
Íris Jónsdóttir Einar Sigurðsson
Atli Már Jónsson Lilja Dagbjartsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
stjúpmóðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Rósa Eiríksdóttir
Hæðargarði 33, áður Miðdal í Kjós,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 19.
ágúst kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er
bent á MS-félagið.
Davíð Guðmundsson
Fanney Þ. Davíðsdóttir
Hulda Þorsteinsdóttir Aðalsteinn Grímsson
Kristín Davíðsdóttir Gunnar Rúnar Magnússon
Guðbjörg Davíðsdóttir
Katrín Davíðsdóttir Sigurður Ingi Geirsson
Sigríður Davíðsdóttir Gunnar Guðnason
Guðmundur H. Davíðsson Svanborg A. Magnúsdóttir
Eiríkur Þ. Davíðsson Solveig U. Eysteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
AFMÆLI
VALUR FREYR
EINARSSON
leikari er
39 ára.
RÓBERT ARN-
FINNSSON
leikari er
85 ára.
Á DVERGASTEINI Börnin og fóstrurnar vefa listaverk úr náttúrulegu efni úr nánasta umhverfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR