Fréttablaðið - 16.08.2008, Page 65

Fréttablaðið - 16.08.2008, Page 65
LAUGARDAGUR 16. ágúst 2008 Starfshópur sem skipulagði Tónlist- arhátíð unga fólksins tók við viður- kenningu að upphæð 700 þúsund krónur úr Styrktarsjóði Önnu Kar- ólínu Nordal úr hendi Jónasar Ingi- mundarsonar píanóleikara í Salnum á fimmtudagskvöld. Starfshóp þennan skipa þau Guðný Þóra Guð- mundsdóttir fiðluleikari, Arnþrúð- ur Gísladóttir flautuleikari, Þor- gerður Edda Hall sellóleikari og Helgi Jónsson tónlistarfræðingur við LHÍ, en þau hafa þótt standa sig með prýði við að hleypa þessari metnaðarfullu og glæsilegu hátíð af stokkunum í fyrsta sinn. Tónlistarhátíð unga fólksins, sem staðið hefur yfir í Kópavogi nú í mánuðinum, hefur farið fram með miklum sóma í hvívetna. Markmið- ið með hátíðinni var að skapa vett- vang þar sem tónlistarnemendur á hinum ýmsu stigum náms geta komið saman og lært af frábærum listamönnum og það hefur sannar- lega náðst. Fjölmargir ungir hljóð- færaleikarar og söngvarar hafa sótt námskeið hjá úrvals kennurum, komið fram á tónleikum og hlýtt á leiðbeinendur sína leika af miklu listfengi í afar metnaðarfullri tón- leikaröð hátíðarinnar í Salnum að undanförnu. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíð sem þessi er haldin hér á landi og því um sannkallað brautryðjenda- starf að ræða hjá þeim öfluga en fámenna starfshópi sem hefur haft veg og vanda að undirbúningi og skipulagningu hátíðarinnar. Stjórn Styrktarsjóðs Önnu Karól- ínu Nordal var því einhuga um að viðurkenning úr sjóðnum að upp- hæð 700 þúsund krónur skyldi að þessu sinni renna til hátíðarinnar með árnaðaróskum og von um að framhald verði á hátíðinni strax á næsta sumri. Áður hafa hlotið viðurkenningu úr Styrktarsjóði Önnu Karólínu Nordal þau Guðrún Jóhanna Ólafs- dóttir mezzó-sópran, Eyjólfur Eyj- ólfsson tenór, Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari, Jónas Guðmundsson tenór, Elfa Rún Kristinsdóttir fiðlu- leikari og Gissur Páll Gissurarson tenór. Stjórn Styrktarsjóðs Önnu Karólínu Nordal skipa þau Jónas Ingimundarson, Þórður Júlíusson og Vigdís Esradóttir. - vþ Tónlistarhátíð verðlaunuð VERÐLAUNAÐUR STARFSHÓPUR Aðstandendur Tónlistarhátíðar unga fólksins voru að vonum ánægðir með viðurkenninguna. MYND/SALURINN Framhaldsskóladeild Kennsla hefst 18. ágúst Grunnskóladeild Kennsla hefst 25. ágúst Forskóli nemar fæddir 2000 til 2003 Innritun hefst 18. ágúst Kennsla hefst 8. september Skrifstofan er opin virka daga frá 13:00 til 17:00 Skólaárið 2008 – 2009 Kennsla hefst Listdansskóli Íslands hefur viðurkenningu menntamálaráðuneytisins sem einkaskóli á framhaldsskólastigi. Nám við Listdansskóla Íslands er samkvæmt aðalnámskrá á grunn- og framhaldsstigi Skólinn er rekinn af Dansmennt ehf, sem er í eigu Listaháskóla Íslands Staður: Engjateigur 1 105 Reykjavík Nánari upplýsingar: www.listdans.is 588 91 88 Skólabækur Pennaveski Skólatöskur Skrúfblýantar Blek Tússlitir Trélitir Blýantar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.