Fréttablaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 74
54 16. ágúst 2008 LAUGARDAGUR
PEKING 2008 Þátttöku Íslendinga í
sundkeppninni í Peking lauk í
gær þegar Ragnheiður Ragnars-
dóttir tók þátt í 50 metra skrið-
sundi. Hún stóð sig frábærlega og
setti nýtt Íslandsmet er hún kom í
mark á 25,82 sekúndum en gamla
metið hennar var 25,95 sekúndur.
Þessi tími dugði henni í 36. sæti
af 90 keppendum.
„Ég vissi að þessir leikar yrðu
svona. Ég átti miklu meira inni í
50 metra sundinu. Ég er samt
ánægð með bæði sundin og þetta
hefur verið rosa gaman,“ sagði
Ragnheiður kát nýstigin upp úr
lauginni. Hún sagði fyrir leikana
að seinna sundið yrði betra hjá
sér og hafði rétt fyrir sér.
„Ég er búin að fá fjögur ár af
stórmótareynslu og það er að
skila sér mjög vel. Þetta er tals-
vert skemmtilegra en fyrir
fjórum árum,“ sagði Ragnheiður
,sem veit ekkert hvað tekur við
hjá henni á næstu misserum en
telur þó líklegt að hún haldi áfram
að synda.
„Nú fer ég í sumarfrí en hvað
síðan tekur við veit ég ekki. Ég
tími varla að hætta í sundinu núna
og öll þessi vinna er þess virði.
Það er ótrúlega gaman að synda
gott sund og fíla sig í vatninu. Ég
stefni líklega á næstu leika en
maður veit ekkert hvort maður
verður í sundi eftir fjögur ár,“
sagði Ragnheiður, sem segist ekki
stefna á að synda erlendis en hún
stefnir á háskólanám að ári liðnu.
„Ég er með margar hugmyndir,
mikið af plönum sem og tilboðum
í hitt og þetta. Ég er að meta stöð-
una núna. Verst að ég er ekki
tíföld svo ég geti gert allt sem er
í boði.“ - hbg
Ragnheiður Ragnarsdóttir endaði þátttöku sundfólksins á leikunum með Íslandsmeti í 50 metra skriði:
Tími varla að hætta í sundinu núna
METIÐ Í HÖFN Ragnheiður Ragnarsdóttir bætti Íslandsmetið í 50 metra skrið-
sundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
PEKING 2008 Þjálfarateymi
handboltalandsliðsins – Guð-
mundur Guðmundsson, Óskar
Bjarni Óskarsson og Gunnar
Magnússon – er ekki í neinni
skemmtireisu í Peking heldur
vinna þeir myrkranna á milli.
Þegar landsliðið er ekki að spila
sitja þeir félagar fyrir framan
tölvu og greina leik næstu
andstæðinga íslenska liðsins. Það
er mikil vinna en hún hefur
heldur betur skilað sér ef mið er
tekið af leik íslenska liðsins á
mótinu.
„Við vinnum eiginlega á
vöktum. Þetta er þrotlaus vinna,
því er ekki að neita. Það er verið
að greina leiki til fimm á nóttunni
og svo tek ég við á morgnana. Við
skiptumst á og hver klukkutími
skiptir máli í þessu. Maður gerir
ekkert nema hanga í þorpinu uppi
á herbergi, sofa og borða. Til þess
kom maður líka hingað,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari og brosti.
- hbg
Handboltaþjálfararnir:
Í næturvinnu á
milli leikja
MIKIÐ ÁLAG Landsliðsþjálfararnir Guð-
mundur Guðmundsson og Óskar Bjarni
Óskarsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
PEKING 2008 „Það eru allir heilir og
klárir í slaginn að Arnóri Atlasyni
undanskildum. Það er talsverð
óvissa með hans þátttöku í leikn-
um en hann tognaði illa í baki gegn
Kóreu,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari við
Fréttablaðið í gær en Ísland mætir
Dönum á ÓL í dag. Leikurinn hefst
klukkan 12.45 að íslenskum tíma
en 20.45 að staðartíma.
Guðmundur ætlaði að prófa
Arnór á æfingu morguninn fyrir
leikinn en heyra mátti að hann var
svartsýnn á þátttöku skyttunnar.
„Þó svo að hann muni ekki spila
þennan leik kemur ekki til greina
að skipta honum út úr hópnum
strax. Það gerum við ekki nema í
lengstu lög,“ sagði Guðmundur en
fjöldi leikmanna er sár eftir átök
síðustu daga. Guðjón Valur sneri
sig rétt fyrir mót, Alexander hefur
orðið fyrir alls konar skakkaföll-
um og svona mætti áfram telja.
„Auðvitað eru menn lemstraðir
en það þýðir ekki að fást um það.
Þetta er langt mót, mikil átök og
auðvitað verða menn aumir. Það
er bara þannig,“ sagði Guðmund-
ur.
Þjálfarinn segir að fólk hafi haft
á orði að hann væri ekki húsum
hæfur eftir tapið gegn Kóreu en
sagðist allur vera að koma til eftir
nætursvefn. Danir hafa ekki verið
í sínu besta formi hér í Peking.
Gerðu jafntefli við Egypta, töpuðu
fyrir Kóreu og mörðu síðan Rússa
með marki beint úr aukakasti eftir
venjulegan leiktíma.
„Það er oft þannig að lið eru
mislengi að finna taktinn á svona
mótum. Danir unnu náttúrulega
gríðarlega mikilvægan og sætan
sigur á Rússum og mæta því til
leiks fullir sjálfstrausts gegn
okkur,“ sagði Guðmundur, en hvað
þarf til að leggja Danina, sem hafa
verið okkur erfiður ljár í þúfu síð-
ustu ár?
„Vörnin verður að vera áfram
eins öflug og hún hefur verið, sem
og markvarslan. Sóknarleikurinn
þarf síðan að detta aftur í gírinn
en það er bót í máli að við mætum
núna hefðbundnari vörn en í síð-
asta leik ef svo má að orði kom-
ast,“ sagði Guðmundur.
Óvissa með Arnór Atlason
Ísland mætir Evrópumeisturum Dana í fjórða leik liðsins á ÓL í dag. Þjálfarinn
segir menn vera lemstraða en hefur mestar áhyggjur af Arnóri Atlasyni.
SLÆMUR Í BAKI Arnór Atlason hefur spilað vel á leikunum. Hér er hann í leik gegn Þjóðverjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
Skrifar frá Peking
henry@frettabladid.is
PEKING 2008 Sleggjukastarinn
Bergur Ingi Pétursson var
nokkuð frá sínu besta í undan-
keppninni í gær. Bergur Ingi
kastaði 71,63 metra en Íslandsmet
hans er 74,43 metrar. Kasta þurfti
78 metra til þess að komast í
úrslit.
„Þetta gekk bara svipað og ég
bjóst við. Ég er bara mjög sáttur
við að hafa komist yfir 70 metra á
mínum fyrstu Ólympíuleikum,“
sagði hinn 22 ára gamli Bergur
Ingi, sem kastaði fyrst 69,74
metra en gerði síðan ógilt.
Lokakastið hans var síðan hans
besta.
„Þessi upplifun var svipuð og
ég bjóst við. Kannski aðeins
meira af fólki en maður á að
venjast. Mér leið vel og fann
ekkert fyrir stressi. Man að ég
var einmitt að hugsa um hvað það
væri skrítið að ég væri ekki
stressaðri,“ sagði Bergur Ingi,
sem mætir væntanlega reynsl-
unni ríkari til leiks í London eftir
fjögur ár.
„Það hjálpar manni að hafa
keppt hér og ætli stefnan verði
ekki að komast í úrslit þá,“ sagði
Bergur Ingi brattur.
- hbg
Bergur Ingi Pétursson:
Er mjög sáttur
LOKAKASTIÐ Bergur Ingi Pétursson sést
hér kasta yfir 71 metra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Landsliðsbakvörður-
inn Hildur Sigurðardóttir gæti
verið á leiðinni aftur út í
atvinnumennsku því hún er
komin með tilboð frá svissneska
úrvalsdeildarliðinu Elfic
Fribourg. Félagið er frá sam-
nefndri borg í vesturhluta Sviss
og endaði í 6. sæti í deildinni í
fyrra.
Hildur lék við góðan orðstír
með sænska liðinu Jämtland
veturinn 2004-05 en hefur síðan
leikið með Grindavík og KR eftir
að hún kom aftur heim.
Hildur var lykilmaður hjá
nýliðum KR á síðasta tímabili
sem kom mörgum á óvart með
því að komast alla leið í úrslita-
einvígið um titilinn. Hildur var
valin í lið ársins en hún var með
15,3 stig, 10,3 fráköst og 7,1
stoðendingu að meðaltali í leik.
Það er því ljóst að það verður
mikill missir fyrir KR ef Hildur
verður ekki með liðinu í vetur.
Hildur er nú á fullu með
landsliðinu en fyrsti leikurinn í
EM er einmitt á móti Sviss.
Hildur er reyndasti leikmaður
liðsins en hún lék sinn 56.
landsleik á Norðurlandamótinu á
dögunum.
- óój
Hildur Sigurðardóttir:
Með tilboð frá
liði í Sviss
Á LEIÐINNI ÚT Hildur Sigurðardóttir gæti
spilað í Sviss í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
PEKING 2008 Júdókappinn Þormóð-
ur Árni Jónsson stóð sig með ágæt-
um í júdókeppni Ólympíuleikanna
í gær. Hann byrjaði á því að leggja
Pablo Figueroa frá Púertó Ríkó
sannfærandi á ippon.
Þá mætti hann Írananum
Mohammad Reza Rodaki og tapaði
þegar aðeins 48 sekúndur voru
eftir af glímunni. Þá leiddi Þor-
móður, 1-0, og gerði sitt besta til
þess að verja stigið. Íraninn náði
síðan góðu taki á Þormóði og
skellti honum.
Þormóður hefði fengið upp-
reisnarglímu ef Íraninn hefði
unnið næsta andstæðing en af því
varð ekki.
„Ef ég hefði unnið Rodaki þá
hefði ég varla getað beðið um það
betra. Þá hefði ég komist í sextán
manna úrslit á harðasta móti í
heimi. Ég kem inn neðstur af Evr-
ópumönnunum. Ég bjóst sjálfur
við því að vinna Figueroa en vildi
bara ekkert vera að auglýsa það,“
sagði Þormóður Árni, sem var
ekki fjarri því að skella Rodaki
um miðjan bardagann.
„Það sem ég ætlaði að gera var
að fá hann á mig og detta undir
hann. Ég varð að hreyfa mig mikið
og þegar ég varð orðinn hvað
þreyttastur hugsaði ég um allt það
sem ég er búinn að leggja á mig
síðustu tvo mánuði. Bara fjörutíu
sekúndur í viðbót sem var ekki
neitt en því miður þá gekk það
ekki,“ sagði Þormóður, sem var
löðursveittur en átökin í júdói eru
hreint rosaleg.
„Glíma er í rauntíma svona átta
mínútur. Þetta er eins og að lyfta
stöðugt í átta mínútur. Það gekk
mikið á og ég hélt ég myndi hrygg-
brotna þegar hann náði mér einu
sinni. Ég verð örugglega mjög
skemmdur á morgun,“ sagði Þor-
móður og glotti en hann hélt að
Rodaki hefði meiðst. „Hann meidd-
ist í hnénu og ég var alveg „please“
vonandi er eitthvað slitið í hnénu.
Það var ekki svo gott,“ sagði Þor-
móður í hæðnistón. - hbg
Júdómaðurinn Þormóður Árni Jónsson vann fyrstu glímuna sína á leikunum en tapaði næstu fyrir Írana:
Aðeins 48 sekúndum frá 16 manna úrslitum
Í VONDUM MÁLUM Þormóður Árni Jóns-
son sést hér í glímu sinni við Íranann.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM