Fréttablaðið - 16.08.2008, Page 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
5.23 13.32 21.39
4.57 13.17 21.34
Í dag er laugardagurinn 16.
ágúst, 229. dagur ársins.
Maðurinn minn hefur eignast vinkonu. Hún er áttfætt, lítil
og loðin, var einu sinni mjó en er
nú feit. Hún er í stuttu máli sagt
ógeðsleg köngulóin sem hefur
strengt vef sinn fyrir utan eitt
horn eldhúsgluggans svo ég þori
varla að líta af uppvaskinu. Gerist
ég svo huguð er eins og paddan
hafi alla Perluna í greip sinni. Ég
hef hreyft við því að fá að drepa
hana en það vill maðurinn minn
ekki heyra minnst á. Rökin eru
eitthvað á þá leið að köngulóin eigi
rétt á að fá að lifa og hún sé, rétt
eins og við, sköpun Guðs. Þetta
hljómar eins og ég hafi beðið um
að fá að tortíma einhverjum
nágrannanna en þetta er nú einu
sinni bara padda.
ÞEGAR ég var 19 ára gömul starf-
aði ég á gistiheimili í Frakklandi.
Ég þreif herbergin og varð að ryk-
suga reiðinnar býsn af köngulóm.
Einhvern veginn vandist ég við-
bjóðinum og fannst sjálfsagt að
langleggjaðar pöddurnar hyrfu
inn í ryksugubarkann. Það yrði
ekki jafnauðvelt að ryksuga þá
sem haft hefur sumardvöl utan á
húsinu mínu. Talsverða fimi þyrfti
til að ná til hennar og hana hef ég
ekki til að bera. Og eins og ég hef
sagt, þá tekur maðurinn minn það
ekki í mál. Sköpun Guðs og allt
það.
KÖNGULÓIN situr í miðju vefs-
ins og hreyfir sig ekki svo heitið
geti. Stundum fær hún þó heim-
sóknir. Vesælar flugur eiga það
nefnilega til að festa sig í vefnum
og köngulóin lætur líkin standa
uppi nokkra hríð áður en hún legg-
ur þau sér til munns. Maðurinn
minn kallar á son okkar svo hann
geti fylgst með atganginum og
lýsir því sem fyrir augu ber á
ákaflega Attenborough-legan hátt.
Auðvitað er þetta bara þrælógeðs-
legt og ég ætti að vera löngu búin
að panta meindýraeyði til að hnoða
köngulóna saman í eldhúsþurrku
og sturta henni niður.
ÞEGAR maðurinn minn spyrði
hvað orðið hefði um Lóu (ég er
viss um að hann er farinn að kalla
hana eitthvað) segði ég bara: „Ó!
Hún hefur örugglega bara dottið
niður. Ég heyrði einmitt lágt vein
áðan.“ Ég á samt ekki von á að ég
þori að taka af skarið. Rökin um að
við séum öll sköpun Guðs og
höfum sama rétt til að lifa eru
nefnilega svo sannfærandi, jafn-
vel þótt þau séu borin fram yfir
ilmandi lambasteik. Þar sem ekk-
ert ætilegt er á köngulóm og ekki
hægt að nýta af þeim ullina er
vafalaust fallegt að leyfa þessu að
lifa þar til tekur að frysta.
Börn
náttúrunnar
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18. 00
12.00 - 18.00
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
KLÁR Í
SKÓLANN?
6.990,-
BONNY snúningsstóll, sætishæð 40-52 cm. Rautt
MULA talnagrind
B39xD18, H33 cm. 995,-
695,-
KASSETT DVD box m/loki 2 stk.
21x26x15 cm. Ýmsir litir
8.950,-
FREDRIK skrifborð, B139xD72,
H74 cm. Svarbrúnt/silfurlitað
FLÖRT taska.
Ýmsir litir 995,-
FLÖRT askja með loki
28x35x15 cm. Rautt/grátt 495,-
MÅLA töupennar.
Ýmsir litir 195,-/7 í pk.
695,-/2 í pk.
KASSETT DVD box m/loki
21x26x15 cm. Grænt
FLÖRT veski, ýmsar
tegundir. Ýmsir litir 150,-
STRIKT skrifborðsáhöld
4 hlutir. Ýmsir litir 1.090,-
ALARM vekjaraklukkur
9x3x9 cm. Ýmsir litir 95,-/stk.
MÅLA vatnslitir, 50 ml.
Ýmsir litir 995,-/6 í pk.
DOKUMENT blaðabakki
B29xD35, H27 cm.
Silfurlitað 795,-
KNUFF tímaritahirsla
B10xD25, H31 cm.
Krossviður 395,-
EXPEDIT hillueining
B44xD39, H185 cm.
Svarbrúnt 5.950,-
JONAS skúffueining á hjólum
B41xD51, H63 cm. Birkispónn
8.950,-
MÅLA penslar 195,-/6 í pk.