Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.08.2008, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 16.08.2008, Qupperneq 80
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar 5.23 13.32 21.39 4.57 13.17 21.34 Í dag er laugardagurinn 16. ágúst, 229. dagur ársins. Maðurinn minn hefur eignast vinkonu. Hún er áttfætt, lítil og loðin, var einu sinni mjó en er nú feit. Hún er í stuttu máli sagt ógeðsleg köngulóin sem hefur strengt vef sinn fyrir utan eitt horn eldhúsgluggans svo ég þori varla að líta af uppvaskinu. Gerist ég svo huguð er eins og paddan hafi alla Perluna í greip sinni. Ég hef hreyft við því að fá að drepa hana en það vill maðurinn minn ekki heyra minnst á. Rökin eru eitthvað á þá leið að köngulóin eigi rétt á að fá að lifa og hún sé, rétt eins og við, sköpun Guðs. Þetta hljómar eins og ég hafi beðið um að fá að tortíma einhverjum nágrannanna en þetta er nú einu sinni bara padda. ÞEGAR ég var 19 ára gömul starf- aði ég á gistiheimili í Frakklandi. Ég þreif herbergin og varð að ryk- suga reiðinnar býsn af köngulóm. Einhvern veginn vandist ég við- bjóðinum og fannst sjálfsagt að langleggjaðar pöddurnar hyrfu inn í ryksugubarkann. Það yrði ekki jafnauðvelt að ryksuga þá sem haft hefur sumardvöl utan á húsinu mínu. Talsverða fimi þyrfti til að ná til hennar og hana hef ég ekki til að bera. Og eins og ég hef sagt, þá tekur maðurinn minn það ekki í mál. Sköpun Guðs og allt það. KÖNGULÓIN situr í miðju vefs- ins og hreyfir sig ekki svo heitið geti. Stundum fær hún þó heim- sóknir. Vesælar flugur eiga það nefnilega til að festa sig í vefnum og köngulóin lætur líkin standa uppi nokkra hríð áður en hún legg- ur þau sér til munns. Maðurinn minn kallar á son okkar svo hann geti fylgst með atganginum og lýsir því sem fyrir augu ber á ákaflega Attenborough-legan hátt. Auðvitað er þetta bara þrælógeðs- legt og ég ætti að vera löngu búin að panta meindýraeyði til að hnoða köngulóna saman í eldhúsþurrku og sturta henni niður. ÞEGAR maðurinn minn spyrði hvað orðið hefði um Lóu (ég er viss um að hann er farinn að kalla hana eitthvað) segði ég bara: „Ó! Hún hefur örugglega bara dottið niður. Ég heyrði einmitt lágt vein áðan.“ Ég á samt ekki von á að ég þori að taka af skarið. Rökin um að við séum öll sköpun Guðs og höfum sama rétt til að lifa eru nefnilega svo sannfærandi, jafn- vel þótt þau séu borin fram yfir ilmandi lambasteik. Þar sem ekk- ert ætilegt er á köngulóm og ekki hægt að nýta af þeim ullina er vafalaust fallegt að leyfa þessu að lifa þar til tekur að frysta. Börn náttúrunnar © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 8 www.IKEA.is Opið virka daga Opið laugardaga Opið sunnudaga 10.00 - 20.00 10.00 - 18. 00 12.00 - 18.00 Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun KLÁR Í SKÓLANN? 6.990,- BONNY snúningsstóll, sætishæð 40-52 cm. Rautt MULA talnagrind B39xD18, H33 cm. 995,- 695,- KASSETT DVD box m/loki 2 stk. 21x26x15 cm. Ýmsir litir 8.950,- FREDRIK skrifborð, B139xD72, H74 cm. Svarbrúnt/silfurlitað FLÖRT taska. Ýmsir litir 995,- FLÖRT askja með loki 28x35x15 cm. Rautt/grátt 495,- MÅLA töupennar. Ýmsir litir 195,-/7 í pk. 695,-/2 í pk. KASSETT DVD box m/loki 21x26x15 cm. Grænt FLÖRT veski, ýmsar tegundir. Ýmsir litir 150,- STRIKT skrifborðsáhöld 4 hlutir. Ýmsir litir 1.090,- ALARM vekjaraklukkur 9x3x9 cm. Ýmsir litir 95,-/stk. MÅLA vatnslitir, 50 ml. Ýmsir litir 995,-/6 í pk. DOKUMENT blaðabakki B29xD35, H27 cm. Silfurlitað 795,- KNUFF tímaritahirsla B10xD25, H31 cm. Krossviður 395,- EXPEDIT hillueining B44xD39, H185 cm. Svarbrúnt 5.950,- JONAS skúffueining á hjólum B41xD51, H63 cm. Birkispónn 8.950,- MÅLA penslar 195,-/6 í pk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.